Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2005, Qupperneq 4
4 LAUCARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Monty Roberts, einn þekktasti tamningamaður heims, er væntanlegur hingað til
lands á vegum Þorsteins Kragh, fyrrverandi umboðsmanns Bubba Morthens.
Monty temur hross með blíðu í stað hörku og er Lilja Pálmadóttir meðal þeirra
íslendinga sem tileinkað hafa sér aðferðir hans og beitt á eigin hesta.
íhaldið fengi
borgina
„Ég er sérstaklega
ánægður með þessa niður-
stöðu og þakklátur borgar-
búum," segir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í borgar-
stjórn. Gallupkönnun sem
Rfldsútvarpið lét vinna sýn-
ir að ef kosið yrði nú myndi
Sjálfstæðisflokkurinn fá níu
menn kjörna og þar með
hreinan meirihluta. Sam-
fylkingin fengi fjóra og
vinstri grænir tvo. Hvorki
framsóknarmenn né frjáls-
lyndir ná hins vegar manni
inn. Tæplega fjórðungur
kjósenda er enn óákveðinn.
Heimsfrægyn hesta-
hvíslari til Islands
Nýtt BYKO
í Fjörðinn
Svo virðist sem stærðar-
innar verslunarþorp muni
rísa í nýja Vallahverfinu í
Hafnarfirði.
Bæjaryfirvöld
hafa þegar veitt
fyrirtækjunum
BYKO, Brim-
borg og Fedex-
/Hraðflutning-
um/Fraktlausn-
um, vilyrði fyrir
lóð. Nýja Vallahverfið er
óðum að taka á sig mynd
og hafa þegar verið reist ein
tíu hringtorg á svæðinu.
Þeim mun trúlega fjölga
þegar verslunarhverfið rís
við Selhellu enda sannkall-
að hringtorgaæði sem
geysar í Hafnarflrði um
þessar mundir.
Neitað
vegna fýlu
Bæjarráð sveitarfélags-
ins ölfuss hefur neitað fyr-
irtækinu JHS um lóð undir
byggingu fiskverkunarhúss.
í bókun á síðasta fundi
bæjarráðs segir að lóðin við
Laxabraut 9 sé ekki heppi-
leg fýrir verksmiðju af því
tagi sem JHS ehf. hyggst
byggja. „Bæjarráð telur að
sú vinnsla sem fýrirhuguð
er hjá JHS ehf. gæti gefið
frá sér það mikla lyktar-
mengun að það muni hafa
neflcvæð áhrif á þróun
byggðar á þessu svæði."
Beiðni um lóðina við Laxa-
braut var því hafnað.
V:
Væntanlegur er til landsins einn frægasti hestahvíslari heims,
sjálfur Monty Roberts, fyrirmynd Roberts Redford og félaga í
samnefndri kvikmynd og metsölubók.
Monty kemur hingað á vegum
Þorsteins Kragh, fyrrverandi um-
boðsmanns Bubba Morthens, og
mannsins sem flutti Placido Dom-
ingo hingað til lands á sínum tíma.
„Ég kynntist Monty þegar ég sá
hann á sýningu í Edinborg og í frarn-
haldinu fékk ég hann til að fara í sýn-
ingaferðalag til Spánar. Þar sýndum
við í Barcelona, Malaga, Madríd og
víðar við frábærar undirtektir," segir Robert Redford Lék Monty i Hestahvislar-
Þorsteinn Kragh sem gerir ráð fýrir að anum en klikkaöi á endanum.
Monty komi til íslands strax næsta
sumar. Mildi í stað hörku
Aðferðir Montys við tamn-
ingu lirossa hafa vakið
heimsathygli enda beit-
ir hann öðrum að-
ferðum en hingað
til hafa þótt gef-
ast best. Monty
beitir mildi í stað
hörku og temur
mestu ótemjur á
mettíma. Hefúr
Ingimar Sveins-
son, kennari á
Hvanneyri, einnig
beitt þessum aðferðum
við hrossatamningar og
náð viðlíka árangri.
Lilja hrifin
„Við stefnum að því að verða
með þrjár eða fjórar sýningar hér á
landi þar sem menn geta komið með
hesta sína og svo áhorfendur sem
vilja fýlgjast með," segir Þorsteinn
Kragh og lítur þá til höfúðborgar-
svæðisins, Skagafjarðar og
jafnvel enn lengra norður og
austur. „Það þekkja margir
Monty Roberts og
tamningaaðferðir
hans. Til dæmis
hefur Lilja
Pálmadóttir, eiginkona Baltasars
Kormáks, dválið á búgarði Montys í
Kalifomíu og lagt sig eftir þessari sér-
stöku list," segir Þorsteinn.
Ráðlagði Redford
Monty Roberts er fýrirmyndin að
hestahvíslaranum fræga sem Robert
Redford lék í samnefndri kvikmynd.
Sjálfúr var Monty aldrei sáttur við þá
mynd; bæði það að aðferðimar við
tamningarnar sem þar em sýndar,
vom ekki í anda hans og ekki síður að
endir kvikmyndarinnar var annar en
bókarinnar
„Monty sagði mér að hann hefði
bent framleiðendunum á að þeir
myndu tapa 50 milljónum dollara
með þessum endi en hann gæti hins
vegar boðið þeim upp á annan endi
sem myndi skila þeim 50 mflljónum
doUara í gróða," segir Þorsteinn
Kragh. „Reyndin varð svo sú að
Robert Redford og félagar töpuðu 50
miUjónum eins og
Monty hafði spáð."
Metsölu-
höfundur
Monty Ro
berts stendur á
sjötugu og hef-
ur að sögn
Þorsteins
Kragh aldrei
verið betri.
Hann hefur
skrifað og gef-
ið út bókina
The Man Who
Listens to
Horses og þeg-
ar selt 6 mflljónir
eintaka af
henni.
Lilja Pálmadóttir Dvaidiá
búgarði Montys I Kaliforníu
og tileinkaði sér aðferðir
hans í umgengni við hross.
Að fækka piparsveinum
Svarthöfði hefur ekki enn náð að
finna ástina í lífi sínu. Svarthöfði er
piparsveinn. Svarthöfði hefur eytt
undanförnum ámm á mögulegum
og ómögulegum stöðum í leit að ást-
inni en ekki haft erindi sem erfiði,
hvort heldur sem er á skemmtistöð-
um, listasöfnum, fótboltaleikjum
eða í húsdýragarðinum.
Margir hafa býsnast yfir nýja
raunveruleikaþættinum á Skjá ein-
um, hinum íslenska Bachelor, þar
sem heppinn piparsveinn reynir að
finna ástina úr hópi föngulegra
kvenna. Svarthöfði er algjörlega á
öndverðum meiði við það fólk sem
hefur kaUað þennan þátt mannlega
lágkúru eða eitthvað þaðan af verra.
Þetta fólk hefur ekki verið í sporum
manna eins og Svarthöfða. Þetta fólk
veit ekki hvernig það er að sofna
einn og vakna einn dag eftir dag,
viku eftir viku og ár eftir ár. Þetta fóUc
þekkir ekki einmanaleiktilfinning-
una sem piparsveinar eins og Svart-
höfði þurfa að glíma við á hverjum
degi. Þessa nístandi tUfinningu sem
læsist um menn sem finna sér ekki
lífsförunaut.
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað bara helvíti fint, maður," segir Atli Rúnar Hermannsson skemmtanastjóri á
Pravda.„Ég er reyndar að vinna mikið um heigina, var á félagsmiðstöðvarballi ígær og
svo fór ég að spila á Pravda og þar var brjálað fjör. Maður spilar mest bara tónlist sem fólk
vill hlusta á og dansa við. Svo verða ívar Guðmunds og Arnar Grant með geggjað partí í
kvöld þar sem þeir kynna nýjan orkudrykk. Ætli maður lifi ekki áhonum yfir helgina?"
Þess vegna fagnar
Svarthöfði þætti á
borð við hinn ís-
lenska Bachelor.
Þar gefst einum
manni, sem er í
sömu stöðu og Svart-
höfði, tækifæri tU að
finna ástina. Svart-
höfði sótti nokkrum
sinnum um að komast í
þáttinn og verða pipar-
sveinn íslands en hlaut
ekki náð fyrir augum
dómnefndarinnar. Svart-
höfði er pínu svekktur en
vonar að sá sem hreppir
hnossið finni ástina - í beinni
útsendingu á Skjá einum. Þá
væri einum piparsveininum færra
sem Svarthöfði telur hið besta mál.
Svarthöfði vonar að þættirnir vekji
stormandi lukku svo hann geti
sótt um á næsta ári.
Svarthöfði