Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2005, Page 22
22 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005
Helgarblað DV
Rúna Magdalena ^
Guðmundsdóttir
Er í hárgreiðslunámi og
hefur fengist við fyrir-
sætustörf meðfram því.
„Ég er með mörg jám í eldinum,“
segir Rúna Magdalena en hún er að
klára hárgreiðslunám um þéssar
mundir. „Eg held að besta ráðið til
þeirra sem vilja stunda fyrirsætustörf
og allra annarra sé að" hugsa vel um
sig og vera maður sjálfur," segir'Rúná
Magdalena ákveðin og brosir blítt.
„Alls ekki vera að elta einhverjar
staðalímyndir. Mín ráðlegging er sú
að láta ekki útlitsdýrkun gleypa sig.
Það er enginn fullkominri og maður á
að sætta sig við það sem maðurhefur
og vinna svo út frá því."
Kynnist ólíkum karakterum
„Að sitja fyrir getur verið bæði
erfitt og létt á meðan á því stendur.
Það fer reyndar svoh'tið eftir verkeíri-
um hverju sinni. Ætli það skemmti-
legasta við módelstörfin sé ekki að
kynnast ólfkum karaktemm sem síð-
ar verða góðir kunningjar manns."
ekki lítið
, Að sjálfsögðu þarf maður alltaf að
borða rétt, hvort sem það er í þessu
eða öðrum," svarar Rúna að-
spurð um lífsstílinn sem fylgir fyrir-
sætustarfinu. „Rétt mataræði þýðir
að það þarf að vera hollt en alls ekki
lítið. Ég myndi segja að ef að maður
lifir heilbrigðu lífi og gerir það að lífs-
stil, þá h'tur maður sjálfkrafa vel út og
ef maður er sáttur við sjálfan sig og
h'ður vel, þá fær maður útgeislun í
kauþhæti."
að vera of mjó
María Builien Jónsdóttir
Hefur starfað sem fyrir-
sæta í nokkur ár og
finnst starfið mjög
skemmtilegt.
„Þetta kemur allt í hæðum og
lægðum. Einn mánuðinn er ekkert
að gera en þann næsta er maður
kannski með fullmikið að gera. Þó
eru það alltaf misstór verkefni,“ seg-
ir María sallaróleg og tekur um-
ræðuefnið ekki hátíðlega.
Er fyrirsætustarfíð eins auðvelt
ogþað lítur út fyrir að vera?
„Þetta er kannski erfiðara en fólk
heldur. Myndatökur og sýningar taka
oft langan tíma,“ svarar hún hugsi og
bætir við: „Stundum fram á nótt."
Þolinmæði kemur sér vel
„Erfiðast finnst mér kannski
hversu allt tekur langan tíma, þess
vegna er mikilvægt að vera
þolinmóður. Það þýðir
heldur ekkert að sitja
heima og glápa út í loftið.
Fólk á það til að segja eitt
og gera annað og þá þarf
kannski að hringja oft og
reka á eftir því, maður
virkar soldið eins og lítil
ffekja - en það er það sem
maður þarf að vera til að fá
það sem manni var lofað.
En ég hef eignast mjög
góða vini í gegnum mód-
elstörfin og kynnst fullt af
frábæru fólki og ég held
það komi upp á móti öllu
því slæma og erfiða, sem
er þó ekki margt."
María, Elísabet, Rúna
og Ingunn hafa allar
komið fram sem fyrir-
sætur eða fegurðar-
drottningar. Þær eru
sammála um að heil-
brigður lífsstíll sé
hestur til árangurs og
forðast beri allar öfgar
bæði varðandi matar-
æðið og útlitið almennt
Alin upp við hollustu
Hvað þarf að leggja
áherslu á í módeibrans-
anum?
„Persónulega pæh ég
ekki mikið í því hvað ég
læt upp í mig, borða bara
það sem ég er í stuði fyrir
hveiju sinni. En ég er líka
svo heppin að ég er alin
upp við hollan mat þann-
ig að mér þykir hann
kannski aðeins betri en sá
óhollari. En auðvitað þarf
maður aðeins að hugsa
um það hvað maður borð-
ar daginn fyrir sýningar,
prufur eða myndatökur,“ útskýrir
þessi fahega stúlka sem kýs að fara
meðalveginn. „Svo hafa reykingar og
drykkja aiveg gífurlega slæm áhrif á
húðina. Húðin verður slöpp og mað-
ur missir mikla útgeislun, finnst
mér," segir hún og bætir við einlæg:
„Ferskleikinn er alltaf sjarmerandi."
Flott að vera venjulegur
„Ég reyni að láta það ekki stjórna
því hvernig ég borða og hreyfi mig,
það fyndist mér of stressandi. En
auðvitað vih maður og þarf að vera í
sæmilegu formi, en það fæst bara
með því að vera ekki skutlað á aha
staði og borða sæmilega hollt. Ann-
ars er það bara flott að vera „venju-
legur". Of mjótt er ekki heldur flott.“
Góðráð?
„Engan saltan mat daginn fyrir
sýningar eða myndatökur," svarar
hún samstundis og hlær. „Svo þarf
maður bara að vera opinn fyrir flest-
öhu, jákvæður, þolinmóður og með
sterkan karakter."