Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2005, Side 27
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 27
r
Tinna Hrafnsdóttir leikkona er komin af þekktri leiklistarfjölskyldu en pabbi hennar er kvikmyndaleik-
stjórinn litríki, Hrafn Gunnlaugsson. amma hennar leikkonan Herdís Þorvaldsdóttir og föðursystir
hennar og nafna er þjóðleikhússtjórinn Tinna Gunnlaugsdóttir. Tinna hefur nú tekið nýja stefnu og var
að byrja í MBA-námi í Háskólanum í Reykjavík meðfram störfum sínum í leiklistinni.
„Já og nei,“ svarar Tinna Hrafns-
dóttir aðspurð hvort fjölskyldan hafi
haft áhrif á ákvörðun hennar að ger-
ast. leikkona. „Að sjálfsögðu mótast
maður af því umhverfi sem maður
fæðist inn í og í minni fjölskyldu er
mikið af listafólki en ég var ekki alin
upp í leikhúsi, eins og svo mörg
börn sem eiga foreldra sem eru leik-
arar. Mín kynni af leikhúsi voru fyrst
og fremst í gegnum ömmu mína,
Herdísi Þorvaldsdóttur, en ég get
ekki sagt að þau kynni hafi beinlínis
haft þau áhrif að ég tók þessa
ákvörðun," segir Tinna og bætir við:
„Þó að ég hafi dáðst að ömmu
minni, hef ég alltaf haft mikla þörf
fyrir að fara mínar eigin leiðir enda
var það ekki fyrr en um tvítugt, þeg-
ar ég fór á mitt fyrsta leiklistamám-
skeið að ég fann það sterkt innra
með mér að leiklistin stóð hjarta
mínu næst," segir Tinna einlæg.
Allt annað kom til greina
Ætlaðir þú alltaf að verða leik-
kona? „Nei, reyndar ekki, en það má
kannski segja að löngunin hafi
blundað í mér frá því að ég var barn.
Þá átti ég til að taka á móti gestum
foreldra minna með allsérstakri
söng- og dansskemmtun þar sem ég
reyndi af öllum mætti að feta í fót-
spor Oliviu Newton-John í Grease.
„Beisíbop" var þá sungið hástöfum í
stað „you better shape up“ en þegar
ég var spurð að því hvort ég vildi
verða leikkona eins og Olivia þá var
svarið alltaf hiklaust nei. Búðarkona,
snyrtidama eða allt annað kom til
greina," segir þessi fallega leikkona
og heldur áfram: „Það var ekki fyrr
en ég kynntist Stúdentaleikhúsinu í
Háskóla íslands haustið ‘97, þá ver-
andi í bókmenntafræði, sem ég
ákvað að skella mér í inntökuprófin
hér heima," segir Tinna sem komst
inn í fyrstu tilraun. „Þar með var það
ákveðið," bætir hún brosandi við.
Nafnið frá Tmnu frænku
„Já, ég er skírð í höfuðið á föð-
ursystur minni," svarar hún þegar
talið berst að nafninu hennar og hvort
hún hafi verið skírð í höfuð Tinnu
Gunnlaugsdóttur leikkonu og þjóð-
leikhússtjóra. „Sem er kannski ein-
kennilegt þvf þegar pabba var tilkynnt
að litla systir hans ætti að heita Tinna
varð hann alveg miður sín því að í
sveitinni sem hann var í á sumrin hét
ein beljan þessu nafni," segir hún og
hlær og heldur áfram frásögninni:
„Samt sem áður endaði hann á því að
skíra fyrsta stúlkubarnið sitt Tinnu
svo hann hefur augljóslega tekið
nafnið í sátt með árunum, og ég er
mjög sátt við það," segir hún.
Börnin eru best
Tinna hefur leikið hin ýmsu hlut-
verk en henni finnst sérstaklega
gaman að leika fyrir börn. „Böm eru
bestu áhorfendurnir því þau eru svo
hreinskilin. Ef þeim líkar ekki það
sem þú ert að gera þá hika þau ekki
við að segja það og að sama skapi
geisla þau af kátínu þegar þau em
ánægð. Engin yfirborðskæti, bara
hundrað prósent einlægni." Áttu
eina sögu af sviðinu? „Já, já," svarar
Tinna: „Einu sinni var ég að
skemmta sem Tóti tannálfur, sem er
persóna sem ég lék í barnasöng-
leiknum Benedikt búálfur. Þetta var
í byrjun sumars og var ég þá ekki
búin að skemmta sem Tóti í marga
mánuði. Ég fann að ég var kannski
örlítið ryðguð í rullunni en þóttist
Byrjuð í MBA-námi
„Ég er að leika Pöllu pem í
Ávaxtakörfunni sem er voða gaman
enda er hún mikill grallari," segir
Tinna og hlær en einungis örfáar
sýningar em eftir svo þeir sem hafa
ekki enn séð sýninguna verða að
fara að drífa sig með börnin. „Það
vildi svo til að við Dói vomm bæði
beðin um að vera með í Ávaxtakörf-
unni svo við tókum að okkur það
skemmtilega verkefni í sumar að
ferðast vítt og breitt um landið sem
pera og banani til að kynna verkið.
Að sjálfsögðu var þá tjaldið tekið
með og grillað öll kvöld. Við náðum
þarna að sameina vinnu og helsta
❖
Heima á Þórsgötu Tinnu fínnst
gott að búa á Þórsgötu þótt
Ibúðin mætti vera stærri.
Fer sínar eigin leiðir
Tinna ætlar nú að vlkka
sjóndeildarhringinn og er
komin I viöskiptanám í
Háskólanum I Reykjavlk.
nú þekkja lagið hans út og inn og var
viss um að þetta yrði ekkert mál.
Þannig að ég vippa mér svellköld
upp á svið, kynni mig sem Tóta og
lagið byrjar. Skyndilega finn ég að ég
er stöðugt að rifja upp textann í lag-
inu á meðan ég er að syngja sem set-
ur mig á hræðilegt meðvitundarstig
sem leiðir til þess að í miðju lagi
finnst mér eins og það sé búið og
byrja að hneigja mig að sið Tóta,"
segir Tinna hlæjandi. „En lagið hélt
að sjálfsögðu áfram án söngs og
hófst þá skelfilegt ferli við það að
reyna að smokra mér inn í lagið aft-
ur sem verður aldrei annað en til-
raunakennt og frekar neyðarlegt. í
staðinn varð mikið um lallalalla og
tilgerðarlegan hlátur til að fylla upp í
eyðurnar. Þetta er án efa „lengsta"
lag sem ég hef sungið en ég
reyndi að láta á engu bera í M
lokin og hneigði mig aftur
með reisn," segir hún
sposk á svip.
Fyrlr4:
Skötuselur (magn eftirmaga)
Rósapiparsósa:
2 laukar
4 msk íslenskt smjör
2 dósir 200 gr. sýrður rjómi
2 dl rjómi
6 msk Heinz-chiUsósa
I msksojasósa
4 hvítlauksrif
áhugamál okkar svo síðasta
sumar var mjög ánægju-
| legt." Hvað er svo fram
undan? „Meðfram leik-
listinni ætla ég að vílcka
jj sjóndeildarhringinn og
halda v
W áfram
íH
Tinna Gunn- ^ f Tinna og Dói Tinna
laugsdóttir með Dóa kærastanum
| Tmna Hrafns- w sínum eftir frumsýn-
1 dóttir er skýrð i inguna á Chicago i
1 höfuðið á föður- 1 systursinni. ^ ^ Borgarleikhúsinu.
Saxið lauk smátt og kraumið I smjöri.
Blandiðl skál sýrðum rjóma, rjóma,
chilisósu, sojasósu og pressuðum hvltlauk.
Hellið blöndunni I pott og
látiö sjóöa 13-5 mínútur. Blandið muldum
rósapipar og dilli saman viö.
Kryddblanda á skötusel:
1 msksykur
1 tsksalt
4 msk rósapipar
3 msk fersitt dill (saxað)
Penslið fískinn með ollu áður en honum er
velt upp úr kryddblöndunni. Best
er að leggja bitana á álbakka og hafíð ofn-
inn stilltan á grill.
að mennta mig," útskýrir hún. „í
haust byrjaði ég í hinu margrómaða
MBA-námi í Háskólanum í Reykja-
vík sem er hægt að stunda samhliða
vinnu. Það er mjög spennandi en
þetta er krefjandi nám sem er ætlað
einstaklingum úr öllum geirum at-
vinnulífsins sem vilja efla stjórnun-
ar- og leiðtogahæfileika sína í hvers
konar rekstri," segir hún. „Auk þess
§k gefur námið mjög góða innsýn í ís-
m lenskt atvinnulíf."
Amma og frændi Herdís Þorvaldsdóttir,
amma Tinnu, og frændi hennar Ólafur Egilsson
sem einnig er leikari.
Lítið eldhús fullt af ást
„Eldhúsið mitt er afskaplega lít-
ið," segir Tinna eilítið hugsi og bætir
við að það sé reyndar mjög lítið og
þar geti oft á tíðum verið þröngt á
þingi. „Samt sem áður getum við
ekki hugsað okkur að flytja því íbúð-
in hefur svo margt einstakt við sig en
mér þykir Þórsgatan vera með fal-
legri götum í miðbænum. Ég er ekk-
ert voðalega dugleg að elda svo sá
tími sem ég eyði í eldhúsinu fer mest
í að vaska upp og taka til,“ svarar
Tinna og brosir fallega. „Dóa finnst
miklu skemmtilegra að tilraunast í
eldhúsinu en mér svo það er oftar í
hans verkahring að elda. Mér til
mikillar ánægju enda er hann frá-
bær kokkur. Ég á þó til að elda
mömmumat," segir hún og bætir
hlæjandi við: „Þar liggur minn
styrkur." Við kveðjum
þessa fallegu leikkonu
og þökkum fyrir gest-
risnina og spyrjum
hana með hverjum
og hvar henni líði
best? „Úti f náttúr-
unni með mannin-
um mínum," svarar
hún samstundis
geislandi fögur og
ánægð með tilver-
una. „Það er ekkert
sem jafnast á við ís-
lenska náttúru."
spamadur&dv.is