Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2005, Side 45
DV Sport
LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 79
Spurning dagsins
Hvernig fer bikar-
úrslitaleikurinn á milli
Vals og Fram í dag?
,Ég er með þetta allt á
hreinu, þetta fer tvö -
núll fyrir Val. Það eru
sætari strákar þar."
Jóna Sigríður
Jónsdóttir.
„Eigum við ekki að
segja að þetta fari
þrjú - eitt fyrir Val?"
Lárus Sverrisson.
„Valur vinnur þrjú -
eitt."
Kristinn Þór
Valtýsson.
„Leikurinn fer eitt -
núll fyrir Val."
Helena
Björgvinsdóttir.
„Valur vinnur. Segjum
að þetta fari tvö -
núll."
Gunnar Emil
Pálsson.
„Leikurinn fer tvö - eitt
fyrirVal."
Halla Sveinsdóttir.
,Ég held með Fram og
þeir vinna."
Soffía Giang.
„Valur vinnur tvö -
núll. Garðar og Bjössi
skora mörkin.“
Besim Haxhiajdini.
„Ég hefekki mikið
pælt í þessu. Eigum
við ekki að segja að
Fram vinni þrjú - tvö?"
Flosi Þorleifsson.
„Þetta fer þrjú - tvö
fyrirVal."
Sigríður
Aðalsteinsdóttir.
Bikarleikir Valsmanna
og Framara frá upphafi
8 lifia úrslit 1960
Valur-Fram 3-3, Fram-Valur 3-0
8 liða úrslit 1961
Fram-Valur 3-0
8 liða úrsllt 1962
Fram-Valur 3-2
8 liöa úrslit 1964
Fram-Valur 2-0
8 lifia úrslit 1965
Fram-Valur 0-1
8 lifia úrslit 1976
Fram-Valur 1-2
Úrslltaleikur 1977
Fram-Valur 1-2
Úrslitaleikur 1979
Fram-Valur 1-0
16 lifia úrslit 1980
Valur-Fram 2-3
8 lifia úrslit 1988
Valur-Fram 3-1 (Framlengt)
16 liða úrslit 1990
Valur-Fram 3-3 (Valur í vítak.)
16 liða úrslit 1994
Valur-Fram 2-5
16 liöa úrslit 2001
Valur-Fram 2-3
Fram og Valur mætast í dag klukkan 14 í stærsta leik ársins i íslenskri knatt-
spyrnu, úrslitum Visa-bikarsins. Fyrirfram eru Valsmenn taldir sigurstranglegri,
þeir luku deildarkeppninni í öðru sæti en Fram í því níunda og féll það í 1. deild.
Það verður sannkallaður borgarslagur þegar Reykjavíkurfélögin
Valur og Fram mætast á Laugardalsvellinum í dag í úrslitum
Visa-bikarsins. Flestir hallast að sigri Valsmanna en hafa ber í
huga að þrátt fyrir að Framarar hafi ekki riðið feitum hesti í und-
anfömum leikjum, þá koma þeir í leikinn með betri árangur í
síðasta þriðjungi Islandsmótsins. Báðum liðum hefur gengið
erfiðlega að undanförnu, Framarar töpuðu síðust ijórum leikj-
um sínum og Valsmenn hafa ekki unnið leik síðan liðið lagði
Skagamenn þann 11. ágúst sl.
Ólafur Kristjánsson, þjálfari
Fram upplifði sem leikmaður að
tapa bikarúrslitaleik gegn Val.
Það var árið 1991 en þá lék
Ólafur með FH sem tapaði
fyrir Valsmönnum í endur-
teknum leik, því fyrri leikur-
inn hafði endað með jafh-
tefli.
Hefur upplifað tap
„Ég hef upplifað tap í bikarúr-
slitaleik og hef í hyggju að gefa sjálf-
um mér það að sigra svona leik.
Hvorugt liðið hefur riðið neitt sér-
staklega feitum hesti að undanfömu
og því held ég að allt geti gerst.
Sjálfur hef ég ekkert hugsað um fallið
um síðustu helgi heldur eytt öllum
mínum krafti í þennan leik. Það
er nægur tími eftir mót til
að gera deildina upp,“
sagði Ólafur Kristjánsson
þjálfari Fram.
Valsliðið er heilsteypt
lið, með sterka vöm en hafa
hins vegar verið að dala
aðeins í sóknarleiknum eftir því
sem liðið hefur á sumarið. En ég
held ég vilji ekkert tjá mig um veik-
leika Valsliðsins en ég veit hins vegar
hvemig ég vil spila gegn þeim," sagði
Ólafur aðspurður um veikleika and-
stæðinganna.
„Það var löngu kominn tími til að
fá að komast aftur í bikarúrslitaleik,
maður er ekki maður með
mönnum nema maður
hafi tekið þá í honum,"
sagði Sigurbjöm Hreiðars-
son fyrirliði Vals en hann var
í leikmannahópi Hlíðar-
enda-liðsins þegar liðið vann
bikarinn síðast, árið 1992.
„Við höfum ekki verið
jafnþéttir í lok móts eins og við vor-
um í byrjun. Ég held að það sé ömur-
legt að tapa bikar og sem betur fer þá
hef ég aldrei upplifað það. Sem betur
fer þarf ekkert allt að verða einhvem
tímann fyrst," sagði hinn orðheppni
fyrirliði Valsmanna sem hefur vænt-
anlega stappað stálinu í sína menn á
„Hvorugt liðið hefur
riðið neitt sérstaklega
feitum hesti að undan-
förnu og því held ég
að allt geti gerst"
Hótel Selfossi en þar gistu Valsmenn
fram að leiknum mikilvæga.
„Við lukum mótiifð
ekki með þeim hætti
sem við hefðum kosið
en við náðum settu
markmiði."
Enginn vill missa af
stóra deginum
„Ég held að það sé ákveð-
sjónarmið að menn verði
saddir þegar markmiðinu er náð og
svo vom menn komnir með hugann
við þennan leik. Leikmenn fóm var-
fæmislega í tæklingar, vildu ekki
meiðast og forðuðust að fá gul spjöld
svo þeir myndu ekki missa af stóra
deginum. Það em mikil forréttindi
að vera komnir alla leið í úrslit. Það
er mikið talað um að lengja tímabilið
og nú fæ ég tækifæri til að vinna með
mitt lið viku lengur en aðrir þjálfarar
og það fyrir svona raunverulegan
stórleik," sagði Willum Þór Þórsson,
þjálfari Vals. hjorvar@dv.is
bikarinn.
maður mætir. Þá verða gamlir bikar-
sigrar sýndir á breiðtjaldi og að lok-
um veröur síðan rúta sem ferjar alla
stuðningsmennina frá Hlíðarenda
og að Laugardalsvelli.
Hvað gerir Bo?
Bo Henriksen er nafn sem flestir
knattspyrnuáhugamenn á landinu
eru farnir að þekkja. Daninn geð-
þekki kom í sumar til Vals en náði
ekki að festa sig í sessi hjá Hlíðar-
endaliðinu og gekk til liðs við Fram
um mitt sumar. Bo gerði sér Iftið fyr-
ir og gerði bæði mörk Fram sem
sigraði Val 2-1 í deildarkeppninni.
Eftir leiktöldu Valsmenn sig hafa
gert heiðursmannasamkomulag
þess efnis að Bo mætti ekki spila
með Fram gegn Val en Safamýrarlið-
ið sagðist ekkert kannast við það og
því mun Bo Henriksen leika með
Fram gegn Val.
Geir Haarde heiðursgestur
Heiðursgsestur á leik Vals og Fram I
dag er Geir Hilmar Haarde, fjármála-
ráöherra og verðandi utanríkisráð-
herra. Geir Hilmar er KR-ingur að
upplagi en hann er giftur hörðum
stuðningsmanni Skagamanna, Ingu
Jónu Þórðardóttur, sem er systir
Guðjóns Þórðarsonar eins sigur-
sælasta þjálfara í íslenskrar knatt-
spyrnusögu.
Verða í Safamýrinni
Framarar verða með hátíð fýrir alla
fjölskylduna. Iþróttakeppni fyrir
börn, yngri flokkar keppa við for-
eldra I fótbolta, boðið verður upp á
andlitsmálningu, grillaðar verða
pylsur og þá verða gamlir Fram-
búningar seldir á vægu verði.
Hreimur og félagar halda upp fjör-
inu með lifandi tónlist. Svo halda all-
ir Framarar saman frá Safamýrinni í
skrúðgöngu á Laugardalsvöll.
Valur og Fram hafa mæst tvisvar
áður I úrslitaleik bikarkeppninnar.
Fyrra skiptið var árið 1977, þá sigr-
uðu Valsmenn 2-1, mörk þeirra
rauðklæddu gerðu þeir Atli Eðvalds-
son og Ingi Björn Albertsson en
mark Framara gerði Sigurbergur
Sigteinsson. Síðan mættust liðin aft-
urárið 1979en þá sigruðu Framarar
með einu marki gegn engu. Mark
Fram gerði Marteinn Geirsson úr
vftaspyrnu eftir að brotið hafði verið
að Guðmundi Steinssyni.
Hittast á Hlíðarenda
Stuðningsmenn Vals ætla að hitta á
Hlíðarenda klukkan 11:30. Það verð-
ur boðið upp á mikla skemmtun,
þeir Stefán Hilmarsson og Jakob Frí-
mann halda uppi fjörinu, boðið
verður uppá andlitsmálun og töfra-
LÍI
J