Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2005, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2005, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 Fréttir DV Lögreglan er ánægö með niðurstöðu Hæstaréttar í hópnauðgunarmálinu. Ingi- mundur Einarsson varalögreglustjóri segist vera sammála Atla Gíslasyni í mörgu af því sem hann segir um málið en Atli hefur sagt lögregluna þurfa á hugarfars- breytingu að halda í kynferðisafbrotamálum. Ingimundur Einarsson varalögreglustjóri segist ánægður með niðurstöðu Hæstaréttar í máli þar sem kona á fimmtugsaldri kærði þrjá karlmenn fyrir hópnauðgun. Ríkissaksóknari ákærði ekki í málinu og þurfti konan því að fara í einkamál til að sækja rétt sinn. Hún vann málið fyrir héraðsdómi og Hæstarétti og fær yfir milljón í miskabætur. Ingimundur segir bæt- ur þó hrökkva skammt til að græða sárin sem konan hafi orðið fyrir. Sammála Atla „Það er hið besta máf að umræð- ur skapist um þennan málaflokk," segir Ingimundur. „Ég er sammála mörgu því sem Atíi Gíslason lög- fræðingur konunnar segir en það verður að líta til að sönn- unar- jjfrMMMOÉB ^Forsprakkioo sjomúur seoi fisvor íkooúoi m „Þúð erhið bestú máí aÖ umræður skapist um þenrtan máía- flakk." byrðin í svona málum er þung og í okkar kerfi fellur vafinn alltaf sak- bomingnum í vil.“ Fyrir helgi var maður sýknaður af ákæm ríkissaksóknara um að hafa nauðgað konu á klósetti skemmti- staðarins Trafiic í Keflavik en hlutfall sýknudóma í kynferðisafbrotum er mun hærrra en í öðmm sakamál- Atíi Gíslason sagði hins vegar í DV í gær að lögregl- unni veitti ekki af hug- arfarsbreytingu þegar kemur að kynferðisaf- brotum. „Hún virðist eiga margt ólært í rannsókn- um á kynferðisafbrota- málum," sagði Atíi um lögregluna. Eldri konur DV greindi fr á því í gær að mennirnir þrír sem hópnauðguðu konunni séu allir félagar úr Garði í Reykjanesbæ. Sá yngsti og höfuðpaurinn, Heiðar Ágúst Ólafsson, er sjómaður á þrí- Ingimundur Einarsson varalögreglustjóri Anægðurmeð niðurstöðu Hæstaréttar. tugsaldri, frændi hans Haukur Hauksson er öryrki og sá þriðji, Karl Sædal Sveinbjömsson, er verka- maður í Breiðholtinu. Heiðar Ágúst hefur tvisvar áður verið ákærður fyrir nauðganir en í bæði skiptin sýknaður þar sem framburður kvennanna sem kærðu hann vár ekki nógu sterkur gegn ein- dreginni neitun Heiðars. í báðum tilfellunum var um eldri konur að ræða, konur á fimmtugsaldri, líkt og í hópnauðgunarmálinu. Forsaqa Heiðars átti að hafa áhrif í yfirlýsingu frá lögreglunni vegna hópnauðgunarmálsins var sagt frá því að Heiðar Ágúst hefði farið á sjóinn eftir að lögreglan fékk tilkynningu um málið og því hafi hann ekki verið yfirheyrður strax. Spurður hvort forsaga hans skipti ekki máli segir Ingimundur að hver einasti skynsami maður hljóti að sjá að hún hafi áhrif. simon@dv.is andri@dv.is Gámastríð í Mosfellsbæ Grípa á til ráðstafana vegna fjölda gáma sem nú mun hafa verið komið fýrir í óleyfi innan Mosfellsbæj- ar. Þetta kom fram þegar byggingarfulltrúi bæjarins lagði fram yfirlit um stað- setningu óleyfisgáma í sveitarfélaginu, bæði á íbúðarsvæðum og dreifbýli. Fól skipulagsnefridin bygg- ingarfulltrúanum að „grípa til viðeigandi aðgerða." Vestfirskur ráðherra Þau stórtíðindi gerðust á ríkisráðsfúndi í gær að Vestfirðingar eignuðust sinn fyrsta ráðherra í tíu ár. Þá tók Einar K. Guðfinns- son við sjávarútvegsráðu- neyti af Árna Mathiesen. Einar er fýrstí ráðherra sem Vestfirðingar hafa átt síðan Sighvatur Björgvinssson hvarf úr ríkisstjóm árið 1995 og fýrsti vestfirski ráð- herra Sjálfstæðisflokksins síðan Matthías Bjarnason lét af embætti árið 1987. Á síðasta kjörtímabili var Ein- ar lengi vel formaður sjáv- arútvegsnefndar en tók síð- an við formennsku í efna- hags- og viðskiptanefnd. Box styrkt í Firðinum Fallist hefur verið á beiðni Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar til yfirvalda í bænum um að þau aðstoði félagið við húsnæðismál og styrki það til tækjakaupa. „íþrótta- og tómstunda- nefnd leggur til að gerður verði sambærilegur samn- ingur við Hnefaleikafélagið um rekstur og aðstöðu eins og gerður hefur verið við önnur félög," var niður- staða íþrótta- og tóm- stundanefndar á mánudag. Heimilislausa Qölskyldan, sem hefur verið á götunni, íhugar að flytja til Búlgaríu Þurfum að flytja út til að lifa mannsæmandi lífi Anna Valdimarsdóttir hefur verið heimilislaus ásamt barnsföður sín- um og þremur börnum undanfarið hálft ár eftir að fjölskyldan var borin út úr blokkaríbúð í Hafnarfirði vegna vangoldinnar leigu. Síðan þá hefur fjölskyldan verið á hrakhólum og íhugar jafnvel að flytja utan. Þau sögðu sögu sína í DV í síðustu viku. Anna og barnsfaðir hennar, sem eru bæði öryrkjar, dvöldu í Búlgaríu fyrir skömmu og Anna sagði í sam- tali við DV í gær að fjölskyldan íhug- Hvað liggur á? aði það að flytja þangað. „Það má fá gott húsnæði þarna fyrir eina og hálfa milljón, nokkuð sem er ekki mögulegt á íslandi. Við sjáum hvað er að gerast á íslandi. Ellilífeyrisþeg- ar og öryrkjar flytja unnvörpum til Spánar því það er einfaldlega ekki hægt fýrir öryrkja að lifa á Islandi. Við þurfum að flytja út til að lifa mannsæmandi lífi," sagði Anna. Fjölskyldan býr nú á Bjargarstíg en Anna segir að eigandi þeirrar íbúðar sé á leiðinni heim á næst- unni. Félagsþjónustan í Reykjavík ,Ég er farin til Frakklands. Mun syngja þar næstu daga,"segir Sigrún Hjálmtýs- dóttir söngkona.„Fljótlega eftir það liggur á að syngja fyrir grunnskólabörn, undir yfirskriftinni„Tónlist fyrir alla". Upp úrþví fer ég að undirbúa jólakonsertana og svo verð ég með Vínartónleika íjanúar. Inn á milli er ég að undirbúa tvöfalda safnplötu þar sem ég syng blöndu afklassík og dægurmúsík. Dagarnir hjá mér byrjayfirleitt klukkan sjö með rótsterku espressókaffi." hefur boðið önnu og fjölskyldu hennar íbúð á Kleppsvegi en hún segir það vera miður skemmtilegt. „Við erum með þrjú börn sem við þurfum að hugsa um. Við getum ekki alltaf verið að slíta þau úr skól- Anna og fjölskyldan Ihuga að flytja til Búlgarlu til að lifa mannsæmandi llfi. um. Það virðist hins vegar enginn skilja þetta," sagði Anna sem kom sér upp góðum samböndum þegar hún var í Búlgaríu og vonast til að eitthvað komi í ljós á næstunni. Bætupnar græða ðó ekki sórin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.