Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2005, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2005, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 Lífíð OV * 4 * Hljómsveitin Sign rýfur þögnina „Við tókum upp þessa plötu heima hjá okkur í okkar eigin stúd- íói sem heitir Græna herbergið," segir Egill Rafnsson um nýja plötu hljómsveitarinar Sign, Platan sem ber nafiiið Thank God for Silence kemur út þann þriðja október. „Við erum búnir að vinna í þessari plötu f tvö ár með smápásu sem við tók- um þegar við unnum plötuna með pabba,“ segir Eglll en faðir hans og Ragnars söngvara hljómsveitarinar var Rafii heitinn Jónsson tónlistar- maður. „Þetta er búin að vera skemmtileg vinna og aðdáendur Sign verða ekki fyrir vonbrigðum með þessa plötu." Það er útgáfufé- lagið R8iR Music sem gefur plötuna út en það stofnaði faðir þeirra bræðra og ætla þeir bræður að halda merkjum hans á lofti. „Sein- ustu plötur okkur hafa verið gefnar út hjá R&R Music og við ætlum bara að halda því áfram." í tilefiii af útgáfu plötunnar ætlar þeir félagar í Sign að skella sér í tónleikaferð í kringum landið. „Það er alltaf gam- an að spila úti á landi, reyndar er bara ailtaf gaman að spila á tón- leikum," segir Egill um komandi tónleikaferð en hún hefet á Selfossi og endar á Airwaves á tónleika- kvöldi Kerrang. í þessari tónleika- ferð koma hinar og þessar hljóm- sveitir frá hveijum stað til með að hita upp mannskapinn fyrir hið kraftmikla og hnitmiðaða rokk þeirra Signfélaga. Strákarnir í Sign spila kraft- mikiö og hnitmiðað rokk. Segir umtalið vera auglýsinqa brellu Pierce Brosnan segir að framleið- endur nýjustu Bond-mynd- arinnar séu að, nota umræð- umar um hverl leiki næsta Bond sem auglýsinga- bragð. Brosnan lék síðast James Bond, en tilkynnti að hann væri orðinn þreyttur á því að leika njósnarann. í þessari viku kom fram að Pierce hefði áhuga á því að fá sér hristan vodka martini í eitt skipti í viðbót. „Þetta er ef- laust einhver brella. Þetta gerðist líka þegar Sean Connery og Roger Moore léku Bond." Jennifer notaði ekki ungbörn í ilmvatmð Jennifer Lopez er nú að kynna nýjan ilm sem hún fékk snyrtivöruframleiðanda til að út- búa fyrir sig. Ilmurinn hefur fengið nafni Live og á hann að minna á þann sem maður finnur af ungbömum. „Þeir spurðu mig hvað ég vildi nákvæmlega, og ég sagðist vilja ilma eins og höfuð ungbama ilma stuttu eftir að þau koma í heiminn," segir Jennifer. Hún vill þó taka » ffam að engin ^ ungbörnvom ^ notuð til að framkalla þessa sérstöku en ynd- islegu lykt. „Nei, nei, það fóm ekki nein komaböm í flöskur," segir ** stjaman vellykt- ... andi. Tðlvuleikur með Jessicu Alba Hið kynþokkafulla nýstimi Jessica Alba er nú að þróa nýjan tölvuleik. Hún segir hugmyndina hafa kviknað þeg- ar hún var að velta því fyrir sér hvers vegna næstum allir tölvuleikir inni- héldu ofbeldi. Þessu vildi hún breyta og útbúa spennandi leik þar sem hún væri sjálf ein per- sónan. „Þetta er eitthvað sem allir ættu að geta haft gaman af," segir Jessica vongóð. Leikinn á fólk að geta leikið í farsíma og gert ýmis verkefni í í sínum eigin heimabæ sem tengjast leiknum. Nú þegar hefur svipaður leikur farið í gang í Króatíu. „Þegar maður horfir á spennumyndir langar mann í spennu, með þessum leik getur fólk verið með í henni," segir Alba sem nú er í óða önn að finna nafn á leikinn. „Ég er búinn að spá í bolla í rúm 30 ár," segir Kristinn AðaJbjömsson byggingarfræðingur sem hefur opn- að síðuna kaffilestur.com þar sem hann spáir í kaffibolia fyrir fólk. Á síðunni er hægt að kaupa sér aðgang með því að senda SMS og þá fær maður tímabundinn aðgang að spá- dómum Kristins. Eins og sönnum spámanni sæmir segist Kristinn veita fróðleiksþyrstum viðskiptavin- um sínum uppiýsingar um framtíð- ina, ráð varðandi sambönd, ferðalög og fleira sem gott er að vita í tíma. Spámaðurinn nýtir sér nýjustu tækni til að koma speki sinni á fram- færi við fólk en hægt er að senda honum ljósmynd af bolia sem búið er að drekka úr og fá spádóm send- an um hæl með tölvupósti. Alltaf verið berdreyminn „Þetta byrjaði nú ailt þannig að ég er að keyra frá henni Lóu spá- konu sem allir þekkja nú þegar mér datt í hug hvers vegna það ætti ekki að vera hægt að gera þetta bara í gegnum netið," segir Kristinn um upphafið að þessu ævintýri. „Ég hafði þegar í stað samband við tengdason minn Jóhann Breiðijörð og spurði hann hvort þetta væri ekki bara hægt og hann hefur svo aðstoð- að mig við þetta allt saman. En hef- ur Kristinn alltaf haft þessa spá- dómsgáfu? „Ég hef alltaf verið ber- dreyminn og í gegnum mína drauma hef ég oft séð fyrir ókomna hluti, eins hef ég spáð í bolla fyrir fólk í rúm 30 ár." Viðskiptin ganga vel „Ég tel það að í framtíðinni verði þetta góð leið til vinna sér inn pen- inga," segir Kristinn um plön sín um útrás íslenskra spákvenna og spámanna. „f útlöndum er til fólk sem fer ekki úr húsi íyrr 'Si en það er búið að lesa stjömuspána sína,‘ segir Kristinn með sannfærandi mál- rómi. Hann segir við- skiptin ganga vel en ber símafyrirtækjum hér á landi ekki góða söguna. „Þau taka alltof háa prósentu af innkomunni. Hirða eitthvað um 40 til 50 prósent af tekjum sem SMS-in skila inn en maður verður víst að skipta við þau," segir þessi nútímalegi spámaður og byggingarfræðingur að lokum. ,Þetta byrjaði nú allt þannig að ég er að keyra frá henni Lóu spá- konu sem allir þekkja nú þegar mérdattíhug hvers vegna það ætti ekki að vera hægt að gera þetta bara í gegnum netið. m*. Spábolli Hægteraðsenda Kristni mynd af bolla sem búið er að drekka úr með tölvupósti, Kristinn Aðalbjorns- son Byggingarfræðing ur og spámaður. 'VT' Búnir að vinna í þessari plötu í tvö ár Spámaðurinn og byggingarfræðingurinn Kristinn Aðalbjörnsson hefur tekið netið í þjónustu sína. Hann segist alltaf hafa búið yfir sérstökum hæfileikum og telur ekk- ert að því að nýta nútímatækni til þess að koma spádómum til fólks. Byggingarfræðingup spáir í bolla með hjálp netsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.