Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2005, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2005, Blaðsíða 29
DV Lífið MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 29 Nú eru aðeins tveir dagar í að þriðja þáttaröðin af Idol Stjörnuleit fari í gang. Þjóðin er á nálum og bíður spennt. DV ætlar að fylgjast vel með Idolinu í vetur og byrjar núna á því að telja niður fyrir föstudaginn. í dag ætlum við að tala við Siggu Beinteins sem hefur verið verið í dómarasæti frá því að þáttaröðin hófst. „Það þýðir ekkert annað en að vera heiðarlegur við þessa krakka," segir Sigríður Beinteinsdóttir söngkona og Idoldómari. Nú sest hún í dómarasætið í Idol Stjörnu- leit þriðja árið í röð, spenntari en nokkru sinni fyrr. Dómnefndin hefur tekið breytingum en það eru Sigga og Bubbi Morthens sem hafa verið frá upphafi. „Þetta leggst bara voða vel í mig.“ Nóg til af hæfiieikafólki Sigga segir að það sé nóg til af hæfileikafólki á íslandi og fullt af efnilegum söngvurum í keppninni í ár. „Já, það er nóg af hæfileika- fólki. Það kemur náttúrulega upp nýr árgangur á hverju ári og svo er fullt af fólki sem hefur ekki tekið þátt áður,“ segir Sigga. En eru fíeiri lélegir núna en í fyrra? „Mér finnst þetta bara mjög svipað en það er alltaf fólk sem hefur ekki mikla hæfileika sem kemur þarna. Það er samt um að „Ég fékk nú það orð á mig að vera grimmarí í fyrra en árið þar áður." gera fyrir fólk að fara í prufur til þess að fá að vita af eða á. Hvernig standa Palli og Einar sig? „Þeir standa sig bara mjög vel. Þeir eru flottur litur á dómnefnd- inni og stemningin er mjög fi'n hjá okkur,“ segir Sigga. Betra að vera ákveðin Oft hefur verið reynt að líkja ís- lensku dómurunum við erlendar fyrirmyndir. Siggu hefur þá gjarn- an verið líkt við Paulu Abdul en þeir sem vita meira um Idol og kafa dýpra sjá að það er vitavonlaus samlíking. Sigga er mun ákveðnari en Paula nokkurn tímann. Það hef- ur samt ekki alltaf verið þannig. Sigga Beinteins Segir nóg til afhæfileikafólki á Islandi. „Ég fékk nú það orð á mig að vera grimmari í fyrra en árið þar áður,“ segir Sigga. Var það meðvitað? „Mér fannst ég þurfa að taka að- eins betur á þessu. Ég taldi miklu betra að krakkarnir fengu ákveðn- ari og skýrari svör. Það græðir eng- inn á því að að talað sé undir rós," segir Sigga. soli@dv.is Dómnefndin Nýja dómnefndin á eflaust eftir aö vekja stormandi lukku. Ný plata kemur út með hinni sál- ugu sveit Nirvana í nóvember. Platan er safnplata og ber nafnið Silver. Hún inniheldur þrjú áður óútgefin lög ásamt efni úr safn- inu With the Lights out. Það eru þær mæðgur Courtney Love og Frances Bean Cobain sem áttu hugmyndina af þessu og eru harðir aðdáendur hljómsveitar- innar afar ánægðir með uppá- tækið. Sex smáköhDP á dag Það er ekki mörgum sem dettur það í hug að það sé vænlegt að borða bara smákökur til að grennast. Dave Picke hefur sýnt fram á annað. Picke sem var 170 kg þegar hann byrjaði að borða smákökur f öll mál hefur misst rúm 90 kg á þvf að borða aðeins sex smákökur á dag. Picke segist vera rosalega hamingju- samur og hans eina vandamál í dag sé það að öll gömlu fötin hans hangi utan á honum og hann vanti ný. Ozzy hélt hann væri með alnæmi Hinn aldni djöflarokkari Ozzy Os- bourne segist hafa hætt að halda framhjá konu sinni Sharon eftir að honum var tilkynnt að hann væri HlV-smitaður. Prófið reynd- ist að vísu rangt þegar betur var að gáð en Ozzy segist ekki hafa getað hugsað sér að stunda óábyrgt kynlíf eftir þetta áfall. Sharon segist Iftið skeyta um gamalt framhjáhald og segir eig- inmanninn hafa viðurkennt að hafa sængað hjá einhverjum gömlum gálum sem hann hitti á krá. Hún hafi ekki tekið það nærri sér en sfður viljað fá kyn- sjúkdóma þannig að hún hafi niðurstöðurnar til að kenna honum lexíu f Geir Ólafs kenndi Villa WRX á konur JáfurGeir Ólafs „Mig langaði bara að þakka hon- um fyrir að kenna mér á konur," segir Villi WRX sem í gær þakkaði Geir Ólafssyni fyrir rómantískt námskeið opinberlega. Villi fór á námskeið hjá Geir fyrir nokkru og skilaði það ekki veni árangri en svo að hann er kominn á fast með Mar- íu dóttur Hlölla á Hlöllabátum. Allt fýrir tilstilli Geirs Ólafssonar sem að hálfþartinn kom þeim saman. „Hann vildi þakka mér fyrir að hann er farinn að losa reglulega," segir Geir Ólafs reffilegur og sólbrúnn. Hress líka. Geir Ólafsson er eins og alþjóð veit gífurlegur sjarmör og fáar konur sem vildu ekki komast yfir þennan sönglandi gullfugl. Hvar sem hann kemur fram liggja konumar eftir agndofa. Hugfangnar. Þegar þeir félagar Villi og Geir mættu niður í Skaftahlíð átti orða- tiltækið ungurnemur, gamall temur vel við. Geir gekk um og dömumar kiknuðu í hnjánum en VHli fylgdi Rómantfk Villilærði rómantíkhjd Geir Ólafs og fórí göngu með núverandi kær- ustu sinni Mæju. fast á eft- ir og lærði af þeim besta. Villi þakkaði Geir fyrir að kenna sér rómantík. Hann sýndi honum þakklæti sitt með því að kyssa á hring ástarinnar sem Geir bar á hendi og talað er um að Villi hafi fengið aukinn sjarma við að kyssa þennan forláta hring. soli@dvJs Takk herra Ólafs Villiþakkar Geir fyrir að kenna sér rómantlk. Vert er að taka fram að Villi er ekki með sundhettu á hausnum hetdur húfu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.