Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2005, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2005, Blaðsíða 21
DV Sport MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 2 7 Fjórir snúa aftur eftir meiðsli Fjórir leikmenn Middles- brough eru byrjaðir að leika knattsp>Tnu á nýjan leik eftir að hafa verið frá undanfarið vegna meiðsla. Szilard Nemeth skoraði fyrir varalið Middlesbrough í vik- unni en hann lék 45 mínútur í leiknum. Hið sama má segja um Gaizka Mendieta og Chris Riggott en hinn spænski Mendieta hefur ekki spilað síðan hann varð fyrir meiðslum á kálfa í leik gegn Charlton í ágúst. Þetta var fyrsti leikur Riggotts síðan í apríl síðast- liðnum. Þá lék Stuart Pamaby all- an leikinn en hann meiddist á hné á undirbúningstímabilinu. Zidane að verða klár Frakkinn Zinedine Zidane er að verða klár á nýjan leik eftir að hafa meiðst á hné í landsleik gegn írum í byrjun mánaðarins. Búist er við að hann verði á bekknum þegar Real Madrid mætir Olympi- akos í meistaradeildinni í kvöld. Flann byrjaði að . æfa á nýjan leik á $ t mánudag og vonast til að geta verið með 'hr. þegar , \\ franska landsliðið Jp || þann átt- 1AfS unda 19 október. TMfetrí--.- verða orðinn leik- Jf leikinn," sagði Zi- m? dane við franska Jp' f blaðiö L’Equipe. * / Frakkland og Jf 'í / Svisserujöfh , á toppi sfas A riðils í und- ankeppni l HM með sextán stig og leikurinn því afar þýðingarmikill. Varnarvand- ræði O'Leary David O’Leary, knattspymu- stjóri Aston Villa, hefur viður- kennt að hann eigi í miklum vandræðum með að manna sína vöm og að ekkert megi bregða út af eins og staðan er í dag. Flann segir að einungis nýliðinn Gary CahiU geti leyst af ef annað hvort Olof MeUberg eða Liam RidgeweU geta ekki leikið. Martin Laursen á við meiðsli að stríða og verður ekki meira með á tímabUinu og em því góö ráð dýr. O’Leary gaf CahUl, sem var í láni hjá Bumley síðastíiðið tímabil, tækifæri gegn Wycombe í síðustu viku og þótti hann standa sig ágætlega. „Ég varð að láta hann spUa tU að hann öðlist einhverja reynslu," sagði O’Iæary. Önnur umferð Meistaradeildar Evrópu hófst í gærkvöldi. Ensku liðin Arsenal og Manchester United voru bæði í eldlínunni sem og Barcelona. Hann var ekki glæsilegur fótboltinn sem Manchester United bauð stuðnings- mönnum sínum upp á þegar portúgalska liðið Benfica heimsótti enska liðið á Leikhús draumanna. Leikur United var óspennandi og tilviljanakenndur og ef ekki væri fyrir töfra hollensks markahróks hefði liðið aldrei fengið þrjú stig úr leiknum. Liðsuppstilling Man. Utd. var ákaflega áhugaverð í gær og kristaUaði vandræðin sem þeir eiga í með vamarmenn. Miðverðir vom Rio Ferdinand og bakvörðurinn lohn O'Shea. Bakverðir vom kantmaðurinn Kieran Richardson og nýliðinn Phillip Bardsley sem átti eflaust ekki von á því að spUa mfaútu með United í vetur. Það sást strax í upphafi leUcsins að þessir strákar höfðu aldrei leikið saman vörn áður því þeir vom flestir algjörlega úti á túni og United mátti þakka fyrir að fá ekki mörk á sig snemma í leiknum. Sóknarleikur Manchester-pUta var mikið mun betri en varnarleikurinn og heimamenn áttu margar skæðar sóknarlotur á upphafsmfaútunum en oftar en ekki vom sóknarmenn liðsins klaufar þegar þeir vom komnir mjög nálægt marki Portúgalanna. Það var því ekki ósanngjamt þegar Ryan Giggs kom United yfir með marki beint úr aukaspymu skömmu fyrir leikfUé. Þetta var reyndar ekki „huggulegasta" markið sem Giggsy, eins og kappinn er iðulega kallaður, hefur skorað á ferlinum því skotið fór í vamarvegginn og þaðan í hornið fjær en markvörðurinn hafði þegar hreyft sig í hina áttina og gat því Iítið gert. Eftir markið slökuðu bæði lið nokkuð á klónni og biðu sátt eftir því að komast tU búningsherbergja í leikFUéinu. Síðari hálfleUcur fór rólega af stað en Portúgalarnir vom þó ívið kaldari við að sækja. Á 59. mínútu braut Alan Smith fáránlega af sér rétt fyrir utan teig United. Það nýtti Simao, fyrirliði Benfica sér f botn með því að skora glæsUega beint úr aukaspymunni. Frábært mark en markið skrifast algjörlega á Smith. Ólafur Kristjánsson, þjálfari Fram, lýsti leiknum og hann komst vel að orði þegar hann sagði að Smith væri eins og fljúgandi skítakamar út um aUan vöU. Kamarinn sprakk á 59. mfaútu og það kostaði sitt. United var heppið að fá ekki á sig annað mark skömmu síðar en van der Saar varði laglega í markinu og það ekki f eina skiptið í þessum leUc. United-Uðið var heUlum horfið í leUcnum og það var fátt sem benti tíl þess að liðið tæki þrjú stig í ieiknum þegar hoUenski markhrókurinn Ruud van Nistelrooy kom liðinu fil bjargar enn eina ferðina. Boltinn sogaðist tU hans eftir hornspyrnu og HoUendingurinn markagráðugi var ekki í vandræðum með að koma blöðrunni yfir línuna. Hin arfaslaka vörn United hélt það sem eftir lifði leUcs og heimamenn fögnuðu sigri sem var alfarið í boði Nistelrooy enda var United-liðið slakt og leikur liðsins langt frá því að vera sannfærandi. MEISTARADEILDIN A-riðill: B. Munchen-C. Brugge 1-0 1-0 Demichelis (32.). Juventus-Rapid Vín 3-0 1 -0 David Trezeguet (27.), 2-0 Adrian Mutu (82.), 3-0 Zlatan Ibrahimovic (85.). B-riðill: Ajax-Arsenal 1-2 0-1 Freddie Ljungberg (2.), 0-2 Robert Pires, v(ti (69.), 1-2 Rosenberg (71.). Thun-Sparta Prag 1-0 1-0 Hodzic (89.). C-riðill: Barcelona-Udinese 4-1 1-0 Ronaldinho (13.), 1-1 Felipe (24.), 2-1 Ronaldinho (32.), 3-1 Deco (41.), 4-1 Ronaldinho, víti (90.). Panathinaikos-W. Bremen 2-1 1-0 Gonzalez, víti (6.), 2-0 Mantzois (8.), 2-1 Klose (41.). D-riðill: Lille-Villarreal 0-0 Man. Utd-Benfica 2-1 1-0 Ryan Giggs (39.), 1-1 Simao Sabrosa (59.), 2-1 Ruud Van Nistelrooy (85.). Arsenal gerði góða ferð til Amsterdam Mjög mikilvægur sigur Arsenal hefur ekki leUáð vel það sem af er leiktíðinni í Englandi og því áttu ekki margir von á afrekum frá Uðinu er það mætti Ajax í Amsterdam í gær. Liðið fékk óskabyrjun strax á 2. mínútu þegar sænska nærbuxna- módelið Freddie Ljungberg skoraði gott mark. Arsenal notaði tækifærið og bakkaði svolítið í kjölfar marksins og sú leikaðferð heppnaðist ágætlega því Ajax náði ekki að skora f fyrri hálfleiknum. Robert Pires bætti öðru marki við fyrir Arsenal úr vítaspyrnu 20 mfaútum fyrir leikslok og allt útlit fyrir örúggan sigur enska liðsins. Spenna komst í leikinn á ný tveimur mfaútum sfðar þegar Rosenberg minnkaði muninn. Lokamínútur leiksins voru spennuþrungnar en vörn Arsenal hélt og liðið fagnaði mikilvægum og kærkomnum sigri, sem gæti reynst drjúgur þegar upp er staðið f riðlakeppninni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.