Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2005, Blaðsíða 10
70 MIÐVIKUDAGUR28. SEPTEMBER2005
Fréttir DV
Rúnar er vandvirkur rithöf-
undur og þýöandi.
Helstu gallar hans eru
feimni sem kemur i veg
fyrir að hann nái þeim
hæðum í faginu sem
hann gæti annars.
„Rúnar er með vönduð-
ustu mönnum. Skilar af
sér góðum verkum og
leggur alúð I allt sem
hann gerir. Traustur Vest-
firðingur með heimsborgara-
lega sýn. Ég þekki hann bæði I
gegnum vinnu og sameiginleg
áhugamál. Rúnar mætti stund-
um hafa meira sjáifstraust.
Hann hefur alveg innistæðu fyr-
irþvi."
Jón Karl Helgason,
bókmenntafræðlngur.
„Helsti kostur Rúnars er
sá að hann kann að taka
gagnrýni og bregst ekki
ókvæða við þótt ekki sé
eingöngu ausið á bækur
hans lofi. Það bendir til þess að
hann hafi sterka sjálfsmynd. Þá
er hann einn afokkar bestu
þýðendum. Það er galli að hann
er ekki góður I að markaðssetja
sig. Þvi fær hann ekki jafn mikla
athygli og hann á skilið."
Soffla Auður Birgisdóttir bókmennta-
fræðingur.
„Ég getþakkað Rúnari
það að mér tókst stund-
um að fela feimni mina,
þvi hann var nefnilega
enn feimnari. Rúnarer
skarpgreindur og vandvirkur
dugnaöarforkur með ríka
ábyrgðarkennd. Efhann tekur
eitthvað að sér stendur þaö og
yfirleitt hefur hann lokið þvi
áður en ætlast er til. Helsti galli
Rúnars er að hann á það til að
verða full gagnrýninn á sjálfan
sig."
Astráöur Eysteinsson prótessor.
Rúnar Helgi Vignisson er fæddur driö 1959.
Hann hefur I nokkurn tíma verið afkasta-
mikill þýðandi á helstu bresku og banda-
rísku höfundum samtímans. Nú sendir
hann frá sér skáldsögu á eigin forlagi,
Græna húsinu.
Enn ósamið
við Kjartan
Enn hefur ekki verið
gengið frá kaupum Reykja-
víkurborgar á landi Kjartans
Gunnarssonar i Norðlinga-
holti. Eins og DV greindi frá
fyrr á árinu vildi Kjartan fá
um 130 milijónir króna fyrir
4 hektara sem hann á en
borgin vildi aðeins greiða
um 50 miUjónir. Stefndi í að
ágreiningurinn færi á borð
Matsnefndar eignarnáms-
bóta. Málið mun hins vegar
vera komið í hendur VU-
hjálms H. Vilhjálmssonar
hæstaréttarlögmanns sem
er fuUtrúi Reykjavíkurborg-
ar og einkahlutafélagsins
Rauðhóls sem sameinast
hafa um uppkaup lands og
skipulagningu Norðling-
holts.
Lúxusbílafloti ráðherranna var glæsilegur á að líta þegar hann renndi í hlað
Bessastaða í gær. Ellefu af þrettán ráðherrabílum eru þýskir. ________
Davíð Mætti
áBMW.
Guðni einn á jeppa
Árni Magnússon kom fyrstur á
eyðimerkurljóninu Wolksvagen
Touareg og Sturla Böðvarsson fast á
hæla hans á alveg eins bU. Árni
Matthiesen kom næstur á mjög svöl-
um BMW og það gerði lUca Geir H.
Haarde sem kom næstur. Þá mætti
Bjöm Bjamason á svörtum
Mercedes Bens og í kjölfarið Guðni
Ágústsson á svörtum Pajero-jeppa.
Sigríður Anna Þórðardóttir kom að
sjálfsögðu á umhverfisvænum Lexus
og næstur á eftir henni Jón Krist-
jánsson á Audi.
Davíð keyrir BMW
Næst kom sjálfur Halldór Ás-
grímsson á svörtum BMW eins og
Geir og Ámi Matthiesen en næst
kom Þorgerður Katrín á Audi eins
og Jón. Þá mætti Davíð Odds-
son á BMW og var sú tegund þar
með JUutskörpust.
Valgerður Sverrisdóttir kom
næst á Bens og setti tegundina
þar með í annað sætið. SvolítU
bið var svo í að maður dagsins,
Einar K. Guðfinnson, mætti á
svæðið á Bens og réði þar með
úrslitunum sem vom jafntefli
mUli Bens og BMW. Annars em
þýskir bflaframleiðiendur í mildu
uppáhaldi hjá íslensku ríkis-
stjóminni með 11 stig af 13.
svavar@dv.is
Meðan rokið hvein á Bessastöðum í gær sat Davíð Oddson sinn
síðasta ríkisráðsfund. Fyrir utan biðu fjölmiðalamenn, samhent-
ir en sjálfstæðir í mótbyrnum.
Meðan beðið var eftir ráðhermm
vom fréttir ræddar. Meðal annars
þær að Halldór gaf Davíð leyfi tfl að
hætta, Geir H. Haarde var settur ut-
anríkisráðherra, Áma Mathiesen var
gerður að fjármálaráðherra og Einar
K. Guðfinnsson að sjávarútvegsráð-
herra. Svo var Halldór fúll út í fram-
göngu fjölmiðla í Baugsmálinu.
Maður bjargaðist af bandarískri skútu í fyrrinótt en félagi hans er talinn af
Ótrúleg ölduhæð og brjálaður vindur
„Þetta vom frekar erfiðar aðstæð-
ur,“ segir Björn Brekkan Bjömsson
sem flaug þyrlu Landhelgisgæslunnar
TF-Líf í björgunarleiðangri í fyrrinótt.
NeyðarkaU barst rúmlega tvö frá
neyðarsendi sem var staðsettur rúm-
lega níutíu sjómflur norðvesmr af
Straumnesi við ísafjarðardjúp. Síðar
kom í ljós að neyðarkaUið var frá
bandarískri skútu sem heitir Vamos.
Vitað var að tveir menn vom um borð
í skútunni. Syn, flugvél Landhelgis-
gæslunnar, og þyrlan TF-Lff vom
báðar sendar á staðinn. Annar mað-
urinn fannst heUl á húfi í bátnum en
félagi hans hefur ekki enn fundist og
er talinn af.
„Syn var búin að finna bátinn þeg-
ar við komum og hafði náð sambandi
við manninn. Eftirleikurinn var því
auðveldari fyrir okkur," segir Bjöm.
Ekki þurfti að senda sigmann niður í
skútuna þar sem manninum tókst að
koma sér sjálfur í björgunarlykkju.
Ekki tók nema um fimm mínútur að
hífa manninn upp. Að sögn Bjöms
vom aðstæður á vettvangi mjög
slæmar. „Það var tíu tíl fimmtán
metra ölduhæð og vindur var um
þrjátíu metrar á sekúndu." Vegna
þessara slæmu aðstæðna segir Björn
að þyrlan hafi ekld getað verið lengi á
vettvangi, ekki lengur en hálftíma.
Þrátt fyrir erfiða björgun um nótt-
ina var Bjöm brattur í gær enda í mjög
góðu formi. „Við æfum mjög stíft auk
þess sem við fáum um 120 tU 160 út-
köU á ári og erum því orðnir nokkuð
sjóaðir í þessu þrátt fyrir að það sé
sjaldgæft að það sé svona vont veður. “
Aðstæður ömurlegar TF-Uf bjargaöi manni
af bandariskri skútu I fyrrinótt. Félagi manns-
ins hefur ekki enn fundist og er talinn af.