Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2005, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2005, Page 39
DV Síðast en ekki síst MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 20RS 39 Eitt síðasta verk Davíðs Oddsson- ar sem utanríkisráðherra var skipun Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur í sendiherrastöðu í Suður-Afríku. Fyrir bragðið flytur Sigríður Dúna til Pretoríu innan skamms og hefur þar störf í þágu lands og þjóðar. Sigríður Dúna er gift Friðriki Sophussyni, forstjóra Landsvirkjun- ar, og hann getur alls ekki flutt höf- uðstöðvar stofnunarinnar til Afríku. Þó hann vildi gjarnan fylgja eigin- konu sinni þvert yfir hnöttinn ef þyrfti. Hann verður því um kyrrt á heimili þeirra hjóna á Bjarkargöt- unni rétt fyrir ofan Hljómskálagarð- inn í miðbæ Reykjavíkur. Þau Friðrik og Sigríður Dúna stefna því í fjarbúð; sambýlisform sem mjög hefur rutt sér til rúms í höfuðborginni að und- anförnu og þá sérstaklega í miðbæn- um; 101. Þegar fréttir bárust um skipan Sig- ríðar Dúnu í sendiherraembætti hafði Friðrik á orði í fjölmiðlum að hann yrði að muna eftir að koma við í blómabúð á leiðinni heim. Hann samgladdist konu sinni og vissi sem var á hverju var von. Traust samband þeirra á eflaust eftir að þola langar fjarvistir en það er eitt af grundvallar- skilyrðum fjarbúðar. Fræðimenn hafa fjallað um kosti og galla fjarbúðar í ritum víða um heim en sambúðarformið á rætur sínar að rekja til New York og oft kennt við Woody Allen. Þegar Woody flutt- i út frá Miu Farrow, þáverandi eigin- konu sinni, gátu þau veifað hvort öðru út um stofuglugga sína á Man- hattan. lengri var ekki fjarlægðin. Sfð- ar varð hún meiri en þá hafði fjarbúð- inni reyndar verið slitið og hreinn skilnaður tekið við. Helstu kostir fjarbúðar, að mati sérfræðinga, er sameiginleg hvíld frá amstri dagsins og möguleiki á að rækta eigin áhugamál án afskipta maka. Þykir sambúðarformið í því til- viki þroskandi. Þá verða endurfundir, þó skammur tími líði, endurnærandi fyrir sambandið og eykur á ástríður sem í hefðbundnum samböndum geta dofnað í stöðugu samneyti og áreiti sem fylgir. Friðrik Sophusson býst þó eins við að hverfa til eiginkonu sinnar þegar fram líða stundir. En þangað til verð- ur fjarbúðin hlutskipti þeirra hjóna. Til heilla ef að líkum lætur. Það sanna íjölmörg, vel heppnuð fjarbúðarsam- bönd sem veitt hafa mörgum hjónum nýja sýn á sameiginlegt líf sem er þess virði að því sé lifað. rgun * * Allhvasst Nokkur vindur Nokkur vindur * é T Strekkingur Eins og evrópska reiknistofnunin fann út og sagt er frá á síðu 14 ( DVídagþarfkaldi september ekki að vera ávísun á fimbulvetur. Þannig er hægt að horfa löngunaraugum til y mánaðarmóta því þá verður allt miklu /É betra. Dagarvins :S og rósa eru framundan. Nokkur vindur Allhvasst Allhvasst Nokkurvindur Nokkur vindur Strekkingur r nahöfn París Beríín Frankfurt Madríd Barcelona 16 Alicanti 19 Mílanó 15 NewYo 20 San Fra 21 Oríandi Stokkhólmur Helsinki London Síðast en ekki síst • Davíð Ólafur Ingi- marsson, systurson- ur Davíðs Oddsson- ar, sem tilkynnt hef- ur þátttöku sína í prófkjöri sjálfstæði- manna í Reykjavík og stefnir á sjöunda sætið, er einnig stórættaður í föður- ætt. Meðal föður- bræðra hans má nefna Eggert feld- skera á Skólavörðu- stígnum og Friðrik Jóhannsson, sem lengst af var framkvæmdastjóri Björgólfsfeðga hjá Burðarási... • Páll Vilhjálmsson, sem titlar sig blaðamann þegar hann skrifar rógs- greinar um Baug í Morgunblaðið, er kvæntur Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur, blaðamanni á Morg- unblaðinu. Starf hennar þar felst í því að gera verðkannanir í matvörubúðum og er það athyglisvert í ljósi hvatningar Jón- öiu Ben til ritstjóra blaðsins um að láta Europris koma betur út en Bónus í verðkönnun... • Töluverð eftirspum er nú eftir endurflutningi á Kvöldgestum Jónasar Jónassonar á Rás eitt þar sem Jónas ræddi við Jón Gerald Sullenberger. Lýsingar Jóns Ger- alds á bamæsku sinni áís- landi vom átakan- legri en svo að tár- um tæki og var helst á piltinum að skilja að enginn á íslandi hefði verið góður við hann. Er hér með skorað á Ríkisút- varpið að endurflytja þátt Jónasar á besta tíma... • Jónína Ben hefur fengið óvænta samkeppni um flmmta sætið á framboðslista sjálfstæðismanna vegna borgarstjórn- arkosninganna í Reykjavflc. ökuþór- inn Birgir Þór Braga- son hefúr tilkynnt framboð sitt og vill hann lflca fimmta sætið. Birgir ætlar að beita sér fyrir bættri umferðar- menningu í Reykjavflc og er með stórbromar og góðar hugmyndir þar um. Einnig vill hann að ung- lingar verði látnir taka sóló-próf á bfla lflct og flugmenn og fái ekki að aka nema einir í bíl fyrsm sex mán- uðina. Birgir Þór verður Jónínu skeinuhættur ef að líkum læmr... • Margrét Hrafnsdóttir, systir Bjöms Inga aðstoð- armanns forsætis- ráðherra, prýðir næsm forsíðu Mannlífs. Þar birtist Margrét fáklædd og dásamar áralangt sam- band sitt við fjölmiðla- kónginn Jón Óttar þrátt fyrir 25 ára ald- ursmun sem hún mælir með frekar en hitt. En Margrét er glögg þegar hún seg- ir; „Hjónabandið er erfiðasta verk- efnið...“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.