Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2005, Síða 14
74 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
■
'■ íflíssr*^
Skaqamenn
ig
skrifa undir
Starfsmannafélag Akra-
ness skrifaði undir nýjan
kjarasamning við launa-
nefnd sveitarfélaga i fyrra-
kvöld. Þann þrítugasta
ágúst var samþykkt á fé-
lagsfundi a boða til verk-
falls en metþátttaka var á
fundinum. Verkfallinu hef-
ur nú verið frestað til ní-
unda október og verður
endanlega aflýst verði
samningurinn samþykktur.
Verkfallið hefði meðal ann-
arra náð til starfsmanna
skóla, leikskóla, dvalar-
heimilis aldraðra og bæjar-
skrifstofu. Nýji samningur-
inn kveður á um 22 prósent
hækkun til 2008.
Ráðistá
aldraða konu
Um helgina fékk lögregl-
an í Vestmannaeyjum boð
um að ráðist hafl verið inn í
íbúð konu á sjötugsaldri og
henni hent utan í vegg og
sparkað í hana. Ástæðan
mun veræstVað konan
kvartaði yfir hávaða sem
barst frá íbúð sem er fyrir
ofan hana. Gestir íbúðar-
innar voru eitthvað ósáttir
við afskiptasemina sem
endaði með því að ein-
hveijir af gestunum réðust
á hana. Konan var flutt á
sjúkrahús og lögð inn þar
sem talið var að hún væri
með sprungur í tveimur
hryggjaliðum.
Allir klessa á
Hellisheiði
Á mánudagsmorgun
voru akstursskilyrði
á Hellisheiði og f
Svínahrauni slæm
vegna krapa, hálku
og hvassviðris. Ein
bifreið fór útaf og
valt við Litiu-Kaffi-
stofuna. Rétt ofan
við Kamba fór lítil
fólksflutningsbifreið
út af veginum. Fjórir far-
þegar voru í bifreiðinni og
slasaðist einn lítilsháttar.
Jeppabifreið stöðvaði í veg-
kantinum til að aðstoða en
vildi ekki betur til en að
annar bíll kom og ók aftan
á jeppann. Sjö manns slös-
uðust minni háttar í þess-
um óhöppum en eignar-
tjón var talsvert.
SÍF græðirá
laxi
SÍF hefur snú
ið rekstri sínum
við og var hagn-
aður fyrstu sex
mánuði ársins
rúmar211 millj-
ónir króna. Á
sama tímabili í
fyrra nam tapið um 130
milljónum. Astæðan er
meðal annars sala á
nokkrum dótturfélögum.
Þá jókst söluverðmæti á
reyktum laxi og „fois gras'*
(afurð úr anda- og gæsalif-
ur) í Frakklandi og á Spáni.
Sigurður Þ. Ragnarsson er með nýjustu gögn undir höndum um veðrið í vetur.
Þegar hann rýnir í spár evrópskra reiknimiðstöðva fær hann glögga mynd af vetr-
inum.
IRI Muld-Model Probability ForeoastforPredpitation
forOctober-November-Deoember2005, Issued Soptomber 2005
PcíconUía UuiUiood of:
ITlfetovo-rotmal Pr»opiu«»Mi |Nj Naai-raniul PMOf.Ui.Mi |f| Bdow-immal Pioapilalion
Wiíu moíom ovotlaod tiava dauMMpcii p«cx>atai*« D DrySasion Uaskang
rf 11 , f.
0 > í
v \ rv'
Evrópsk langtíma-
spá Sýnir okkur veðr-
ið i vetur.
Probabllity (%) of Most Likely Category
Normal Above-Normal
□ r~r~i-------------------
40 40 45 50 60 70
Met OfTice : More likely 2m tempercrture tercile categories Oct/Nov/Dec
Issuod : Septsmber 2005__________________________________________________
::;' t
Kaldasti septembermánuður frá því mælingar hófust vekur ugg
hjá fólki og telja margir að kuldakastið sem nú gengur yfir sé að-
eins lognið á undan storminum og framundan sé fimbulvetur.
Siggi Stormur er með spár evrópskra reiknimiðstöðva undir
höndum og úr þeim má lesa ýmislegt um veðrið fram á vor.
„Þetta er ömurleg byrjun á hausti
og afskaplega sorglegur endir á lélegu
sumri," segir Sigurður Þ. Ragnarsson,
jarð- og veðurfræðingur, oft nefndur
Siggi Stormur, um kaldasta septem-
bermánuð síðan mælingar hófust.
Sigurður er svolítið hugsi yfir bakslag-
inu í þeirri góðviðraþróun sem verið
hefur undanfarið og hann átti ekki
von á að fá svo kaldan september.
Suðlægar áttir og úrkoma
„Þessi kuldakafli núna er þó eng-
inn staðfesting á að framundan sé
kaldur vetur. Hinsvegar eru menn
með ýmsum aðferðum að finna út
hvernig veturinn komi til með að
þróast og það bendir margt til þess
að loftþrýstingur í Evrópu verði með
hærra móti í vetur sem þýðir að suð-
lægar áttir gætu orðið algegnar.
Gangi þetta eftir má búast við að
veturinn verði mildur en þar sem við
fáum hlýtt loft úr suðri gæti hann
orðið úrkomusamur," segir Sigurður
um útkomu evrópskra langtíma-
spáa.
„Þessi kuldakafli
núna er þó enginn
staðfesting á að
framundan sé fimbul-
vetur"
Nokkrar gráður
„Ef við lítum á gróðurhúsaáhrifin
ein og sér þá er magn gróðurhúsa-
lofttegunda í sögulegu hámarki og
því er ástæða til að ætla að við eigum
inni nokkrar gráður til hækkunar á
hita. Sjávarhiti rennir einnig stoðum
undir þá kenningu að veturinn verði
mildur," segir Sigurður eftir að hafa
lagt mat á fyrirliggjandi gögn.
Grámygla
„Ef loftþrýstingur verður mjög
hár yfir Skandinavíu þá leiðir það til
þess að lægðagangur yfir landinu
verður með meira móti sem þýðir að
veturinn verður vindasamur. .Niður-
staðan er því þessi að ég spái mild-
um, frekar vindasömum og
grámyglulegum vetri svo lands-
menn skulu treysta á öflugt menn-
ingarlíf og óvæntan gleðskap frá rík-
isstjórninni í grámyglunni," segir
Sigurður.
Spá Veðurklúbbsins væntan-
leg
Þess má geta að Veðurklúbbur-
inn á Dalvík heldur fund í byrjun
næsta mánaðar þar sem gerð verður
spá fyrir komandi vetur. DV mun
birta niðurstöðurnar um leið og þær
berast. svavar@dv.is
Átelur seinagang borgarstjóra
komast á skíði strax
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, átelirr harðlega að
stjóm Skipulagssjóðs Reykjavíkur hafi
enn ekki tekið fyrir samþykkt íþrótta-
og tómstundaráðs frá 2003 tim að
hefja viðræður við eigendur jarðar-
innar Stardals um kaup borgarinnar á
landinu undir skíðasvæðinu í Skála-
felli.
Kjartan segist hafa
reynt að hreyfa við
málinu í mars á
þessu ári með til-
lögu um Skipulags-
sjóður tæki slíkar
viðræðuruppogað
Orkuveitu
Reykjavíkur
þrði boðin
pðild að
þeim vegna
Inigsanlegr-
lar nýtingar
jarðhita á svæðinu. Borgarstjóri hafi
þá óskað eftir frestun málsins en heit-
ið því að taka það upp á næsta fundi:
„Þrátt fyrir að næstum sex mánuð-
ir séu liðnir frá því tillagan var lögð
fram af undirrituðum,
hefur hún ekki enn
hlotið afgreiðslu á,
vettvangi stjómar I
sjóðsins, eins og lög ’
gera ráð fyrir," segir
Kjartan og krefst skýr-
inga að því er fram kem-
ur í nýjustu
fundargerð
Skipu-
lags-
sjóðs.
Kjartan Magnússon Átel-
ur harðlega að ekki skuli
farið að lögum i stjórn
Skipulagssjóðs Reykjavíkur
vegna kaupa á skíðasvæð-
inu í Skálafelli.
Hvalreki hjá hinni nýju Októberbíófest
Tarantino til (slands
önnur lokamynd kvikmyndahá-
tíðarinnar Októberbíófest, sem fs-
leifur Þórhallsson stendur fyrir,
verður Hostel eftir íslandsvininn Eli
Roth. í myndinni leikur Eyþór Guð-
jónsson, sem meðal annars er
þekktur fyrir að hafa verið kærasti
Lindu Pétursdóttur þegar hún var
kjörin ungfrú ísland 1988. Efht verð-
ur til sérstakrar galasýningar 12.
nóvember og svo verður slegið upp
miklu teiti á skemmtistað í Reykja-
vík.
Þetta kemur fram í tiikynningu
frá ísleifi sem jafnframt staðfestir
orðróm þess efnis að von sé á sjálf-
um Quentin Tarantino en hann er
einn framleiðanda myndarinnar.
Tarantino mun hafa um langa hríð
vera spenntur fyrir því að sækja ís-
land heim ekki síst vegna fagurra
lýsinga Eli á landi og þjóð.
Quentin Tarantino er einn þekkt-
asti kvikmyndaleikstjóri seinni tíma
en honum skaut upp á stjörnuhim-
ininn með myndinni Pulp Fiction
1994.