Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2005, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Tindur á
Litla-Hraun
Tindur Jónsson, höfuð-
paurinn í hrottalegri lík-
amsárás sem framin var í
einbýlishúsi við Bæjargil í
Garðabæ aðfaranótt
síðastliðins sunnudags, var
í gær dæmdur til að sæta
gæsluvarðhaldi á Litla-
Hrauni til 2. desember.
Tindur er grunaður um til-
raun til manndráps. Rann
fyrri gæsluvarðhcdds-
úrskurður yfir honum út í
gær. Árásin var hrottaleg.
Sautján ára drengur var
högginn með sveðju og
höfuðkúpubrotinn. Með
árásinni rauf Tindur
tveggja ára skilorð sem
hann hlaut fyrir líkamsárás.
Lögreglan í Hafnarfirði
segir að sveðjan sem notuð
var í árásinni í Bæjargili
hafi fundist fyrr í vikunni.
Kristján Ó. Guðnason að-
stoðaryfirlögregluþjónn
segir ekki hægt að greina
frá því hvenær eða hvar
sveðjan hafi fundist. Vitni í
málinu hefur þó sagt að
Tindur hafi farið heim til
sín eftir árásina, skipt um
föt og mætt aftur í partíið í
Bæjargili, áður en lögreglan
kom. Fórnarlamb árásar-
innar er komið af gjörgæslu
og liggur á almennri deild
Landspítalans.
Dópá
skemmtistað
Lögreglan í Keflavík
handtók mann á þrítugs-
aldri aðfaranótt föstudags
vegna gruns um brot á
fíkniefnalöggjöfinni. Þegar
lögreglan hóf afskipti af
manninum var hann stadd-
ur inni á skemmtistað í
Reykjanesbæ. Við leit á
honum fannst smáræði af
amfetamíni og tvær töflur
sem taldar eru vera e-töfl-
ur. Manninum var sleppt
að loknum yfirheyrslum en
má búast við ákæru.
Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, er enn rúmliggjandi
eftir hið hörmulega slys á sundunum við Viðey þegar skemmtibátur formannsins
steytti á skeri með þeim afleiðingum að tveir samferðamenn hans létu lífið. Hvorki
Sjómannasamband íslands né Sjómannafélag Reykjavíkur hafa fjallað um mál
Jónasar og er þess beðið að hann snúi aftur til starfa.
Jónas Garðarsson
Ávarpar hér féiaga sína á
sjómannadegi í Reykjavík.
Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur hefur ekkert fjallað um mál
Jónasar Garðarssonar, formanns félagsins, sem lenti í hörmu-
legu sjóslysi er skemmtibátur hans steytti á skeri á Viðeyjarsundi
fyrir skemmstu með þeim afleiðingum að tveir samferðamenn
hans létust.
„Við lítum á þetta sem hvert ann-
að slys og berum fullt traust til
Jónasar," segir Birgir Hólm Björg-
vinsson, stjórnarmaður í Sjómanna-
félagi Reykjavlkur og náinn sam-
starfsmaður Jónasar. „Traustið er
ekki aðeins okkar hér í stjórninni
heldur á við um alla sjómenn á ís-
landi," bætir hann við.
Góður siglari
Birgir Hólm dregur mjög í efa að
Jónas hafi sjálfur verið við stýri
skemmtibátsins þegar hann steytti á
skerinu úti á sundunum rétt við höf-
uðborgina.
„Jónas er góður siglari og frægur
sem slíkur. Þá er hann mjög varfær-
inn og þekkir sundin manna best. Ég
tel það mjög ólíklegt að hann hafi
verið undir stýri," segir Birgir Hólm.
Beðið eftir Jónasi
Jónas Garðarsson er ekki enn
kominn til starfa hjá Sjómannafé-
laginu en félagar hans bíða eftir
honum: „Við bjóðum hann velkom-
inn um leið og hann hefur náð sér.
Þau hjón eru í sárum og það hljóta
allir að skilja að svona slys tekur á
„Jónas er góður siglari
og frægursem slíkur. Þá
er hann mjög varfærinn
og þekkir sundin manna
best."
sálina," segir Birgir
Hólm en sjálfur vill
Jónas Garðarsson
ekkert tjá sig. Þegar
DV reyndi að ná tali
af Jónasi í gær var
hann rúmliggjandi
og komst ekki í síma.
Rannsókn ólokið
Sjómannasam-
band Islands hefur
heldur ekki fjallað
um mál Jónasar
Garðarssonar:
„Rannsókn er ekki unurw5Wrn
lokið og á meðan \ féiagiReykja\
íjöllum við að sjálf- *———---
sögðu ekkert um það,“ segir Hólm-
geir Jónsson, framkvæmdastjóri
samtakanna.
ms \ -■
u........
Birgir Hólm Björgvinsson
Lýsiryfir fullu trausti sinu og
allra sjómanna á Jónasi og
biðurþess eins að hann komi
aftur til starfa hjá Sjómanna-
' víkur.
Bátur Jónasar Komið á þurrt eftir
hörmulegt slys á Viðeyjarsundi.
Dæmdur í öryggisgæslu en ekki er pláss á Sogni
og reynda að kyrkja eiginkonuna
Heyrði raddir
Karlmaður á sextugsaldri var í
gær dæmdur í Héraðsdómi Reykja-
víkur til að sæta öryggisgæslu á Rétt-
argeðdeildinni á Sogni. Maðurinn
hafði reynt að kyrkja eiginkonu sína.
Dómurinn taldi sekt mannsins
sannaða en samkvæmt áliti geð-
læknis og læknaráðs er hann ósak- -
hæfur.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa ráðist aftan að eiginkonu sinni í
ruslageymslu íjölbýlishúss í Breið-
holti í lok apríl á þessu ári. Þar brá
hann snæri um háls hennar og herti
að. Við árásina þrengdi maðurinn
Hvaö liggur á?
svo að öndunarvegi konunnar að
hún missti meðvitund, hlaut húð-
blæðingar í andliti og augnhvítu, auk
þess að meijast á hálsi. Iitlu mátti
muna að verr færi.
Maðurinn bar við aðalmeðferð að
ranghugmyndir hefðu ráðið gjörð-
um hans og þær hefðu verið á þá leið
að hann taldi konu sína hafa verið
sér ótrúa. Þegar árásin átti sér stað
kvaðst hann hafa heyrt raddir í höfði
sínu sem hefðu hrópað: „Hvað ertu
að gera?“ Við það hafi hann sleppt
takinu.
Eftir árásina í ruslageymslunni
var konunni komið undir læknis-
hendur og manni hennar ekið á geð-
defid. Hann hefur sætt öryggisgæslu
í gamla Síðumúlafangelsinu síðan
þrátt fyrir mótmæli Brynjólfs Ey-
vindssonar, lögmanns hans. „Hon-
um var lofað plássi á Sogni þegar
hann beið dómsins, í stað þess að
vera í Síðumúlanum. Það var svikið,"
segir hann.
Brynjólfur segir manninn sætta
sig við niðurstöðuna en bætir við að
Breiðholt í ruslageymslu fjölbýlishúss í
Breiðholti reyndi maður á sextugsa/dri að
kyrkja eiginkonu sina.
málið í heUd sinni sé fjölskylduharm-
leiktir sem aldrei hefði orðið ef ekki
hefði verið fýrir veUdndi hans. „Fjöl-
skyldan hans stendur þétt við bakið á
honum í veUdndunum og hefur verið
dugleg að heimsækja hann í Sfðu-
múlann," segir Brynjólfur.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust á Sogni er ekki pláss fyrir
manninn þar.
gudmundur@dv.is
Sogn Samkvæmt upþlýsingum frá Réttar-
geödeiidinni á Sogni er ekki pláss fyrir
manninn.
„Þaö liggur náttúrulega á að komast suður,“sagði Geirmundur Valtýsson tóniistar-
maður þegar DV náði tali afhonum á leið til Reykjavíkur í gærkvöldi.„Það liggur nátt-
úrulega líka á að skemmta fólkinu fyrir sunnan um helgina. Maður verður að vera í
gírnum, fyrst maður er kominn afstað."