Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2005, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2005, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 Helgarblað í byrjun þessa árs var óhjákvæmilegt að loka bráða- móttöku við Sjúkrahúsið Vog vegna fjárskorts. Bráðamóttakan hafði verið rekin undanfarin tvö ár en lokun hennar bitnar að sjálfsögðu á þeim sem eru veikastir. Þórarinn Tyrfingsson læknir á Vogi hefur af þessu þungar áhyggjur. „Bráðamóttakan á Vogi var fyrst og fremst hugsuð fyrir þá sem voru á biðlistum, fólk sem hafði beðið um pláss en komst ekki inn alveg strax," segir Þórarinn Tyrfingsson læknir á Vogi. „Þeir einstaklingar geta lent í mjög slæmum vandræðum. Meðan bráðamóttakan var opin höfðu þessir einstaklingar möguleika ásamt sín- um aðstandendum á að koma hingað uppeftir og fá viðtal við ráðgjafa á staðnum. Hann gat þá metið ástandið og fengið lækna sem vom vakt- hafandi á sjúkrahúsunum til að meta ástandið með sér. í framhaldi af því var oft gripið til að- gerða eins óg bráðainnlagna." Fordómar enn til staðar Þórarinn bendir á að á slysavarðstofum og bráðamóttökum sé takmarkaðar lausnir að hafa. „Þar er ekki gert ráð fyrir að verið sé að fást við fíknisjúkdóma eða stöðuga neyslu, sem getur verið lífshættuleg. Læknar á öðrum sjúkrahús- um em meira að fást við fylgikvilla sem koma upp í neyslunni eins og slys, sýkingar og líkam- leg veikindi. Lokun bráðamóttökunnar á Vogi bimar svo að sjálfsögðu á þeim sem verst em staddir og veikastir." Varðandi viðhorf til alkóhólisma segir Þórar- inn það hafa breyst á þeim 28 árum sem SÁÁ hefur starfað. Þó beri enn á fordómum. „Við erum orðinn sjálfsagður hlutur í heildarheilbrigðisþjónustunni og menn ætla okkur ákveðið hlutverk þar. Við njót- um ágætrar virðingar að ég tel í þessu sam- starfi," segir Þórarinn. „Aftur á móti höfum við eins og aðrar heilbrigðisstofnanir geng- ið í gegnum miklar breytingar frá árinu 1991 vegna breyttrar heilbrigðisþjónustu og aukins kostnaðar." Enginn frá heilbrigðisráðaneyti Á fjölmennum baráttufundi SÁÁ fyrir opnun bráðamóttöku, sem haldinn var í Háskólabíói í vikunni, stigu stjómmálamenn í pontu og lýstu yfir stuðningi við frábært starf SÁÁ. Þar var þó enginn frá heilbrigðisráðuneyti. Þórarinn segist þó hafa fulla samúð með starfsfólki þess ráðu- neytis. „Það er fýrst og fremst athyglisvert hvað ráðuneytinu er búin léleg aðstaða. Starfsmenn fá ekki tíma og fjármuni til að stýra og kostnaðar- greina alla þessa hluti. Ráðuneytið er vanrækt og svo er ætlast til að það leysi einhver vandamái. Þessu þarf að breyta." Mikil framþróun Sjúkdómshugtakið alkóhólismi hefur vafist fyrir mörgum en Þórarinn segir hafa orðið já- kvæðar breytingar á því. „Það sem hefur hjálpað okkur er gríðarleg ffamþróun í lífrænni læknisfræði, sérstaklega taugaiífeðlisfræði. Það er öllum ljóst sem vilja kynna sér það að fíkn er líffræðilegur heilasjúk- dómur sem þróast svo auðvitað í samspili við umhverfið. Það sem hefur líka komið okkur til góða og færir sjúkdómshugtakið nær megin- straumum læknisfræðinnar em auðvitað þeir fylgikvillar sem þessir sjúklingar em að fást við. Þar nefrti ég alnæmi, lifrarbólgur og ýmsa fylgi- kvilla sem kom í kjölfar sprautuneyslu. En lækn- ar gera sér grein fyrir að þetta er heilbrigðis- vandamál." Þórarinn Tyrfingsson Hefur áhyggjur af fjárskorti sem mun bitna á þeim sem eiga viö áfengisvanda að etja. Mikil stemning í Háskólabíói Á fiölmennum bar- áttufundi SAA fyrir opnun bráðamóttöku, sem haldmn var i Háskólabíói í vikunni. Þorarinn á baráttufundi Það vakti athygli að enginn fulltrúi heilbrigðisráðuneytis mætti á fundinn. Hundar og menn í Hafnarfirði ÆTLA AÐ HITTA LÚÐVÍK „Ég hef aldrei átt hund, en ég man ekki til þess að það hafi komið til tals heima hjá mér að fá hund," segir Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði og bætir við að hann hafi ekki einu sinni átt kött. Tilefni spurningarinnar er að í dag tekur Lúðvík á móti hundafólki sem ætlar að afltenda honum áskornn þess efnis að það verði haft með í ráðum við að semja nýja reglur um hundahald í bænum. Lúðvík hefur ekkert á móti hundum Lúðvík segist ekki hafa neitt á móti hundum þótt hann hafi ekki umgengist þá í sinni nánustu fjöl- skyldu. „Ég átti hins vegar einhvern tíma gullfiska og landskjaldböku sem dó úr elli. Hún lá í dvala á vet- uma en át því meira á sumrin. Ég hafði mjög gaman af henni þegar ég var krakki," segir hann og neitar því að börnin hans hafi nokkurn tíma beðið um hund. Hundaeigendur ætla að hittast fyrir framan safnaðarheimilið við Strandgötu klukkan 14 og ganga þaðan um miðbæinn. Tilefnið er fyrst og fremst að drög að nýjum reglum sem hafa verið lögð fram í heilbrigðisnefnd Hafnarfjaröar en þar em ýmsar breytingar sem hundaeigendur em alls ekki sáttir við. Því ætla hundaeigendur víða að fjölmenna í Fjörðinn og ganga um miðbæinn með hunda sína. Með því vilja þeir sýna samstöðu og þjappa sér saman með það takmark eitt að vinna að hags- munamálum hundaeigenda í góðri samvinnu við Hafnfirðinga og önn- ur sveitarfélög þar sem það á við. uTtf °9xmeP" ætla að 9an9a “m miðbæ A s 7arðar' dr°9um um nýi° reglugerð er lagt til sumrindH ve.r6lútllokaðirúrmi°bæHafnarfjarðará sumrm. Hundaeigendur viljg koma í veg fyrir það. Vilja vinna að bættri hunda- menningu Lúðvík segist taka vel á móti hundun- um og eigendum þeirra á morgun. „Þeir em velkomnir í miðbæinn enda hefur engu verið breytt enn og við lýsum okkur fúsa að vinna að þessum breyt ingum með hunda- fólki í sátt við aðra íbúa bæjarins," segir hann. Gengið verð- ur undir merkj- um Hunda- ræktarfélags íslands og allir hunda- eigendur , hvaðanæva af Lúðvík Geirsson bæjarstjóri Hann hefur aldrei átthunden likar vel við hunda og ætiar að taka á móti hundum og eigendum þeirra. landinu em hvattir til að mæta en hundaeigendur >■% ætla með þess- ari göngu að vekja athygli á því að þeir em tilbúnir til að vinna að bættri hundamenningu. Það er ekki tilgangur þeirra að vaða yfir einn né neinn. bergijot@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.