Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2005, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2005, Blaðsíða 40
40 LAUCARDAGUR 8. OKJÓBER 2005 Helgarblaö DV Telpa aðstoðar lögreglu við að finna morðingja Karlmaður í Queens var í gær ákærður fyrir að myrða sambýlis- konu sína viku eftir að fjögurra ára dóttir hennar fannst á ráfi úti á götu. Hinn 32 ára gamli Cesar Ascarrunz hefur játað að hafa kyrkt Monicu Lozada-Rivaineira eftir rifrildi í íbúð þeirra. Eftir að litla telpan fannst var gripið til þess ráðs að setja hana í sjón- varpið í von um að fá vísbending- ar um afdrif móður hennar. Eftir útsendinguna barst lögreglunni flöldi ábendinga sem loks leiddu til handtöku Ascammz, en í útsendingunni lfkti litla stelpan mömmu sinni við prinsessu. Katefékkfrídag með dóttursinni Kate Moss hefur fengið leyfi til að fara úr meðferð og verja einum degi með litlu dóttur sinni Lilu Grace. Pabbi hennar, Jeffer- son Hack, flaug frá London til Arizonafylkis í Bandaríkjunum til að Lila gæti hitt móður sína en þar er Kate í meðferð. Fyrirsætan berst við að vinna bug á kókaínfíkn sinni og hyggst hún halda venjulega prógrammi eftir þessa heimsókn til að ná bata. í síðustu viku var hún látin greina frá leyndarmál- um bernsku sinnar til þess að finna út ástæðurnar að baki fíkn- Geymdi mömmu ífrystinum Fimmtíu og tveggja ára gamall maður frá Wisconsin hefur játað að hafa geymt látna móður sína í fiysti og að hafa skotið á nágranna sína. Þetta hófst allt þegar Philip Schuth hóf skothríð á hjónin Randy og Melissu Russel og tíu ára son þeirra sem hafði sakað Schuth um að berja sig. Stuttu síðar réðst lögreglan til atlögu að húsinu en bardagi hennar við Schuth stóð yfir heila nótt. Ekki er vitað hvað knúði manninn til að geyma móður sína í frystinum en hún mun hafa látist af náttúrulegum orskökum. Börn og unglingar streymdu inn og út um félagslega íbúð Colyns Evans, þrátt fyrir að hann væri margdæmdur kynferðisafbrotamaður. íbúar smábæjarins Tayport í Skotlandi þekktu hins vegar ekki feril hins átján ára Colyns og vera hans í bænum endaði með hrottalegu morði á sextán ára gamalli stúlku. Colyn Evans Morðingi með lang- an afbrotaferil. vera í miklu uppáhaldi hjá Colyn. Hann sóttist í félagsskap barna á öllum aldri og dró að sér börn og unglinga eins og segull og lokkaði þau inn til sín með því að grobba sig að hnífasafni sínu. íbúð hans ávallt full af krökkum sem héngu þar og hlustuðu á tónlist Vinsemd endaði með hrottafengnu morði Hin sextán ára gamla Karen Dewar var einkabam. Hún bjó rétt hjá Colyn og hafði, ásamt fleiri unglingum, vingast við hann vegna þess að hún vorkenndi honum. Dag einn lentu þau Colyn hinsveg- ar í rifrildi og eftir það var ekki aftur snúið. Eftir ósætti þeirra fór Colyn að ógna henni og hann tók til við að elta hana á röndum. Svo fór að Karen tilkynnti hegðun hans á lög- reglustöð bæjarins en var sagt að málið tilheyrði ekki þeirra deild. Sama dag fór Karen í íbúð Colyns, að öllum líkindum til að' leysa ágreiningsmál þeirra á milli, en hún átti ekki afturkvæmt þaðan. Colyn réðst að henni með brauðhníf, afklæddi hana, skar af henni hárið og reyndi að kyrkja hana áður en hann skar hana á höfði og líkama. Því næst batt hann band um háls hennar og dró hana niður stigann og inn á baðherbergi þar sem hann drekkti henni í baðkarinu. Eftir að hún var látin reyndi hann að skera hana niður í bita og kveikti svo í henni og fötum hennar. Lík hennar fannst mjög illa farið í tunnu náiægt heimili hans daginn eftir. Samskiptaleysi á milli yfir- valda Faðir Karenar Dewar er ósáttur við þátt yfirvalda í dauða dóttur hans. „Það er yfirvöldum jafnmikið að kenna og Colyn að dóttir mín er látin," er haft eftir honum en það stakk íbúa Tayport að Colyn var hvergi á skrá yfir kynferðisafbrota- menn þrátt fyrir að hafa verið greindur sem sibrotamaður í þeim efnum og ekki líklegur til að bæta ráð sitt. Dewar sagði sig og fjöl- skyldu sína ekki hafa haft hugmynd um brotaferil Colyns og sagði að sú vitneskja hefði breytt miklu. Hann efaði það að starfsmenn félags- málayfirvalda hefðu kosið að Colyn byggi í þeirra götu og fordæmdi þá fyrir það kæruleysi að láta íbúa bæjarins ekki vita af sögu Colyns. Yfirvöld báru við samskiptaleysi á milli félagsmálayfirvalda og lög- reglu og segjast harma mistökin. Colyn hiaut lífstíðarfangelsisdóm fyrir morðið á Karen og mun sitja inni í sautján ár. Hinn átján ára gamli Colyn Evans var fæddur í Wales en flutti ungur til Skotlands. Frá tíu ára aldri hafði Colyn verið viðriðinn ýmis kynferðisbrot, allt frá því að leita á litla stráka og til þess að bera sig og fróa sér fyrir framan konur. Hann var vistaður á ýmsum heimilum en fékk alltaf á koma heim á milli þar til barnaverndaryfirvöld þvoðu hendur sínar af honum og vistuðu hann í íbúð fyrir heimilislausa. Eft- ir morðið á Karen Dewar komu margir foreldrar fram á sjónarsvið- ið og sögðu frá brengluðum áhuga hans á ungum börnum. Sakamál Eltist við unga drengi Einna verst var saga einnar móður sem sagði hann hafa ráðist á átta ára son sinn, sett hendur um háls hans og skipað honum að girða niður um sig. Hann elti pilt- inn á röndum og lét hann ekki friði. Móðir hans kvartaði hvorki meira né minna en 45 sinnum yfir hegð- un Colyns við lögregluna . Á þess- um tfma bjó Colyn á unglinga- heimili en kom heim um helgar en vegna eineltis hans gegn stráknum var honum útveguð félagsleg íbúð í bænum Tayport þar sem hann framdi síðar hið hrikalega morð. Eftir flutninginn hættu félagsmála- yfirvöld öllum afskiptum af honum og láðist að tilkynna sögu hans sem kynferðisofbeldismanns til lög- reglu staðarins. Börn og unglingar hverfisins gengu inn og út hvenær sem var sólarhrings án þess að ná- grannarnir vissu að hann væri dæmdur barnaníðingur. Hættulegur kynferðisaf- brotamaður Colyn sýndi frá unga aldri óeðli- lega kynferðislega hegðun og var þekktur fyrir ofbeldi. Frá 10-16 ára aldurs hafði hann verið kærður fyr- ir fjórtán afbrot. Þar á meðal voru ákærur um ofbeldi, nauðganir, strípihneigð og óeðlilegan áhuga á börnum, en átta ára strákar virtust Myrti vinkonu sínn n hrottalegan máta eftir rifrildi 15 ára stúlku rænt og hún drepin Líkamspartarnir fundust í fjórum tunnum Niðurbútað lfk unglingsstúlku sem talið er að hafi verið rænt fannst í suðurhluta London í síð- ustu viku. Lík hinnar fimmtán ára Rochelle Holness fannst í fjórum ruslatunnum eftir að lögreglan og sjúkralið hafði verið kallað til í íbúð nokkra. Nágrannar sögðust hafa séð blóði drifinn mann þjóta úr íbúðinni og hóta að drepa sig en sá var síðar handtekinn fyrir morðið á Rochelle. Ekki er talið að hann hafi þekkt Rochelle fyrir morðið. Talið er að hinni fimmtán ára gömlu Rochelle hafi verið rænt og hún myrt eftir að hún fór út frá heimili sínu til að hringja í kærast- ann úr almenningssíma í nágrenn- inu seinnipart sunnudagsins 25. september. Ekki var tilkynnt um hvarf hennar fyrr en tveimur dög- um síðar en foreldrar hennar töldu að hún gisti hjá vinum og grunaði ekkert illt þar til kærastinn hringdi og spurði um hana. Lögreglan hef- ur gefið út yfirlýsingu þar sem hún biður fólk að hafa samband ef það býr yfir upplýsingum sem tengjast málinu. 47 ára gömul kona sem hand- tekin var í tengslum við málið sagði lögreglu að hún hefði fundið hluta af líki stúlkunnar í íbúð vinar síns. Hún segist hafa fengið svo mikið áfall að hún tilkynnti ekki um fundinn fyrr en daginn eftir. Henni hefur verið sleppt úr haldi en íbú- inn, John McGrady, er enn í haldi lögreglu og hefur verið ákærður fyrir morðið á Rochelle. Fjölskylda og vinir Rochelle héldu líkvöku nálægt morðstaðn- um í vikunni og þangað mættu um 300 manns. Rochelle Holness Ukamspartar hennar fundust I fjórum ruslatunnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.