Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2005, Qupperneq 45
X?V Sport
Eriksson
finnur fyrir
pressunni
Það er miMl pressa á Sven-
Göran Eriksson, landsliðsþjálfara
Englendinga, fyrir leikinn í dag en
England þarf að vinna tvo síðustu
íúrslita-
spenntur fyrir þessum tveimur
leikjum. Ég er fullviss um að það
er næg geta í leikmannahóp mín-
um til að komast í úrslitakeppn-
ina og þangað ætlum við að kom
ast. Við þurfum að vinna þessa
tvo leiki sem eftir em og það er
mitt verkefhi að tryggja að það
náist. Ég sætti mig við að missa
starfið ef þetta markmið næst
ekki."
Sahin
orðaður við
Chelsea
Chelsea er nú enn einu sinni
orðað við eftirsóttan leikmann en
það er Nuri Sahin, leikmaður
Dortmund í Þýskalandi, en hann
er aðeins sautján ára gamali en er
þegar orðinn einn af aðalmönn-
um liðsins. Sahin stóð sig frábær-
lega vel með U-17 ára liði Tyrkja á
heimsmeistaramótinu í Perú fýrir
skemmstu og er nú orðinn einn af
eftirsóttustur leikmönnum
heimsins. Hans-Joadiim Watzke,
framkvæmdastjóri Dorunund,
segist vita af áhuga marga félaga
en hefur þó ekki heyrt af sérstök-
um áhuga Chelsea. „Við höfum
eldd áhuga á því að selja hann því
hann mun brátt verða einn af
stjömum þýskrar knattspyrnu. Ég
veit ekkert um áhuga Chelsea en
mér finnst ekki skiýtið forráða-
menn Hðsins hafa áhuga því hami
hefur mikla hæfileika."
Ruud biðst
afsökunar
Ruud van Nistelrooy, ffamherji
Manchester United og hoUenska
landsliðsins, baðst í gær afsökun-
ar á því að hafa sparkað í sam-
herja sinn í landsliðinu, Ron
Vlaar, en hann leikur með AZ Alk-
maar. Van Nistelrooy reiddist
þegar Vlaar þjarmaði að honum á
æfingu og í kjölfarið sparkiö van
Nistelrooy til hans. Þeir tvæir
rifust heiftarlega í lcjölfarið en
landsliðsþjálfarinn Marco van
Basten róaði leikmennina niður.
„Ég biðst afsökunar á framferði
mínu en þetta var
nú ekki mjög al-
varlegt. Það gerist
oft á æfingum að
mönnum lendi £*
saman með þess-
um hætti og ég
held að þetta
hafiekki ..
verið ^
neitt undarleg. Okkur I
Vlaar semur ágætlega
og munum örugg- jÉjfe.,
lega gera grín að ÆP -JL
þessu í framtíð- :/
inni.“
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 45
Varalið íslands stóð í stórliði Póllands í vináttulandsleik þjóðanna í Varsjá í gær. -
Pólland sigraði ísland 3-2. Frammistaða varaliðsins sýnir að stórstjörnur íslenska
landsliðsins mega heldur betur vara sig ef þær standa sig ekki í stykkinu.
Varalið Islands stóð
A m F ■ ■ v ■ 1 ii |
i storhði Poilands
fslendingar eru ekki á ílæði-
skeri staddir með landsliðs-
menn. Varalið íslands gerði
sér lítið fyrir og stóð í stórliði
Póllands og komst í tvígang
yfír í leiknum en varð að lok-
um að lúta í gras, 3-2. íslenska
liðið lék ágætlega framan af en
þrenn ódýr varnarmistök kost-
uðu fslendinga sigurinn. Þrátt
fyrir að stærstu stjörnur ís-
lenska liðsins væru íjarverandi
tóku ungir og kappsfullir
strákar stöður þeirra og börð-
ust fyrir land og þjóð. Þeir
sýndu því áhuga að leggja sig
fram fyrir íslenska landsliðið.
Það er ánægjuefni.
Pólverjar tefldu fram sínu
sterkasta liði en þeir mæta Englend-
ingum á miðvikudaginn í hreinum
úrslitaleik um sigur í 6. riðli í und-
ankeppni HM. Hið unga og óreynda
íslenska lið virkaði taugaveikfað r
upphafi leiks og í tvígang fengu Pól-
verjar góð færi á silfirrfati eftir mis-
heppnaðar sendingar, fyrst frá Krist-
jáni Erni Sigurðssyni og svo frá
Brynjari Birni Gunnarssyni, fyrirliða.
ÍSLENSKA LIÐIÐ
Einkunnirfrá 1-10:
Kristján Finnbogason
(87., Daði Lárusson ’
Kristján Örn Sigurðsson
Auðun Helgason
(76., Bjarni Ólafur Eiriksson )
Sölvi Geir Ottesen
Indriði Sigurðsson
Brynjar Björn Gunnarsson (f) °
(72., Arnar Þór Viðarsson )
Stefán Gíslason
Grétar Rafn Steinsson “
Kári Árnason
(88., Helgi Valur Daníelsson
Gylfi Einarsson
(74, Veigar Páll Gunnarsson -)
•Hannes Þorsteinn Slgurösson 7
(81 Tryggvi Guðmundsson
'“ ' yy « Maöur lelksins
f síðustu sex landsleikjum þar
sem Eiður Smári Guðjohnsen hefur
verið fjarverandi hefur ísland aðeins
skorað eitt mark. En nú varð breyt-
ing á til batnaðar en balcvörðurinn
Kristján Öm stakk sér inn fyrir vörn
Póllands á 15. mínútu á hárréttum
tíma og skoraði með þrumufleyg í
nærhornið eftir snilldarsendingu
Brynjars Bjarna.
Vörnin úti á þekju
Pólverjar vom slegnir út af laginu
en náðu að jafna metin 10 mínútum
síðar. Nú vom Brynjar Björn og
Kristján Örn sökudólgarnir. Kristján
örn fór út úr bakvarðarstöðu sinni
og Jacek Krzynowek stakk sér inn
fyrir og skoraði af öryggi framhjá
Kristjáni Finnbogasyni.
Pólverjar vom langt í frá sann-
færandi í leik sínum í fyrri hálfleik og
verða auðveld bráð fyrir Englend-
inga á miðvikudaginn ef þetta er
hinn raunvemlegi styrkleiki liðsins.
Vörn liðsins var langt í frá sannfær-
andi og gjörsamlega svaf á verðinum
þegar Hannes Þ. Sigurðsson kom ís-
landi aftur yfir á 38. mín. með glæsi-
legu skoti rétt utan vítateigs. Hannes
var mjög grimmur í fremstu víglínu
og varnarmenn Póllands áttu í hinu
mesta basli við þennan nýjasta liðs-
mann Stoke. Staðan í hálfleik 2-1,
íslandi í vil og frammistaða íslenska
varaliðsins langt umfram væntingar.
Viðvörunarbjöllur
En viðvömnarbjöUur glumdu
strax í upphafi seinni hálfleiks. Mið-
varðarparið Auðun Helgason og
Sölvi Geir Ottesen var að spUa í
fyrsta sinn saman og þeir félagar
stigu ekkJ aUtaf sama valsinn og bak-
verðirnir Kristján Örn og Indriði
vom ekki aUtaf í línu við félaga sína.
Pólverjar jöfiiuðu metin á 57. mín.
Þeir tóku aukaspyrnu og bakvörður-
inn Marcin Baszczynski skoraði með
þmmuskoti sem Kristján Finnboga-
son var óheppinn að verja ekki.
Markið átti hins vegar aldrei að
standa því brotið var á Indriða í víta-
teignum.
Aðeins fjómm mínútum síðar
brást rangstöðugildra íslands einu
sinni sem oftar og Euzebiusz Smola-
Kári i kröppum dansi
Kári Árnason sést hér í
harðri baráttu við einn
Pólverjann í gær.
rek slapp einn í gegn og skoraði af
öryggi framhjá Kristjáni í markinu.
Pólverjar höfðu leUdnn í hendi
sér eftir þetta og fengu færi tU að
bæta við mörkum. Bæði lið skiptu
inn á sex leikmönnum og á meðal
þeirra sem komu inn á hjá íslandi
var hinn 32 ára gamli nýliði Daði
Lámsson. Hann kom hins vegar
aldrei við boltann r' leiknum!
Hannes, Sölvi og Kristján
bestir
Sigur Pólverja á íslandi, 3-2, var
fyllilega verðskuldaður. íslenska lið-
ið fær hins vegar hrós fyrir góða bar-
áttu framan af. En þegar Pólverjar
sáu ffarn á niðurlægingu bitu þefr
frá sér og þá máttu hinir íslensku
vUdngar síns lítUs í höndunum á
þessum þrautreyndu atvinnumönn-
bogason voru bestu menn íslands. f
raun ætti að fórna Heiðari Helgu-
syni fyrir Hannes sem virðist mUdu
áhugasamari þessa dagana um að
láta að sér kveða í íslenska landslið-
inu. Sölvi Geir var langbesti varnar-
maður íslands og Kristján varði oft á
tíðum vel og verður ekki sakaður um
að bera ábyrgð á mörkunum.
Kristjáni Erni óx ásmegin og
Brynjar Björn var ágætur framan af.
Hins vegar var sorglegt að sjá hversu
Gylfi Einarsson er slakur leik eftir
leik. Grétar Rafn hefur oft leikið bet-
ur en aðrir vom á pari.
En frammistaða varaliðsins sýnir
að stórstjörnur íslenska landsliðsins
mega heldur betur vara sig ef lands-
liðsþjálfararnir hafa kjark tU þess að‘
henda þeim út ef þeir standa sig ekki
í stykkinu.
um. thorsteinngunn@dv.is
Hannes Þ. Sigurðsson, nýliðinn
Sölvi Geir Ottesen og Kristján Finn-
Logi Ólafsson landsliösþjálfari
Einbeitingarleysi felldi okkur
Logi Ólafsson, annar landsliðs-
þjálfaranna, var þokkalega sáttur við
frammistöðu sinna manna en sagði
það óneitanlega vonbrigði að tapa
leiknum með þessum hætti.
„Mér fannst við vera svolítið
hræddir í upphafi leiks og okkur
gekk illa að senda auðveldar send-
ingar á milli manna. En eftir því sem
leið á leikinn, þá tókst okkur veijast
vel og náðum að sækja hratt þegar
færi gafst. Við lögðum upp með það
að bfða aftarlega á veUinum og vera
þéttir og ná þannig að pressa þá til
þess að gefa langa bolta fram vöU-
inn. Sú bið getur oft verið erfið en
samt get ég nú ekki sagt að við höf-
um lent í mildum erfiðleikum."
Logi var ánægður með mörkin en
sagði ólöglegt mark Pólverjanna hafa
slegið lið sitt út af laginu. „Það var
sjálfstraust í okkar leik eftir því sem
leið á hann og við komumst verð-
skuldað yfir í tvígang. En Pólverjanir
eru með virkUega gott lið. Eftir jöfn-
unarmark þeirra í síðari hálfleik, sem
var klárlega ólöglegt þar sem Indriða
Sigurðssyni var haldið í vítateignum,'
náðum við ekki að komast nægUega
vel inn í leikinn og lentum í vand-
ræðum. En þetta var mikUvægur
leikur fyrir þetta unga lið sem við
stUltum upp. Einbeitingarleysi varð
okkur að faUi en vonandi náum
að laga það fyrir leikinn erfiða gegn
Svíum í næstu viku."