Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2005, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2005, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2005 Fréttir DV í fyrrakvöld var Lögreglan í Keflavík ásamt sérsveit Ríkislögreglustjóra kölluð út. Pólverjinn Mariusz Robert Krzeminski var þar alblóðugur með Qölda skurða á vinstri handlegg og var fluttur í skyndi á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hann gistir nú fangaklefa á lögreglustöðinni í Keflavík. Steikarhnifur Sauma þurfti 32 spor I handlegg Mariusz eftir að hann skarsig. [ Fífumói Sc Mariusz bjó hér ásamt sambýiiskonu sinni en allarhans eigur eru nú I vörslu lögreglu. Árekstur í ræktinni Eigandi svartar Toyota- bifreiðar kom í öngum sín- um inn á lögreglustöðina í Keflavík í gær. Hann til- kynnti að ekið hefði verið utan í bifreið hans og tjón- valdur ekið á brott. Atvikið var honum sérstaklega sárt þar sem um er að ræða að- eins tveggja vikna gamla bifreið. Rispa var á vinstra afturbretti ofan við hjólið. ökumaðurinn taldi að ekið hefði verði á bifreiðina utan við líkamsræktarstöð- ina Lífstíl í Keflavík í fyrra- kvöld. Brotið á mannréttind- um níðings Maður misnotaði dóttur sambýliskonu , - sinnar gróflega frá því hún var 11 ára þar til hún náði átján ára aldri. Héraðsdómur í Hafnarfirði dæmdi hann í tveggja og hálfs árs fang- elsi og Hæstiréttur staðfesti þann dóm í gær. Jón Stein- ar Gunnlaugsson skilaði sératkvæði og vildi sýkna manninn af hluta brot- anna. Hann segir að þrátt fyrir trúverðugleika stúlk- unnar sé ekki hægt að snúa sönnunarbyrði við og leggja á sakborning að hnekkja framburðinum. Sú aðstaða svipti sakborning- inn mannréttindavernd og þekkist ekki í öðrum brota- flokkum. Hannar Ibsen- sýningu Guðmundi Jónssyni arkitekt í Osló hefur verið falið að hanna sýningu um líf og verk norska leik- ritaskáldsins Hen- riks Ibsen. Sýn- ingin verður opnuð þann 23. maí á næsta ári en þá verða liðin hundrað ár frá dauða skáldsins. Sýningin verður í húsi skáldsins þar sem Ibsen-safnið hefur ver- ið undanfarin ár. Leikrit Henriks Ibsen hafa verið leikin um allan heim og haft byltingarkennd áhrif á leikbókmenntimar, ekki síst vegna yfirburðaleik- sviðstækni hans. V Fullur Polverji heyrði raddir og skar sig Mariusz Robert Krzeminski er pólskur ríkisborgari sem kom hingað til lands í júní síðastliðnum vegna vinnu. Hann hóf störf hjá Mótun ehf. í Reykjanesbæ en þar býr systir hans og fjöl- skylda. Klukkan 22 í fyrrakvöld barst Neyðarlínunni símtal frá Mariusz þar sem hann óskaði eftir hjálp. Þegar lögregla kom á staðinn var hann alblóðugur. Mariusz var fluttur í skyndi á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja þar sem læknar saumuðu 32 spor í handlegg. Hann var síðan fluttur á lögreglustöðina í Keflavík. Þar gistir hann nú fangaklefa. Örvæntingarfullur í símanum „Schnell! Schnell! Police, schnelir sagði Mariusz við Neyöarlinuna i fyrrakvöld. „Ég var mjög hrædd og flúði út,“ segir Barbara Wiktorowicz, sambýlis- kona Mariusz, sem var með honum í íbúðinni á miðvikudagskvöld. „Hann byrjaði að drekka áfengi í fyrrakvöld og drakk stíft fram eftir kvöldi. Hann hefur aldrei látið svona áður, þess vegna var ég svona hrædd. Ég kynntist honum fyrir dálidu síðan en hann flutti inn til mín í kjölfarið,“ segir Bar- bara. Heyrði raddir Lögreglan í Keflavík getur ekki gef- ið neinar upplýsingar um málið að svo stöddu en lýsing Barböm á atvik- inu er vægast sagt óhugnanleg. Fyrr um daginn hafði Mariusz mætt of seint í vinnuna, eða um hádegi. Hann vann til klukkan sex og fór síðan heim og hóf drykkju. „Þegar hann var orðinn mjög drukkinn fór hann að tala pólsku út í loftið. Hann reifst við einhvem í sí- fellu. Ég vissi ekki við hvem hann var að rífast vegna þess að ég var sú eina í íbúðinni fyrir utan hann. Samt var hann ekki að tala við mig. Honum var skipað að drekka af einhveijum sem ég sá ekki. Hann reifst við þessar radd- ir lengi og sagðist ekki vilja drekka áfengi en þessar raddir vildu að hann drykki," segir Barbara. „Þegar hann var orðinn mjög drukk- inn fór hann að tala pólsku út i loftið." Á þessum tímapunkti var Bar- bara orðin skelflngu lostin. Hún hefur aldrei orðið vitni að öðm eins. „Ég hef bara séð þetta í kvikmynd- um, þetta var mjög skrítið." Hún tók þá ákvörðun að flýja út þar sem hún var hrædd um líf sitt. Stuttu eftir að Barbara fór út heyrðu íbúar Fffumóa hávær öskur. íbúi sem hafði samband við DV sagð- ist hafa heyrt í Mariusz öskra nafn Barböm. Mariusz tók stærsta hnífinn sem hann fann í eldhússkúffum heimilisins og hóf að skera sig í hand- legginn. Blóðið sprautaðist á veggi og gólf íbúðarinnar f Fífu- móa. Schnell, schnell! Mariusz hringdi sjálfur á Neyðar- línuna. Hann talaði þýsku og öskraði á lögreglu: „Schnell, Mariusz óskaði eftirhjálp. Hún fórþvl með lögreglu að heimili hans. schnell! Police, schnell!" Sérsveit Ríkislögreglustjóra var stödd á Suðumesjum og var því send með Lögreglunni í Keflavík á vettvang. Sérsveitarmenn hófu að banka upp á hjá íbúum í húsinu, sem sögðu frá öskrum Mariusz. Lögreglan fann tvo blóðuga hnífa á vettvangi sem Mariusz hafði notað við að skera sig. Stóra eldhúshnífinn og annan töluvert minni. Eftir að lögregla hafði handtekið Mariusz var farið með hann í flýti á Heilbrigðis- stofnun Suðumesja þar sem læknar gerðu að sárum hans. Vill ekki sjá hann „Ég vil hvorki tala við hann né hitta hann aftur," segir Barbara, nú fýrrverandi sambýliskona Mariusz. „Ég er búin að pakka niður öllu því sem hann á og fór með það niður á lögreglustöð. Síðan ætía ég að skipta um skrár." Um þáð hvort hún ætli að flytja úr íbúðinni eður ei segist hún ekki viss. „Ég hef velt því fýrir mér, ég veit ekki hvort ég sel íbúðina og flyt annað." atli@dv.is Tók stærsta eldhús- hnífinn Á meðan Barbara svipað- ist um eftir fólki í íbúð- inni stóð Mariusz við eldavélina og talaði pólsku út í loftið. Fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum i fríi heima Allt í óvissu hjá Einari Einar Sigurðsson, einn fyrrver- andi framkvæmdastjóra Flugleiða og aðstoðarmaður forstjóra félagsins, situr nú heima á Seltjamamesi eftir að hann hvarf frá félaginu. „Það er um mánuður síðan ég hætti og ég er að klára sumarfrí sem ég átti,“ segir Einar Sigurðsson sem vill sem minnst tjá sig um framtíðar- áform sín eða þróunina hjá félaginu eftir að hann hvarf frá störfum. Einar Sigurðsson réðst til starfa hjá Flugleiðum sem blaðafulltrúi árið 1989, varð síðar aðstoðarmaður Hvað liggur á? Sigurðar Helgasonar, þáverandi for- stjóra, og undir það síðasta einn af framkvæmdastjómm félagsins. ,Það sem liggur á er að fá leikmerw í liðið, styrkja liðiö og fara aö byrja að æfa,"segir Magnús Gylfason, nýráðinn knattspyrnuþjálfari meistaraflokks Vlkings.„Þetta leggst allt mjög vel ímig og það sem liggur einnig ánúnaeraðráða aðstoöarstúlku á skrif- stofuna. Það er nóg að gera framundan." Einar Sigurðsson Hugsar sitt ráð heima á Nesinu eftir sextán ára starfhjá Flugleiðum. Hér með eiginkonu sinni Kristínu Ingólfsdótt- ur háskólarektor. Á meðan orrahríðin um Flugleiðir stóð sem hæst og endaði með mannaskiptum á æðstu stöðum var eiginkona Einars, Kristín Ingólfsdótt- ir, kjörin rektor Háskóla íslands. Bakkaði á gamla konu Hæstiréttur þyngdi í gær dóm yfir tvítugum dreng sem var í Hér- aðsdómi Reykjavíkur sakfelldur fyr- ir manndráp af gáleysi. Slysið varð á síðasta ári þegar pilturinn, 19 ára nemandi í MR, fór ásamt þremur skólafélögum sínum að sækja ein- kunnir eftir vorpróf í skólanum. Þegar pilturinn bakkaði út úr stæði við Spítalastíg tók hann ekki eftir gamalli konu aftan við bílinn. Keyrði á hana og varð að bana. Hér- aðsdómur dæmdi hann í skilorðs- bundið fangelsi en Hæstiréttur bæt- ti við ökuleyfissviptingu í sex mán- uði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.