Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2005, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2005, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAOUR 21. OKTÓBER 2005 Sport DV Þorvaldurekki íviðræðumvið Fram Þorvaldur ör- lygsson á ekki í við- ræðum við Fram- araumaðtakavið þjálfun liðsins. Staðfesti hann þetta í samtali við DV Sport í gær. Samkvæmt heimildum blaðsins eiga nú forráða- menn félagsins í viðræðum við tvo til þrjá menn sem koma til greina í starfiö. Ás- geir Elíasson er einn þeirra sem koma til greina en hann hefur undanfarið verið staddur erlendis og hefur það hamlað viðræðum. Savickemur ekki aftur Boban Savic sem varið hefur mark Grindavikur und- anfarið ár mun ekki snúa aft- ur til félagsins fyrir næsta tímabil og Helgi Már Helga- son mun veija mark liðsins næsta sumar. Tveir af þeim útlendingum sem vom hjá Grindavík í sumar munu snúa aftur til Grindavikur, miðvallarleikmennimir Ro- bert Niestroj og Paul McShane sem báðir vom meðal lykilmanna liðsins síð- astliðið tímabil. Grétar lagði upp eitt mark Fyrsta umferð í riðla- keppni UEFA-bik- arkeppninnar fór fram í gærkvöldi og vom fjölmargir leikir á dagskrá. AZ Alkmaar, lið Grét- ars Rafns Steins- sonar, vann sinn leik á útivelli gegn Dneprope frá Úkraínu. Grétar Rafri lék all- an leikinn og lagði upp fyrsta mark leiksins sem kom á 14. mínútu. AZ bætti svo við öðm marki á 59. mínútu en leikmenn úkraínska liðsins klómðu í bakkann tíu mínút- um síðar. Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar í Halmstad frá Svíþjóð töpuðu í dag fyrir Herthu Berlín, 1-0, á heimavelli sínum. Gunnar Heiðar lék allan leikinn fyrir Halmstad en fékk úr litlu að moða. Úrslit leikja í gær K A R L A R HÓPBÍLABIKAR Hamar/Selfoss-KR 72-92 Þór Ak.-Skallagrtmur 95-91 Tlndastóll-fR 80-90 Halmstads-Hertha Berlfn 0-1 Maccabi Petach Tikva-Palermo 1-2 CSKA Moskva-Marseille 1-2 Viking-AS Monaco 1-0 Shaktar Donetsk-PAOK Saloniki 1-0 Zenit St. Petersburg-Guimaraes 2-1 Rennes-Stuttgart 0-2 Steaua Bukarest-Lens 4-0 Basel-Racing Strassburg 0-2 Dnjepr-AZ Alkmaar 1-2 ZSKA Sofia-Hamburger SV 0-1 Tromsö-AS Roma 1-2 Dinamo Bukarest-SC Heerenveen 0-0 Besiktas-Bolton Wanderers 1-1 Grasshopper-Middlesbrough 0-1 Sigurður Jónsson skrifaði í gær undir þriggja ára starfssamning við knattpyrnu- deild Grindavíkur. Hann mun hafa öflugt þjálfarateymi á bak við sig auk þess sem að Sinisa Kekic, besti leikmaður liðsins undanfarin ár, hefur framlengt samning sinn til tveggja ára. Hann segir að hann hlakki til að halda áfram í boltanum en hann verður 36 ára í næsta mánuði. 51 'gjSáSmvmSS!S D f- fí Þjálfarateymið Frá vinstrieru Jón Óli Danlelsson, yfirþjálfari yngri flokka, SigurðurJónsson, knattspyrnustjóri Grindavíkur, Milan Stefán Jankovic, þjdlfari 2. flokks, Magni Fannberg Magnús- son þol- og styrktarþjálfari, Sinisa Kekic og Jónas Þórhallsson. r 3 I i 1 -41 i * I l .ly L Tvo ár í viðbót Sinisa Kekic og Jónas Þórhalls- son, formaður knatt- spyrnudeildar Grindavlkur, skrifa undirsamninginn. ... . Sinisa Kekic mun spila með Grindvíkingum að öllu óbreyttu næstu tvö árin. Hann hefur verið alger lykilmaður í liði Grinda- víkur undanfarin ár en liðið hefur ekki unnið leik án hans frá ár- inu 2001. Hann segist hlakka mikið til komandi átaka og líst vel á Sigurð Jónsson, nýjan þjálfara liðsins. Samningur Kekic er til tveggja ára en hann verður 36 ára í næsta mán- uði. „Ég er mjög ánægður með samn- inginn og vona að ég eigi nógu mikið inni til að efna hann. Ég ætla allavega að æfa vel og gera mitt allra besta. Nú er Sigurður kominn til Grindavíkur og spennandi tímar framundan. Ég hlakka til að takast á við þetta," sagði Kekic. Maðurinn sem þeir máttu ekki missa Sinisa Kekic er í öðru sæti yflr bæði flesta leiki og flest mörk fyrir Grindavík í efstu deild en Kekic hefur skorað 42 mörk í 153 leikjum sínum fyrir félagið frá því að hann kom þangað fyrst 1996. Mikilvægi hans sést ekki síst á gengi Grindavíkurliðs- ins án hans undanfarin fimm sumur. Grindavík hefur nefnilega ekki unnið deildarleik með Kekic utan vallar síð- an sumarið 2000. Kekic hefur misst af 11 leikjum á þessum tíma og þeir hafa allir tapast. Markatalan er held- ur ekki glæsileg, 6-32, Grindavík í óhag. Kekic missti af fjórum leikjum í sumar, 1-3 tapi fyrir Val á Hh'ðar- enda, 1-5 tapi fyrir ÍBV í Eyjum, 1-3 tapi fyrir KR á KR-vellinum og loks 2- 3 tapi fyrir Þrótturum á Laugardals- vellinum í 17. umferð. Það tap hefði getað reynst dýrkeypt enda voru Þróttarar þá fallnir en Kekic snéri aft- ur í næsta leik þar sem Grindavík vann Keflavík 2-1 og náði með því að halda sæti sínu í deildinni. Grindavik hefur fengið stig í 51 af þeim 79 leikj- um sem Sinisa hefur spilað á þessum fimm tímabilum, þar af hafa 34 þeirra unnist. „Ég hef enn mjög gaman af því að æfa og spila fótbolta. Líf mitt snýst um þetta og ég vil halda áfram í þessu," sagði Kekic. Hann segir að koma Sigurðar til Grindavíkur sé mik- ill fengur fyrir félagið enda sé hann þaulvanur knattspymumaður. „Hann lék með Arsenal og fleiri félög- um i Bretlandi og hann er þjálfari sem við höfirm aliir miklar mætur á." Milan Stefán Jankovic þjálfaði Grindvíkinga í sumar en hann mun nú taka við öðrum flokki félagsins ásamt því að vera Sigurði til aðstoðar. „Mér h'st vel á þetta þjálfarateymi enda þekkjum við allir Milan Stefán vel og höfum miklar mætur á hon- um," sagði Kekic. Öflugt þjálfarateymi Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar, sagði í gær að Milan Stefán hafi sýnt mikinn karakter þegar hann ákvað að halda áfram að starfa hjá Grindavík við hlið Sigurðar. „Hann kom gagn- gert til okkar í fyrra til að þjálfa annan flokkinn og vera aðstoðar- maður Guðjóns Þórðarsonar. Hann vildi nú snúa sér aftur að þeim áætlunum og er ekkert nema gott um það að segja." Auk þess sem Sigurður hefur gengið til liðs við Grindvflcinga hef- ur knattspyrnudeildin einnig samið við þriðja þjálfarann, Magna Fannberg Magnússon, sem sam- kvæmt Jónasi mun sinna styrktar- og þolþjálfun leikmanna meistara- og annars flokks Grindavíkur. „Þetta er öflugt þjálfarateymi og metnaðarfullt starfsumhverfi. Og við vonumst til að á næstum þrem- ur árum munum við hafa náð að rífa árangurinn á vellinum upp. Okkur dreymir auðvitað eins og alla um að vinna titilinn en við ætl- um að láta verkin tala. Við vonum að með Sigurði komi nýjar víddir í okkar starf." Haukabakverðirnir Sævar Ingi og Sigurður Þór sjóðheitir gegn Grindavík Haukar unnu síðustu þrjá leikhlutana með 25 stigum Haukarnir hafa tólf stig með sér í nesti í seinni leik sinn gegn Grindavík í 16 liða úrslitum Hóp- bílabikars karla í körfubolta eftir 99-87 sigur á Grindavík á Ásvöllum í fyrrakvöld. Úrslitin eru merkileg fyrir margar sakir, ekki síst þar sem Grindavík vann leik liðanna í Iceland Express deildinni með 30 stigum sex dögum áður, sem og að Grindavík var komið með 17 stiga forskot strax í fyrsta leikhlutanum í þessum leik. Haukar gáfust hins vegar ekki upp þrátt fyrir að vera búnir að tapa síðustu 50 mínútum gegn Grindavík með 43 stigum. Þjálfarinn Predrag Bojovic hitti sennilega naglann á höfuðið í við- tali á Haukasíðunni. „Við byrjuðum með sama hug- arfar og úr síðustu tveimur leikj- um. Strákarnir vöknuðu af værum blundi og gerðu sér grein fyrir að þeir geti spilað við hvaða lið sem er. Ég er fullviss um að við getum spilað við hvaða lið sem er. Allir voru að berjast og leggja sig fram og það skapaði góðan liðssigur. Góður leikur liðsfélaganna skapar alltaf góð skottækifæri fyrir ein- hvern í liðinu," sagði „Kuku" eins og hann er jafnan kallaður. Sævar Ingi Haraldsson og Sig- urður Þór Einarsson höfðu aðeins skorað saman 19 stig í fyrstu tveimur leikjum liðsins í deildinni og skotnýting var ekki heldur til þess að hrópa fyrir, Sævar Ingi hafði nýtt 2 af 18 skotum sínum (11%) og Sigurður Þór nýtti 3 af 12 skotum sínum (25%) í tapleikjum gegn Grindavík og Fjölni. í kvöld- leiknum á miðvikudaginn settu þeir félagar niður 11 af 20 þriggja stiga skotum sínum og skor- uðu saman 46 stig. Sigurður gerði útslagið í síðustu þremur ' leikhlutunum eftir að hafa byrjað á bekknum og kom inn með 25 stig, 7 stolna bolta og 4 stoðsendingar auk þess að nýta 60% skota sinna (9 af 15) ’ r Skoruðu saman 46 stig Haukabakverðirnir Sævar Ir Haraldsson og Sigurður Þór arsson léku vel gegn Grinda Hópbllabikarnum og voru si an með 46 stig, 16 stoðsend, arog9stolna bolta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.