Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2005, Page 32
32 FÖSTUDACUR 21. OKTÓBER 2005
.*■
Menning DV
g§!
STYTTIST í fSLENSKAN POTTER
Bjartsmenn segja nú styttast í að nýjasta Harry Potter-
bókin birtist á íslenslcu en Helga Haraldsdóttir heftrr nú
þýtt baki brotnu frá í lokjúlímánaðar. Stefnt er að því að Æ
bókin komi í verslanir 12. nóvember en
bókin er prentuð í Finnlandi. Bjarts- ’M
menn benda aðdáendum bókaflokks- djj . f,
ins á að hafa þá varann á. Fyrsta upp- “
lag er prentað í 15 þúsund eintökum !
en fyrri bækur um galdradrenginn f wjmmjFjáM L '
hafa selst samtals í 85 til 90 þúsund í % K ' “
eintökum. LíWegt máþví telja að 100 : :|jf
næstu jól. Bjartsmenn lofa kaup- ™ GBSESuZl
anda þeirrar bókar óvæntum glaðn- WESfffwfS*
ingi sem flnna verður á blaðsíðu 333. hSSmíMimM
Verðlaunahafar í
Norræna húsinu
í tilefni
þess að Sjón
hlaut Bók-
menntaverð-
laun Norður-
landaráðs í ár
býður Nor-
ræna húsið til
dagskrár
sunnudaginn
23. október kl.
<«£6. Fimm
handhafar bók-
menntaverðlaunanna fyrr og
nú lesa úr verkum sínum.
Fyrsta bók Sjóns, Sýnir,
kom út 1978. Hann hefur sent
frá sér fjölda ljóðabóka, fimm
skáldsögur, skrifað leikrit og
sögur fyrir börn. Árið 2001 var
hann tilnefndur til Óskars fyrir
texta í Dancer in the Dark og
2003 fór hann um England
ásamt Brodsky-kvartettinum
og flutti verkið Anna and the
Moods sem hann samdi ásamt
enska tónskáldinu Julian Nott.
Það er nú í vinnslu sem teikni-
mynd.
j. Skáldsaga hans Augu þín
sáu mig hefur komið út á
Norðurlöndunum, Spáni og í
Litháen. Sagan Skugga-Baldur
hefur þegar verið gefin út á
Norðurlöndum og er væntan-
leg í Þýska-
landi,
Hollandi, á
Ítalíu, í Serbíu
og Frakklandi.
Antti Tuuri,
(verð-
launl985), les
úr Degi í Aust-
urbotni. Hann
hefur þýtt
bæði Egils sögu og Njáls sögu
á finnsku og skrifað bók um
ísland. Nokkrar sögur hans
eru til í þýðingu Njarðar P.
Njarðvík.
Sænska skáldkonan Eva
Ström fékk verðlaunin 2003
fýrir ljóðabókina
Revbensstaderna. Hún er
einnig þekkt fyrir skáldsögur
og leikritun. Auk þess að lesa
úr verðlaunabókinni les Eva úr
ljóðabókinni Rött vill bli rött.
Kjartan Flogstad, (verðlaun
1978), hefur skrifað á fimmta
tug bóka. Hann
les úr sögunni
Dalen Portland.
Kjartan var hér
fyrir skömmu á
þingi um sögu-
legar skáldsögur.
Fulltrúi Dana
'ir Dorrit Willum-
sen sem fékk
verðlaunin 1997 fyrir Bang:
Skáldsagan um Herman Bang.
Hún hefur vakið athygli fyrir
sögulegar skáldsögur og les
hún nú úr einni þeirra, Bru-
den fra Gent.
Einnig verða flutt verk
Hauks Tómassonar sem fékk
Tónlistarverðlaun Norður-
landaráðs 2004. Þau eru
Pendúll, einleiksverk fyrir
selló, og er það frumflutningur
á íslandi. Sigurður Bjarki
Gunnarsson leikur. Hitt verkið
er Vorhænsn, einleiksverk fyrir
klarinett sem Ármann Helga-
Sfiin flytur. Dagskráin er í sam-
vinnu við NORDBOK og er öll-
um opin á meðan húsrúm
leyfir.
Per Fly Drapið er opn-
unarmynd hátíðarinnar
en hann kemur hingað til
að taka við kvikmynda-
verðlaunum Norður-
landaráðs.
;
ílif
IFF - kvikmyndahátíðin stendur fyrir Októberhátíð sem hefst í næstu viku
og stendur fram í nóvember. Fyrsta hátíðin sem bar þetta heiti gekk afburða
vel: yfir 34 þúsund gestir sóttu sýningar á hátíðinni. ísleifur Þórhallsson er
framkvæmdastjóri IFF - Iceland Film Festival ehf.
Eva Ström
Það var þegar frá upphafi ætlun þeirra fyrir-
tækja sem stóðu að IFF að halda eina stóra há-
tíð árlega og nokkrar minni á hveiju ári. Fyrstu
stóru hátíðinni, Iceland Intemational Film
Festival - IIFF2005, var hleypt af stokkunum 7.
apríl og stóð hún yfir í þrjár vikur í Reykjavík,
Keflavík, á Akureyri og á Selfossi. Áður en yfir
lauk höfðu öll met á slíkar hátíðir verið slegin
svo um munaði, þvl að hvorki fleiri né færri en
34.000 gestir sóttu hátíðina. Alþjóðlega kvik-
| myndahátíðin sem hér var um síðustu mán-
| aðamót náði aðeins 12 þúsund gestum að sögn
Morgunblaðsins.
Grænt Ijós og fleiri
Fyrirtæld ísleifs, Græna ljósið, á stóran hlut i
IFF með Senu, Samíélaginu og Myndform. ís-
leifur hefur rekið Græna Ijósið um nokkurra
missera skeið. ísleifur segir fyrirtæki sitt ekki
vinna með föstum samningum við tiltekin
dreifingarfyrirtæki. Hann kaupi bara það sem
hann fOar og haldi að geti gengið á íslandi.
Gagnrýni á dreifingaraðila og kvikmynda-
húsaeigendur hefur farið hátt i framhaldi af Al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni. Því svarar ísleif-
ur svo: „Eins og veruleikinn blasir við mér þá
eru óháðar kvikmyndir keyptar af óháðum
kvikmyndafyrirtækjum erlendis, sem em ekki
líka með Hollywood-myndir. í þessum bransa
eins og flestíun öðmm er sérhæfing. Sena, Sam
og MFhafa vissulega samninga við mörg þess-
ara óháðu fyrirtækja en þeir em ekki neyddir til
þess. Ef þeir vildu hætta að taka inn þessar
myndir gætu þeir alveg sagt upp þessum
samningum og það myndi engin áhrif hafa á
samninga um stærri, Hollywood-stúdíómynd-
ir."
Tök Hollívúdd á íslenskum markaði
Hann vill skýra samband íslenskra bíóeig-
enda við birgja sína: „Langstærstur hluti þeirra
óháðu mynda sem Sam, Sena og MFkaupa er
ekki í gegnum fasta samninga, heldur gerður
sérsamningur í kringum hveija mynd. Jafrivel
þegar um fasta samninga er að ræða er enginn
neyddur til neins, menn geta alltaf sagt nei, ef
f þeir halda að myndin gangi ekki. í raun er eng-
inn neyddur til neins. Menn gefa bara út þær
myndir sem þeir ffla og hafa trú á, svo einfalt er
það."
Hvernig hefur gengið?
„Síðastliðin þrjú ár hef ég verið að rembast
við að gefa út góðar, öðmvísi, óháðar myndir
hvaðanæva að úr heiminum, myndir sem yfir-
leitt sigra á stærstu hátíðunum, hljóta Óskar
sem besta erlenda myndin, fá frábæra gagnrýni
og umtal hérlendis. Ég get ekki kvartað yfir
stuðningi þeirra sem reka bíóin, þeir vilja allt
fyrir mann gera og em manna fegnastir þegar
tekst að draga eldra fólk í bíó því þá er verið að
stækka markaðinn.
Og það er oft meira upp úr minni, óháðum
myndum að hafa, ef þær ganga, heldur en
stærri myndum, því stærstur hluti af miðaverði
á dæmigerðri stúdíómynd fer beint til USA, að-
eins brot af 800 kallinum verður eftir hér
heima. Kvikmyndahúsaeigendur hafa því mik-
inn hvata til þess að halda óháða markaðnum á
lífi."
Um eldri kúnna
„Mín reynsla er sú síðastliðin þijú ár, að það
eina sem ég get kvartað yfir er sú staðreynd að
þegar maður býður upp á þessar myndir, sem
fjölmargir gera tilkall til, þá einfaldlega láta ís-
lendingar ekki sjá sig í bíóunum. Ég held að
mörgum myndi blöskra að sjá hvers konar
myndir hafa t.d. fengið undir 1500 manns í að-
sókn síðastliðin 3 ár og ég ætti kannski bara
taka það saman.
Þessar myndir eiga á brattann að sæja í
kvikmyndahúsum um allan heim. Þessir
eldri kúnnar eru núna með heimabíó,
plasma, myndvarpa og sína DVD-diska, auk
gervihnattadiska, intemets og hvaðeina og
það er erfiðara að ná þeim út úr húsi. í
Bandaríkjunum em menn byrjaðir að gjör-
breyta sumum bíóum til að reyna laða þá að
aftur, gera svona sérstök fullorðinslúxusbíó,
en það er spurning hvort slíkt gæti nokkurn
tímann þrifist hér."
Myndirnar á hátíðinni í apríl
,Auk þess vom margar af þeim myndum
sem vom í okkar eigu keyptar stuttu fyrir hátíð-
ina í apríl, eingöngu vegna þess að við vissum
af hátíðinni á næsta leiti og höfðum þar tæki
til að koma þeim út. Fyrir mitt leyti má þar
nefna myndir eins og Viera Drake og Beyond
the Sea og ég veit að svipað var farið með
Hotel Rwanda. Það var enginn hérlendis á
leiðinni að kaupa þessar myndir stuttu fyrir
hátíðina og ef hátíðin hefði ekki verið til
staðar, hefðu þær annað hvort ekki komið
til íslands eða farið beint á vídeó." Þannig
teklur ísleifur að hátíðin auki og bæti fram-
boð mynda á markaðnum.
Drápið opnunarmynd
Síðustu daga hafa bæst við upplýsingar
um hvað verði í boði á Októberfesti IFF:
Drápið eftir Peter Fly verður opnunarmynd-
in og er vel við hæfi, fyrr um daginn tekur
leikstjórinn við kvikmyndaverðlaunum
Norðurlandaráðs. Og Fly verður ekki einn
gesta hér.
ísleifur leggur áherslu á að stór hluti af
þeim myndum sem eru sýndar á hátíðum
IFF séu „100% hátíðarmyndir": „Þetta eru
myndir sem ég fæ sérstaklega í nafni IFF til
að sýna á hátíð og enginn okkar dreifingar-
aðila á. í apríl voru til dæmis nokkrir flokkar
fullir af slíkum myndum; ísland (eldri ís-
lenskar), Troma (þema), Norðurlönd og
heimildamyndir. í fljótu bragði held ég að
þessir flokkar hafi talið hátt í 30 myndir af
þeim 66 sem voru sýndar, þannig að það
lætur nærri að sirka helmingur hafi verið í
eigu okkar en hinn helmingurinn fenginn
sérstaklega á hátíðina."
Forsala
Sala á pössum í takmörkuðu magni sem
veita afslátt og forgang á sýningar Október-
fest hefst á morgun í verslun Skífunnar á
Laugavegi og á heimasíðunni www.iceland-
Filmfestival.is. Handhafar passanna geta
tryggt sér miða fram í tímann á sýningar há-
tíðarinnar í viðkomandi bíói 25. október,
daginn áður en hátíðin hefst. Handhafar
MasterCard-korta geta svo tryggt sér passa á
undan öllum öðrum frá og með deginum í
dag.
Isleifur Þórhallsson
Framkvæmdastjóri
International lceland-
ic Film Festival.