Símablaðið - 01.12.1943, Page 48
54
SÍMABLAÐIÐ
Sumar þjóöir, t. d. Englendingar, bera
þaö rnikla virðingu fyrir helgideginum,
að símaþjónusta á sér ekki stað nema
innan mjög takmarkaðs ramma, svo ekki
er nema um örfáa helgidaga að ræða á
ári, sem hver einstakur starfsmaður við
afgreiðslu símskeyta eða símtala, þarf að
vera á vakt. Því skyldi það fyrirkomulag
ekki geta blessast hér eins?
Einhver úlfaþytur myndi verða út af
slíkri breytingu í fyrstu. — En hvað er
það með okkar blessaðri þjóð, sem ekki
veldur úlfaþyt finnist einhverjum það valda
sér óþæginda? Eftir stuttan tíma er slíkt
gleymt, og sjálfsagt talið.
Fyrir símastofnunina gæti verið um mik-
inn sparnað að ræða, og viðhorf síma-
fólksins til starfs síns myndi breytast til
hins betra að miklum mun.
Símastjórnin má ekki láta óttann við
hina þjóðlegu óánægju standa í vegi fyr-
ir því, að hún geri þær breytingar á rekstri
stofnunarinnar, sem eiga svo mikinn rétt
á sér sem þessi, — og ætla má að sé til
hagsbóta bæði fyrir stofnunina og starfs-
fólk hennar.
Þo.
Matarverzlun Tómasar Jónssonar
Laugavegi 2, sími 1112 (tvær línur). • Laugavegi 32 (útbú), sími 2112.
Bræðraborgarstíg 16 (útbú), sími 2125.
HEFIR ÁVALLT STÆRSTA ÚRVAL AF
NÝJUM ÍSLENZKUM MATVÆLUM.
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF ALLSKONAR MÚSIKVÖRUM,
DÖMUHÖTTUM OG TÖSKUM
Sendi gegn póstkröfu um land allt.
HLJÓÐFÆRAVERZLUN SIGRÍÐAR HELGADÓTTUR,
Lækjargötu 2. — Sími 1815.
Verið viss um að kaupa bezta
J óla-hangikj ötid
og annað jólasælgæti á jólaborðið í
VERZLUNIN KJÖT & FISKUR.
Símar: 3828 og 4764.
Óskum viðskiptavinum
GLEÐILEGRA JÓLA.
Fálkinn, Laugaveg 24