Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2005, Side 16
7 6 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005
Fréttir DV
Hirtu 26tonn
afhassi
Spænska lögreglan lagði
á mánudaginn hald á 26
tonn af hassi í hafnarbæn-
um Algeciras í suðurhluta
landsins en þetta er mesta
magn ffkniefna sem lagt hef-
ur verið hald á í einu í sögu
spænsku lögreglunnar.
Hassið var falið í 22 stórum
trékössum innan um frosnar
sardínur og höfðu komið frá
hafnarbænum Tanger í
Marokkó. 36 ára gamall
maður er í haldi lögreglunn-
ar pg er hann grunaður um
að standa á bak við smyglið.
Líkamspartar
ávíðog dreif
Vegfarendur við þjóðveg
138 í Bandaríkjunum fundu
á sunnudag líkamsparta á
víð og dreif eftir þjóðvegin-
um. Fyrst taldi fólkið að um
grín vegna Halloween-há-
tíðarinnar væri að ræða, en
komst að sannleikanum
þegar nánar var að gáð.
Fjórum klukkustundum síð-
ar og 40 kílómetra í burtu
fann eldri maður búk
manns. Staðfest hefur verið
að líkamspartarnir og búk-
urinn séu af sama einstak-
lingi. Lögreglan vinnur nú
að því að finna út hver mað-
urinn hafi verið.
lOáraí
afvötnun
Að öllum lík-
indum er tíu ára
gamalt barn það
yngsta sem hefur
verið tekið í áfeng-
ismeðferð í Bret-
landi. Sérfræðing-
ar segja dæmið vera óhjá-
kvæmilega afleiðingu aug-
lýsinga fyrir alkohólgos-
drykki, svokallað alkopop.
„Barnið hefur verið alið upp
í heimi sem auglýsir svona
gosdrykki. Við uppskerum
það sem við sáum,“ segir
David McNeill hjá rann-
sóknarstofu alkohólneyslu í
Bretlandi. Rannsóknir þar
sýna að fjórðungur bama
undir 10 ára aldri hefur
drukkið alkohól.
Mikið mannfall hefur verið í árásum í írak. Bílsprengja drap 15 og særði í það
minnsta 50 manns. Yfir 80% allra árása er beint gegn hersetuliðinu í írak. 80%
allra sem látast og særast í þeim árásum eru hins vegar óbreyttir borgarar. írak
grætur börnin sín á meðan hersetuliðinu verður hvergi haggað þrátt fyrir mikla
andstöðu.
■
^ • **
Bílsprengja drap
1S menn Sprengi-
árásir Iraka bitna
mest á þeim sjálfum.
í það minnsta fimmtán létust þegar bflsprengja sprakk á mánudag.
Fimmtíu til viðbótar slösuðust, allir óbreyttir borgarar að snæðingi
á veitingahúsi. Mannfall fraka er talið vera komið í 30.000 - en
sumir nefna langtum hærri tölur - allt að 100.000 manns.
Sjálfsmorðsárásir eru algengar í
írak. Þeim er yfirleitt beint gegn her-
setuliðinu en svo virðist sem enginn
sérstakur tilgangur hafi verið með
sprengingunni á mánudag - nema
sá einn að skapa ringulreið og sorg.
Gler og rusl lá á víð og dreif í
verslunargötunni í Basra eftir
sprenginguna, innan um látna og
særða. Enginn hefur enn lýst verkn-
aðinum á hendur sér.
Mest tjón hjá óbreyttum
Samkvæmt heimildum banda-
ríska hersins hafa nærri 26.000
írakar látist eða særst í árásum síðan
í ársbyrjun 2004.
„Um 80% árásanna er beint gegn
herliðinu, en 80% allra særðra og
látinna í þeim eru írakar," segir í
skýrslu hersins. Ekki var tekið tillit til
þeirra íraka sem látist hafa eða særst
í árásum herliðsins. Skýrslan segir
að árásarmennirnir hafi lært af bit-
urri reynslu að fara ekki í beinar
skotárásir við herliðið, heldur frekar
frakar syrgja Iþað minnsta 30.000 Irakar
hafa látist i árásum.
notað aðferðir eins og að keyra
framhjá með skothríð eða nota
sprengjur. Skýrslan segir einnig að
heimatilbúnar sprengjur séu
algengasta vopnið.
Flak bíls eftir sprengju Iraskirdrengirskoða verksummerki.
Háttsettur drepinn
Liðþjálfinn William Wood, yfir-
maður herdeildar innan bandaríska
hersins, lést í sprengingu í síðustu
viku. Wood er æðsti embættismaður
hersins sem látist hefur í írak.
Sprengingin varð þegar Wood
var að stjórna liði sínu við öryggis-
gæslu á svæði þar sem sprengja
hafði sprungið skömmu áður. Her-
skáir írakar hafa áður notað
leynisprengjur sem bíða komu
hersins áður en þær springa.
Þannig er árangur sprengjunnar
tryggður með marga hermenn í færi
á einum stað.
93 hermenn létust í írak í októ-
ber. Það er mesta mannfall Banda-
ríkjahers síðan í janúar en þá létust
107 hermenn.
ÁSKRIFT: 515 6100 | WWW.ST0D2.IS | SKÍFAN | OC VODAFONE
VINSÆLASTI
SPJALLÞÁTTUR í HEIMI
Oprah mióvikudaga kl. 21:00