Símablaðið - 01.01.1955, Qupperneq 34
8
B í M A B LAÐ IÐ
njóta þessara réttinda í 20 ár. Það
verður að segja þeim aðiljum, sem
unnu að samningu Starfsmannareglanna
til verðugs hróss hversu framsýnir og
stórhuga þeir hafa verið, því nú 20 ár-
um seinna eru margir kaflar laganna
um réttindi og skyldur svo að segja
teknir orðréttir upp úr okkar reglum,
það er aðeins í fáum atriðum, sem nýju
lögin ná lengra.
Annað stórmál langar mig líka til að
minnast á, sem er alger nýjung á sviði
félagsmála hér á landi, en það er stofn-
un Starfsmannaráðs Landsímans, það
er viðauki við starfsmannareglurnar og
hlaut staðfestingu þann 20. júlí 1953,
af fyrrverandi símamálaráðherra Birni
Ólafssyni og póst- og símamálastjóra.
Með stofnun þess er tekinn upp alveg
nýr þáttur í starfsemi félagsins og
stofnuninni. I starfsmannaráði eiga sæti
forstjórar aðaldeilda Landsímans í Rvík.
skrif stofust j órinn, yf irverkf ræðingur,
bæjarsímastjórinn og ritsímastjórinn,
ásamt tveim fulltrúum frá F.l.S.
Á fundum þess, sem haldnir eru
tvisvar í mánuði verður að ræða og taka
afstöðu til þeirra mála, er varða launa-
kjör starfsmanna, tillögur um breyt-
ingar á launalögum, færslu milli launa-
flokka, skipun í stöður og frávikningu,
svo og önnur mál er varða hagsmuni
stéttarinnar eða einstakra starfsmanna,
ennfremur skipulagsmál. Þá er gert ráð
fyrir að allir háir, sem lágir innan stétt-
arinnar, sem hafa eitthvað fram að
færa stofnuninni til framdráttar komi
hugmyndum sínum á framfæri við
Starfsmannaráð og, ef ráðið telur hug-
myndirnar þess verðar, þá getur það
gert tillögur um að veita tillögumönn-
um verðlaun fyrir þær. Þessi tilhögun
hefur reynst vel í stórfyrirtækjum er-
lendis, hún hvetur óbreytta liðsmenn til
að leggja sig fram og koma með sjálf-
stæðar hugmyndir, sem þeir hafa öðl-
ast gegnum reynslu sína í starfi.
Starfsmannaráð er aðeins ráðgef-
andi. Það sendir tillögur sínar til póst-
og símamálastjóra, þær af tillögunum,
sem hann hefur ekki vald til að taka
endanlega ákvörðun um sendir hann á-
fram til símamálaráðherra. Starfs-
mannaráð hefur nú starfað rúmt ár,
starfsemi þess hefur að mestu snúist
um mál, er varða starfsfólkið og er
það ekkert óeðlilegt, þar sem það hlýt-
ur ætíð að vera mikilsvert hverju fyr-
irtæki að hafa ánægðu og dugmiklu
starfsfólki á að skipa. Fyrstu starfsár
ráðsins hljóta að miklu leyti að marka
stefnu þess í framtíðinni. Því er það
afar áríðandi að starfið takist vel.
Skoðun mín á störfum þess þetta
fyrsta starfsár er sú, að það lofi góðu
um framtíðina. Fulltrúar stofnunar-
innar hafa sýnt fullan hug á því að
skilja og leysa þau mál, sem varða
hagsmuni stéttarinnar. Ég vil fyrir
hönd félagsins flytja þeim okkar beztu
þakkir. Annars er það mikið á valdi
yfirstjórnar símamálanna hvernig til-
tekst um þenna nýja þátt í starfsemi
stofnunarinnar og ég vona, að hún hlúi
að honum, ekki síður en starfsmanna-
reglunum á sínum tíma. Verði sú trú
mín að veruleik, verður ekki langt að
bíða þess, að önnur stórfyrirtæki
hér á landi taki upp þessa starfshætti
okkar og er það vel ef við getum aftur
orðið öðrum stéttum og stofnunum til
fyrirmyndar......Að lokum þakka ég
svo öllum þeim félögum sem unnið