Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2005, Blaðsíða 33
Menning£ÍSl
mTVM@M>WM0mMBm5 33-
Meiri hátíðahöld eru í vændum
Myndaveisla í
Norræna húsinu
Áhugaleikfélögin eru enn aö og standa fyrir sýningum með
jöfnu millibili: í Félagsheimili Kópavogs er sýning 1 gangi
sem byggir á Kirsuberjagarðinum og í Þjóðleikhúskjallara
sýnir Hugleikur einþáttunga og kynnir atriði úr jólasýn-
ingu sinni, Jólaævintýri eftir Charles Dickens.
Fétagar i Leikfélagi Kópavogs
snua og spinna upp úr Tsjekhov
DV-mynd Leikfelag Kópavogs
_.... ' N I
Wtf
f \ i
\
Fast Forward / Fast Rewind,
eftir Stefan Otto, Svíþjóð, 2002
Hátíð er kölluö Criss Cross og
stendur dagana 12.-20. nóvember.
Þá verða sýndir tveir hlutar kvik-
myndadagskrárinnar Criss Cross
sem Nifca - norræna listastofnun-
in - hefur látið gera þar sem stefnt
er saman verkum kvikmyndagerö-
armanna og myndlistarmanna,
sem og heimildamyndum, frá
Norðurlöndunum og Eystrasalts-
rflgunum.
í fréttatilkynningu frá Nifca seg-
ir: „í stað þess að haída sig við hefð-
bundna skilgreiningu kvikmynda-
verka, beinir Criss Cross sjónum að
hinni kvikmyndalegu nálgun sem
slíkri, í þeim tilgangi að undirstrika
samleflinn á milli heima kvik-
myndagerðarlistar og myndlistar."
Tvær samsettar dagsícrár verða í
boði þessa tíu dagæ „Social - Polit-
ical“ sem lítur til ástands heimsins í
fortíð og nútíð, og hvemig kvik-
myndagerðarmenn og listamenn
hafa brugðist við óreiðu hans.
„Film on Film* skoðar inntak og
birtingu ímynda og sögu þeirra og
kannar á víðum grunni hvar mörk
hins sanna og falska liggja.
í „Film on Film“ er stefnt saman
verkum eins og The Five Obstruct-
ions eftir Jargen Leth og Laxs von
Trier, Project for a Revolutíon eftir
Johanna Billig, Urban Fiction eftir
Pia Rönicke, Helmut eftir Anri Rul-
kov, auk fimm annarra stuttmynda
um myndlist. Fyrsta sýning verður
á laugardag kl. 13 og tekur þetta úr-
val þrjár og hálfa klukkustund í sýn-
ingu með hléi.
„Social Political“-dagskráin
verður sýnd fyrst á sunnudaginn kl.
13. og tekur um þrjár klukkustundir
í sýningu. Þar eru heimildamyndir í
forgrunni, alls tólf myndir: Hidden
eftír David Aronowitsch og fleiri,
Hver hengt út þvottinn eftir
Hröbbu Gunnarsdóttur, Der Fall
Joseph eftir Petru Bauer, The Girlis
Irmocent eftir Arturas Raila, Grand-
mother, Hitler andl eftir Carl Johan
De Geer, War on Paranoia eför
Jannicke Systad Jacobsen, auk sex
stuttmynda.
Ævintýri fyrir alla fjölskylduna í
Tjarnarsal á sunnudag
Stúlkan íturninum
Pyrstu tónleikar Caputs í Reykja-
vík á þessu starfsári verða haldnir í
Ráðhúsi Reykjavíkur á sunnudaginn
kl. 14.
Flutt verður ævintýri Jónasar
Hallgrímssonar, Stúlkan f tuminum,
með tónlist Snorra S. Birgissonar.
Snorri verður sjálfur sögumaður og
Guðmundur Óli Gunnarsson stjóm-
ar hópi 13 hljóðfæraleikara.
Verkið var pantað af Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands sem hefur
flutt það, ásamt Snorra, á fjölmörg-
um skólatónleikum f fimmtán
grunnskólum fýrir norðan við frá-
bærar undirtektír. Það mun nú heyr-
ast f fyrsta sinn sunnan heiða.
Ævintýrið um stúlkuna f tumin-
um er eitt þriggja þekktustu prósa-
stykkja Jónasar, en hin em Leggur
og skel og Grasaferð. Það er fúllt af
óhugnaði en stúlkunnar freistar
óvættur og býður henni gull og
græna skóga.
Á tónleikunum kemur eirrnig
fram Dúó Stemma sem spilar og
segir söguna um Jón bónda. Þá hef-
ur heyrst að hópurinn muni spila
W
w
Guðmundur Óli Stjórnar Caput, þeirri
margverðlaunuðu gruppu i Róðhúsinu.
DV-mynd E. Ól.
sprellfjörug lög í útsetningum
hljómsveitarstjórans, Guðmundar
Óla.
Tónleikamir era um 40 mfnútna
langir og henta fólki á öllum aldri.
Ókeypis aðgangur.
Það nrær og grær...
Leikfélag Kópavogs frumsýndi
nýverið leikritið Það grær áður en
þú giftir þig. Næstu sýningar eru
sunnudaginn 13. nóvember og
fimmtudaginn 17. nóvember kl.
20.
Verkið er spunaverk, byggt á
Kirsuberjagarði Tsjekhovs. Leik-
hópurinn vinnur textann sinn
sjálfur, gegnum leik með senur,
þar sem alltaf er leitað að vend-
ingum. Ekkert handrit er til, unnið
er út frá samkomulagi leikaranna
um það hver er aðalvending
hverrar senu. Leikstjóri er Sigrún
Sól Ólafsdóttir.
Leikurinn gerist í litlum bæ;
Sandhellisgerði á Suðurfjörðum.
Grönveltsfjölskyldan var eitt sinn
voldugasta ættin á fjörðunum.
Þau búa í hlíðinni ofan við bæinn,
í einu fallegasta húsi þessa lands-
hluta. Húsið má að vísu muna fífil
sinn fegri og þarfnast sárlega lag-
færingar. Umhverfis húsið er
Grönveltslundur, hin fræga skóg-
rækt sem Grönvelt gamli og Dillý
konan hans ræktuðu upp.
Erfingjar hans seldu burt kvót-
ann, húsið er að hruni komið, og
þar að auki á snjóflóðahættu-
svæði, þannig að nú má ekki búa í
því nema á sumrin. Grön-
veltslundur er að kafna í illgresi,
og enginn sem nýtir matjurta-
garðana stóra, sem voru grunnur-
inn að veldi Grönvelts gamla. Erf-
ingjarnir liggja í hamborgaraáti og
tölvuleikjum, og Ástvaldur, elsti
sonurinn, gerir ekkert til að bjarga
málunum
En Lúðvík er athafnamaður.
Hann er fæddur og uppalinn í
plássinu. Hann gerir út þessa tvo
báta, hann rekur vídeóleiguna og
bensínstöðina og hann vill bæn-
um vel. Hann vill snúa vörn í
sókn. Hann vill framkvæmdir.
Hann vill nýta það að flugvöllur-
inn stendur við bæjardyrnar og nú
er verið að grafa göng gegnum
fjallið. Hann vill nýja ímynd á
Sandhellisgerði.
En hlusta Grönveltserfmgjarnir
á hann?
Sýnt er í Félagsheimili Kópa-
vogs og hefjast sýningar kl. 20.
Hægt er að panta miða í síma 554-
1985 og með því að senda póst á
midasala@kopleik.is. Frekari
upplýsingar um sýningardaga er
að finna á heimasíðu félagsins
www.kopleik.is.
Þetta mánaðarlega í Kjallaranum
Um langan aldur hefur félags-
skapurinn Hugleikur, sem er sam-
tök áhugafólks um leiklist í Reykja-
vík, staðið fyrir leiksýningum af
ýmsu tagi, oftast á frumsömdu efni
eftir félaga í hópnum. Hugleikur
hefur lengst af haft aðsetur í gamla
íshúsinu við Tjörnina, Tjarnarbíó,
en nú hefur félagið flutt starfsemi
sína um set að hluta og býður upp
á blandaða skemmtidagskrá í Leik-
húskjallaranum föstudags- og
laugardagskvöld undir nafninu
Þetta mánaðarlega, en félagið
verður með mánaðarlegar
skemmtanir þar í vetur og verður
öðru sinni á ferðinni á föstudags-
og laugardagskvöld.
Að vanda verða nýir frumsamd-
ir einþáttungar á efnisskránni.
Sævar Sigurgeirsson er höíúndur
þáttarins Bara innihaldið þar sem
skopast er með skemmtanamynst-
ur miðaldra íslendinga. Vinnan
göfgar nefnist þáttur eftir Júlíu
Hannam og fjailar um að því er
virðist hversdagslega starfskynn-
ingu en tekur fyrr en varir óvænta
^stefnu.
Tónlist hefur löngum verið
áberandi í verkum Hugleiks og
fjölmörg tónskáld og flytjendur
innan raða félagsins. Hljómsveitin
Ljótu hálfvitarnir er skipuð gamal-
grónum hugleiksmönnum, þeim
Ármanni Guðmundssyni, Sævari
Sigurgéirssyni og Þorgeiri Tryggva-
syni. Tónlist þeirra þykir sérkenni-
leg mjög og tónleikar fátíðir. Hér
gefst tækifæri til að hlýða á þetta
einkennilega band.
Félagið hefur nýlokið upptök-
um á tónlist næsta stórverkefnis,
sem er söngleikjagerð á A
Christmas Carol eftir Charles Dic-
kens sem kallað hefur verið Jóla-
ævintýri í íslenskum þýðingum.
Dagslaánni lýkur með sýnishorn-
um úr tónlist verksins, en höfund-
ar hennar era Snæbjörn Ragnars-
son og Þorgeir Tryggvason. Þetta
mánaðarlega hefst kl. 22.
Jón Geir Jóhannsson úr
Hugleik í Jólaævintýri
eftir Dickens
J/r,