Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.01.1958, Qupperneq 14

Símablaðið - 01.01.1958, Qupperneq 14
« S í M A B LAÐ I Ð Cjukm. J}ót onááon: MINNINGAR ItnuMnanns Áður hafa birzt hér í blaðinu framhaldsgreinar, sem eru minningar simamanna frá fyrri tímum. Slíkar greinar eru kærkomið lestrarefni þeim, sem láta sig eftirminnilega og frá- sagnarverða atburði úr lifi símamanna einhverju varða, — en eru jafnframt sögulegar heimildir. Æskilegra væri, að geta birt slíkar frásagnir í einu lagi, en sé um mikið efni að ræða, leyfir rúm blaðsins það ekki. — Hér byrjar ein slik grein eftir línu- mann, sem mun birtast í næstu blöðum. En líf línumannanna, sem ferðast sveit úr sveit, er fjölbreyttara en flestra annara símamanna. Við gengum grýttan hálsinn frain með línunni, horfðum upp í vírana og hugðum að vetrarslitum. Við áttum líka að skipta um hrotna einangrara. slitnar benzlingar og upprétta króka, sem vetrarísingin vatt til og rétti upp, ef að linuvírinn var nógu sterkur til að þola átökin. Stauraskórnir og talían trommuðu í sífellu sama göngulagið á herðum mér og vírhönkin og fleira dót lék svipað lag á herðum félaga míns. Við vorum eins og skeljaskrimsli, sem lýst er í þjóðsögum og voru hvimleið mönnum og skepnum, einkum i myrkri. Þannig gengum við dag eftir dag og gerðum við það, sem bilað var, eftir beztu getu. Vinnan var þó að mestu fólgin í gangi. Því að þótt við sæjum staura hallast eða gengna svo og svo mikið upp úr jörð, gátum við ekki lagfært það, til þess skorti okkur grafverk- færi og áburðarhest. Þótt athygli okk- ar beindist að miklu leyti að símalín- unni og ástandi liennar: urðum við líka „að sjá fótum okkar forráð“. — Landið, sem línan lá um, var stundum mjög ógreiðfært. Brattar hlíðar með giljadrögum, fen og fúamýrar, lausa- skriður og grjót, lækir og ár, sem við urðum að vaða, en þá var oft farið úr skóm og sokkum. Sárt var að ganga berfættur á eggjagrjóti, ef vatnið var straumhart og kalt. Það var sannköll- uð píslarganga. Félagi minn, sem var alinn upp í sveit, reyndi þegar tækifæri gafst að ná sér í ódýra ferju á hestbaki, en vegna þess að sjaldan voru tamin hross við hendina, tókst honum oft ekki að ná í nokkurt þeirra. Hinsvegar varð hann einu sinni fyrir því óhappi, að ótemja sló úr honum tvær tennur og skaddaði hann eitthvað meira i andliti, svo að hann fékk varan- leg lýti. Eftir það átti hann sjaldan eltingaleik við stóðhross. Stundum gat það komið fyrir, að

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.