Símablaðið - 01.05.1962, Síða 12
Lm stjórn
Eins og getið var um í
síðasta blaði hefur félags-
deild símvirkja haldið uppi
námskeiði í ræðumennsku
og fundarstjórn í vetur. Hef-
ur umræðuefni verið marg-
víslegt, og skiptust menn á
um framsögu í málunum.
Símablaðinu er kunnugt
um, að ýms þessara erinda
voru athyglisverð frá stéttar-
legu sjónarmiði, — hafa
fjallað um dagskrármál fé-
lags okkar.
Eitt þeirra er birt hér á
eftir með leyfi ræðumanns,
sem er svo óþarflega hlé-
drægur að hann óskar að
nafns síns verði ekki getið.
En sýnilega hefur hann
fylgst með skrifum hér
í blaðinu um stjórn ríkis-
fyrirtækja, — og má full-
yrða, að meðal símamanna
almennt eru líkar skoðanir
efst á baugi. Enda hafa blað-
inu borist fleiri greinar um
það efni, sem enn hefur ekki
verið rúm fyrir, en verða
birtar eftir því, sem ástæð-
ur eru fyrir hendi.
Við lifum í litlu og fátæku
þjóðfélagi, sem ekki má við
miklum mistökum í rekstri
þjóðarbúsins, og þá ekki
heldur í stjórn opinberra
fyrirtækja.
Ég tel því ekki úr vegi,
að við ræðum hér nokkuð
um það, hvort það form á
stjórn flestra þeirra, sem
hér ríkir, er heppilegt eða
hvort ekki er tímabært að
endurskoða það. Ég hef þá
fyrst og fremst í huga stofn-
21. gr.
Dómur Kjaradóms er fullnaðarúrlausn kjaradeilu.
Dómur Kjaradóms kemur til framkvæmda á næstu
áramótum eftir uppsögn hans og gildir í tvö ár.
Dómur bindur aðilja á sama hátt sem samningur
þeirra, og gilda um uppsögn kjaraákvæða hans og fram-
lengingu ákvæði laga þessara um kjarasamninga, sbr.
II. kafla.
V. KAFLI
22. gr.
Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja tekur af
þess hendi ákvörðun um uppsögn kjarasamnings, en um
ákvörðun hennar skal fara fram allsherjaratkvæða-
greiðsla starfandi ríkisstarfsmanna, er í hlut eigi, til
samþykktar eða synjunar.
Þegar bandalagsstjórn tekur ákvörðun samkvæmt 1-
málsgr. skal hún skipuð eins og þegar hún velur í Kjara-
ráð samkvæmt 3. gr.
VI. KAFLI
23. gr.
Kjaranefnd skal skipuð fimm mönnum.
Hæstiréttur skipar þrjá nefndarmanna. Skal einn
þeirra vera lögfræðingur og formaður nefndarinnar.
Fjármálaráðherra skipar einn nefndarmann.
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja skipar einn
nefndarmanna.
Sömu aðiljar skipa varamenn í Kjaranefnd.
24. gr.
Kjaranefnd sker til fullnaðar úr ágreiningi samnings-
aðilja um:
1. Skipun einstakra manna í launaflokka kjarasamnings.
2. Hver aukastörf rétt sé að telja til aðalstarfs og hver
beri að launa sérstaklega.
3. Vinnutíma, yfirvinnu og yfirvinnukaup einstakra
starfsmanna.
VII. KAFLI
25. gr.
Félagsdómur dæmir í málum, sem rísa milli samnings-
aðilja út af brotum á lögum þessum og ágreiningi um
skilning á kjarasamningi og gildi hans.
Þegar félagsdómur fer með slík mál, nefna Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja og fjármálaráðherra dómend-
ur til setu í dóminum í stað þeirra dómenda, er nefndir
hafa verið af Alþýðusambandi íslands og Vinnuveitenda-
sambandi íslands.
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja rekur mál fyrir
SÍMABLAÐ1Ð