Símablaðið - 01.05.1962, Qupperneq 19
sem er 80 slög á mínútu og
okkar eigin hjartslætti, sem
var 160 slög á mínútu.
Þá skal hér lauslega
getið um nýjasta furðu-
verkið á sviði rafeindavís-
indanna. Furðuverk þetta er
vél, sem getur lesið, eins og
mannlegt auga. Hún getur
jafnframt hugleitt og lagt á
minnið það sem hún les.
Vísindamenn sjá fram á ó-
trúlegustu möguleika í sam-
bandi við vél þessa, sem
hlotið hefur nafnið „augað“.
Hún getur t. d. lesið úr um
90.000 kortum yfir daginn
og vinnur þá á við 25—100
manns, vinnur verkið betur,
gerir örsjaidan villur og
þarf aldrei að skreppa frá
til að fá sér kaffisopa.
Rafmagnsheilarnir hafa
með „auganu“ eignast góðan
bandamann, því þó nýjustu
rafmagnsheilarnir séu mjög
fullkomnir, þá er sá galli á,
að fyrir utan það, að geta
ekki hugsað sjálfstætt, eins
og „augað“, þá takmarkast
afköst þeirra við hraða
þeirra manna, sem ,,mata“
rafmagnsheilana.
Ameríska póstþjónustan
sem jafnan hefur fullkomn-
ustu tæki í þjónustu sinni,
getur nú með aðstoð „aug
ans“ sundurliðað bréfapóst
5 sinnum hraðar en áður.
☆
Bókaútgefendur, sem ætla
að gefa út bók, þýdda af
erlendu tungumáli, láta
„augað“ sjá um að þýða bók-
ina, skila þýðingunni tii
setjaravélanna og að lokum
letrinu til prentvélanna.
Það hefur verið uppgötv-
að, að mörg amerísk fyrir-
tæki, sem hafa ,,augað“ í
þjónustu sinni, hafa viljað
halda því leyndu, því vart
hefur orðið taugaspennu hjá
starfsfólkinu, þegar það hef-
ur orðið þess vart, að á
meðal þeirra er allt í einu
komið gráðugt sjáandi
„auga“, sem enginn veit
raunverulega hversu megn-
ugt er.
Á þessu má sjá, að það er
freistandi, að taka undir
með þeim mönnum, sem
halda því fram, að tækni-
framfarirnar í heiminum séu
of örar miðað við þroska
mannsins almennt. Ekki tel
ég mjög mikla hættu á, að
svo sé, því maðurinn hefur
ótrúlega mikla hæfileika til
að samlagast tæknilegum
nýjungum og nýta sér þær.
Hitt er annað mál, að við
hina öru tækniframþróun,
munu skapast fleiri og fleiri
tómstundir og þá er hverj-
um einstaklingi hollt að hug-
leiða hvernig hann notar
þessar stundir. Nú vitum
við að tómstundir okkar eru
margar hverjar notaðar til
nytsamlegra hluta, svo sem
að koma sér og sínum þaki
yfir höfuðið, eða til annarra
álíka nytsamlegra hluta. En,
sem betur fer, er líka öðru
hverju stund og stund til
að sinna andlegum hugðar-
efnum og taka sér góða bók
í hönd, eða setjast niður og
skrifa nokkrar línur í Síma-
blaðið.
Eins og kunnugt er, hefur
Símablaðið haft getrauna-
samkeppni í jólablaðinu
undanfarin ár, með því hef-
ur það viljað leggja sitt fram
til að vekja áhuga hjá síma-
stéttinni á gildi góðra bók-
mennta.
Blaðið gleðst yfir þeim
áhuga, sem símafólk hefur
sýnt við að rifja upp kynni
sín við íslenzkar bókmennt-
ir og vonar að það sé spor
í rétta átt til aukins þroska.
Aukinn þroski hjá hverj-
um símamanni og konu, er
aukinn styrkur fvrir stéttina
í heild og nú t. d. þegar verk-
fallsréttur okkar opinberra
starfsmanna virðist vera á
næsta leyti, kemur til okkar
kasta, að sýna að við höfum
ekki minni þroska til að
bera, en aðrar stéttir, til að
ráða yfir slíkum eignarétti.
Öll þjóðin mun fylgjast vel
með þeim málum og væri
vel ef opinberum starfs-
mönnum bæri gæfa til að
vera öðrum stéttum til fyrir-
myndar í meðferð þeirra
mála, á komandi árum.
.SCANNERINN'' breytir
tölustafnum í svarta
og hvíta geisla
Tölustafnum
breytt í
.yídeo-signal
Photocell'breytir
Ijósorkunnií straum-
A* ^ Púlsa
Púlsarnir fró.Photo-
cellunnrtengdir inn
á rafmagnsheilasem
flytur tölustafinn yfir
á segulband eöa kort
fyrir reiknisvélac
Linsa
'„SCANNING" HJÓL
(1QOOO snúningar
á mínútu.)
Linsa
AUGAÐ