Símablaðið - 01.05.1962, Side 20
Jóhanna Elíasdóttir —>
Halldóra S. Árnadóttir og
Guðlaug Þórðardóttir,
fulltrúar 1. deildar í Félags-
ráði.
Við talsímaafgreiðslu vinna
nú hátt í 300 stúlkur. Þetta
er lægstlaunaði starfshópur-
inn við stofnunina. Einu
sinni völdust til þessa starfs
mestmegnis dætur embættis-
manna og velstæðra borgara,
sem sóttust eftir starfinu til
að afla sér vasapeninga,
launalögin frá 1919 eru sögu-
leg heimild um það.
En hópurinn stækkaði og
viðhorfin breyttust. Færri
og færri sóttust eftir starfinu
til að afla sér vasapeninga.
Fleiri og fleiri þurftu að lifa
af launum sínum. En þá tók
við annað viðhorf: Launa-
kjörin miðast við þarfir ein-
staklings og því viðhorfi
hefur reynst erfitt að breyta.
En þróun þjóðfélagsins hef-
ur skapað ný viðhorf: Leng-
ur verða ekki opinber störf
metin til launa hér á landi
eftir því hvort þau eru
unnin af karli eða konu
heldur eftir eðli starfsins
sjálfs.
Lengur verður þetta starf
heldur ekki metið til fram-
færslu einstaklings, heldur
er það staðreynd, að fjöldi
símastúlkna verða að sjá fyr-
ir öðrum.
Við hina nýju endurskoð-
un er það því nauðsynlegt
að þessi starfshópur sé ekki
afskiptalaus, en kynni þeim,
sem að þessum málum koma
til með að vinna, viðhorf sín
og starf, eigi hin gömlu og
úreltu sjónarmið ekki enn
að hafa áhrif á þau launa-
kjör sem talsímakonur koma
til með að búa við í fram-
tíðinni.
Þá gefzt nú þessari deild
tækifæri til að hafa áhrif
á það, að þar myndist fleiri
hækkunarstöður, svo að ein-
hverju sé að keppa fyrir
þær stúlkur, sem gera síma-
afgreiðsluna að lífsstarfi.
%
Landsfundur F. I. S.
verður haldinn seinnipartinn
í sumar. Eitt aðal viðfangs-
efni hans verður það viðhorf,
sem skapast hefur við algera
sameiningu pósts- og síma.
Víða utan Reykjavíkur hafa
starfað við síma- eða póst-
afgreiðslu stúlkur, sem ekki
eru félagsbundnar. Að vísu
hafa símastúlkur á 1. flokks
B-stöðvum átt þess kost, að
vera félagar í F.Í.S. en á
því hefur verið mikill mis-
brestur. í framtíðinni munu
þessar stúlkur vinna jöfnum
höndum að síma- og póst-
afgreiðslu, og eiga því eðli-
lega að ganga í F.Í.S. og
það ættu þær að gera upp
til hópa fyrir Landsfund og
þyrftu að eiga fulltrúa þar,
þegar ákvörðun verður tekin
um félagsstöðu þeirra.
<— Dóra Ólafsdóttir
Varðstjórar við tal-
símaafgreiðsluna á
Akureyri. — stærstu
stöðina utan Reykja-
víkur.
'.V.V
5ÍMABLAÐIÐ