Símablaðið - 01.01.1964, Side 12
Hluti af byggingum
L. M. E. í
Stokkhólmi.
að símastjórnirnar í Egyptalandi og Ástra-
líu hafa ákveðið þessa veljara sem stand-
ardkerfi.
L. M. E. heldur áfram tilraunastarfi af
miklum krafti á smíði sjálfvirkra sím-
stöðva, og er t. d. mikil vinna lögð í að
fá fram sjálfvirka elektroniska stöð, þ. e.
stöð laus við alla mekaniskar tengingar. Með
þessum stöðvum fær maður miklu fljótari
tengingu milli símanotenda en með hinum
tveim fyrrnefndu kerfum.
Ein stærsta peningahítin í sambandi við
símakerfi er venjulegast línukerfið milli
hinna ýmsu staða, og að geta notað það á
sem hagkvæmastan hátt, er þar af leiðandi
ákaflega nauðsynlegt.
Þess vegna hefur L. M. E. lagt mikið
kapp á að fylgjast sem allra bezt með á því
sviði.
Eitt af því, sem tæknin hefur komið fram
með til að geta notað línunetin betur, eru
hinir s. k. fjölsímar, sem gera það mögu-
legt að flytja mörg samtöl samtímis á
einni og sömu línu.
Á seinni árum hefur þörfin fyrir fjöl-
síma aukizt stórlega mikið vegna hinnar
auknu notkunar símans milli staða, landa
og heimsálfa. Þetta hefur leitt það af sér,
að krafa til þessara tækja er, að þau taki
minna pláss en áður, noti minni orku og
þurfi litla umhugsun. Þess vegna hefur
L. M. E., til að verða við þessum kröfum,
hafið framleiðslu á nýrri gerð fjölsíma, sem
segja má að uppfylli fyrrnefndar kröfur.
Fjölsímar L. M. E. hafa náð miklum
vinsældum víða um heim, meðal annars
fyrir mjög vandaða framleiðslu og frágang.
L. M. E. framleiðir fjölsíma fyrir loft-
línur Par-jarðstrengi Koax-strengi og radíó-
sambönd, auk þess sem framleiddir eru
fjölsímar fyrir háspennulínur.
Einnig framleiðir L. M. E ýms sérstök
fjölsímatæki fyrir t. d. útvarps- og sjón-
varpssendingar.
Hér hefur verið stiklað á stóru í sam-
bandi við sögu og starfsemi L. M. E. Margt
fleira mætti nefna, en það yrði of langt mál.
Jón Valdimarsson.
SKRÝTLUR
Það var áður en sjálfvirki
síminn kom, að kona nokkur
í kaupstað úti á landi hringdi
á miðstöð og bað um „slátur-
húsið“. Símastúlkan mis-
heyrði beiðnina og gaf kon-
unni samband við „sjúkra-
húsið“.
,,Halló“ svaraði yfirlækn-
irinn.
„Já, halló, ég ætlaði að
vita hvort þið hefðuð slát-
ur.“
„Ekki er það ómögulegt,“
svaraði yfirlæknirinn, sem
er maður spaugsamur.
„Ætli ég gæti fengið 5“
spurði konan.
„Nei,“ svaraði yfirlæknir-
inn, „svo miklu lógum við
ekki á einum degi,“
Á ísafirði var símastúlka
eitt sinn að taka á móti
skeyti frá Patreksfirði. Text-
inn átti að vera: „Góðfúslega
sendið 12 stk. borhulsur.“
Þegar stúlkan afhenti sím-
ritaranum skeytið til áfram-
sendingar, hafði textinn í
meðförum hennar breytzt í
„12 stk. gorpylsur."
\