Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Síða 10
7 0 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 Fréttir DV Kostir & Gallar Bjami þykir traustursem vinur og fjölskyldumaður. Mikill múslkant og góður söngvari. Metnaðargjarn, samvisku- samur og sterkur persónuleiki. Hann á það til að mála skrattann á vegginn og er stundum þungur á brún. Hann er lélegur í golfi. „Hann er mjög músíkalskur og mikill tónlistarmaður. Hann er skemmtilegur strákur og heilmikill húmoristi. Bjarni er mikill vinur vina sinna. Hann er metnaðar- gjarn gagnvart tóniistinni og gerir vel það sem hann tekur sér fyrir hendur. Eini gallinn sem ég man eftir I augnablikinu er að hann er lélegur Igolfi." Þórir Úlfarsson upptökustjóri „Hann er náttúrulega ofsatega góður strákur og gegnheill. Hann er traustur sem vinur og sannur sjálfum sér. Hann hefur reynt ýmislegt i líf- inu og stendur uppi sem sterk persóna eftiroft á tíðum erfitt lífshlaup. Hann er einn afbestu söngvurum landsins, alvöru- söngvari. Hann á það til að vera stundum svolítið þungur og framtakslitill en þegar hann kemst á flug fer hann á fulla ferð." Agúst Héðinsson, rúðgjafi útvarpssviðs 365. „Hann er mikill húmoristi, hefði átt að vera leikari. Hann finnur alltafþað góða í fólki og talar aldrei illa um neinn. Hann stendur við það sem hann segir og er mjög sam- viskusamur. Hann ermjög tryggur sinum vinum og fjöl- skyldu. Gallarnir eru helst þeir að hann er algjör vinnuflkill og svo á hann það líka til að detta I neikvæða gírinn og málar þá stundum skrattann á vegginn. Silja Ragnarsdóttir, söngkona og tann- tækninemi. Bjarni Arason er fæddur 13. júlí 1971. Hann hefursungiö frá 15 ára aldri eða frá því að hann vann keppni um látúnsbarka íslands og siðan þá hefur hann sungið inn á 6 plöt- ur. Nýjasta plata Bjarna kom út á dögunum og heitir Svíng. Bjarni hefur starfað sem út- varpsmaður í meira en áratug og starfar núna á Bylgjunni, þar sem hann er með þátt alla virka daga á milli 13 og 16. Feður skemur heima Feður barna sem fæddust á árinu 2004 taka að jafnaði aðeins 94 daga í fæðingarorlof, eða um þrjá mánuði, en mæður taka að jafn- aði 182 daga, eða um sex mánuði. Þetta kem- ur fram í nýrri töflu í Stað- tölum Tryggingamiðstöðv- ar ríkisins fyrir árið 2004. Þar kemur einnig fram að útgjöld vegna fæðingaror- lofs og fæðingarstyrks juk- ust um nftján prósent milli áranna 2003 og 2004. Á síð- asta ári námu útgjöldin samtals 6,6 milljörðum króna. Konur fengu greidda 3,7 milljarða en karlar 2,9 milljarða. Forstjóri VÍS, Finnur Ingólfsson, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóri, er einn af handhöfum diplómatapassa íslenska ríkisins. Finnur hætti sem seðlabankastjóri fyr- ir rétt rúmum þremur árum en hefur haldið passanum jafnvel þótt hann uppfylli ekki skilyrði fyrir honum og hafi átt að skila honum strax og hann hætti í bankanum. Allir passareins Diplómatapassarnir eru líka bláir. Finnur hefur ekki skilað passanum Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, er enn með diplómatapassa sem aðalbankastjóri Seðlabankans jafnvel þótt það séu rúm þrjú ár síðan hann hætti sem slíkur. í lögum um úthlutun passanna frá síðasta ári kemur fram að handhafar passanna eigi að skila þeim um leið og þeir hætta störfum sem veita þeim rétt til að vera með diplómatapassa. Þrátt fyrir þetta er Finnur enn með passa og segir í viðtali við DV í dag að hann hafi hreinlega gleymt að skila honum inn. Utanríkisráðuneytið hefur látið frá sér lista yfir þá sem eru handhafar diplómata- og þjónustupassa á veg- um þess. DV fór fyrst ffam á að fá list- ann seinni hluta októbermánaðar en var synjað um hann á grundvélli laga um persónuvemd. Mörður Ámason, þingmaður Samfylkingarinnar, fór fram á það við Geir Haarde utanríkis- ráðherra að hann fengi listann og fékk hann eftír hálfs mánaðar töf síðastlið- inn þriðjudag. Gleymdi að skila passanum Þegar listinn yfir handhafa diplómatapassa er skoðaður kemur í ljós að Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, er enn með diplómatapassa sem seðlabankastjóri þótt þrjú ár séu liðin frá því að hann hættí í því starfi. Sam- kvæmt reglum átti Finnur að skila passanum um leið og hann hætti en það hefur hann ekki gert. Hann flýgur heimsáffanna á milli, ýmist í erinda- gjörðum fyrir VÍS eða á eigin vegum með diplómatapassa í handraðan- um. Finnur sagði í samtali við DV í gær að hann hefði einfaldlega gleymt að skila passanum. „Ég verð bara að viðurkenna að ég hef ekki hugsað út í þetta. Þessi passi hefur ekki haft neitt annað en vandræði í för með sér fyrir mig því hann dregur að sér athygli er- lendis," sagði Finnur og bætti við að fyrir honum væru þessir passar til- gangslausir. „Þessi passl hefur ekki haft neitt annað en vandræði í för með sér fyrir mig því hann dregur að sér athygli erlendis." Passinn hans rennur út á næsta ári og þá mun Finnur fá svokallaðan þjónustupassa sem fyrrverandi ráð- herra. Áttum að ganga á eftir þessu Helgi Gíslason, sendiherra og prótókollmeistari í utanríkisráðu- neytinu, staðfesti eftír nokkra bið við blaða- mann í gær að Finnur væri enn með diplómatapassa jafnvel þótt hann ætti fýrir löngu að vera búinn að skila honum inn. „Passinn hans fell ur úr gildi á næsta ári þannig að þá verður hann ekld lengur með slíkan passa.“ Aðspurður hvort utanríkis- ráðuneytið hefði ekki átt að taka passann af Finni svaraði Helgi að það hefði kannski átt að ganga á eftír því. „Það fórst hins vegar eitt- hvað fyrir,“ sagði Helgi. fékk ekki upplystngar um diplómatapassa frá ráðu- neytinu en Mörður Arnason alþingismaður náði þeim út úr ráðuneytinu. Finnur Ingólfsson Hefur haft diplómatapassa sem seðlabankastjóri i þrjú á r síðan hann hætti þar störfum. _______ Sláturfélag Suðurlands keyrir mat frá Reykjavík í skóla á Dalvík Börnin fengu brauðbollur í hádegismat „Það voru einhverjir byrjun- arörðugleikar í haust. Það kom fyr- ir tvo daga í röð að maturinn dugði ekki til," segir Öskar Þór Sigur- björnsson, skólafulltrúi Dalvíkur- byggðar. Óskar segir skýringuna vera að maturinn hafi verið rangt vigtaður í Reykjavík og þess vegna ekki dugað. „í annað skiptið var svínakjöt í matinn og þau börn sem fengu það ekki fengu brauðbollur í staðinn," segir Óskar. Sláturfélag Suðurlands var eina fyrirtækið sem átti tilboð í skóla- máltíðir í Dalvíkurbyggð. Um er að ræða mat fyrir um 300 börn í tveimur grunnskólum og ein um leikskóla í byggðarlag- inu. Maturinn er keyrður daglega frá Reykjavík til Dalvíkur, um 400 kílómetra leið. Óskar segir að sumir hafi verið ósáttir með bollurn- Brauðbollur Börnin sem ekki fengu svinakjöt fengu brauðbollur í staðinn. „Égreiknameðað sum börn hafi verið fúl með að missa af svfnakjötinu og það voru nokkrir foreldrar sem kvörtuðu til skólans," segir Óskar og bætir við að mjög virkt eftirlits- kerfi sé með þessum málum og alltaf sé hægt að grípa til varabirgða. „Ef bíll- inn tefst á leiðinni og nær ekki fyrir hádegi eigum við • alltaf að hafa varabirgðir til að gefa börn- unum." Sláturfélagið sá ástæðu til að fyrir óþægindin bæta með því að gefa krökkunum pítsur í hádegismat eitt skipti. „Þeir verða að standa sig í þessu og við ætl- umst einnig til þess," segir Óskar. svavar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.