Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Side 32
<
32 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005
Menning DV
>
BJARTSMENN veðrast upp við
hól um höfunda sína og vlsuðu
nýlega á umsögn Magnúsar Þórs
.. Snæbjörnssonar
um Stefnuljós Her-
i manns Stefánsson-
* , ■ ará Kistunni:„Frum-
] legar hugmyndir,
_ mikil tilþrif í stíl og
Wá skemmtileg kímni-
gáfa Hermanns er
lesandanum sífellt
gleðiefni. Ég finn
engan smíðagalla
á þessari bók.Mér
er til efs að ég eigi
eftir að lesa um þessi jól íslenskt
skáldverk sem mérfinnst jafn
mikið til koma og Stefnuljósa."
Nýtt jóladagatal hefur göngu sína á Stöö 2 í kvöld og verður á dagskrá eftir Is-
land í dag allt fram á aðfangadag. Það kallast Galdrabókin og er með stærri verk
efnum sem Stöðin hefur pantað um langt skeið en Basecamp framleiðir.
Brandhildur Blott
Vonda drottningin i
ævintýraheimi
Galdrabókarinnar.
Hermann Stef-
ánsson Fær
marga gullmiða
á Kistunni.
„TVÍMÆLALAUST ein af áhuga-
verðustu bókum þessa árs og
mikið listaverk," segir hann.„Ef ég
yrði beðinn um að setja dóminn í
hnotskurn,sem prenta mætti á
gylltan límmiða, þá myndi ég
hugsa mig um í stundarkorn og
segja svo:„Magnaður skáldskap-
ur." Mangi þarf ekkert að setja sig
í hnotskurnarstellingar, löngu bú-
inn: „Ég finn engan smíðagalla á
þessari bók," ætti að duga Birting-
um vel.
GULLMIÐAHÁTlÐIN erframund
an: bein útsending við hátíðlega
athöfn og síðari hluti á Bessastöð
um innan átta vikna.
Eitthvað eru jónar og jfl
pálar að láta svona
hollíhú fara í pirring-
inn á sér,einsog
bókaútgefendum sé
ekki guðvelkomið
að veita sinn gull-
grís og ragi ekki
nokkurn mann:
miðinn fer af með
plastinu, slökkva 1
má á sjónvarpinu
eða skipta um rás og
ekki er nema fáum boðið (illa
kælt og ódýrt hvltvín á Bessastöð-
um.
(slensku bók-
menntaverðlaun-
in Þetta járnstykki
var til verðlauna í
hittifyrra.
Galdrabókin er ein stærsta
framleiðsla á bamaefni sem ráðist
hefur verið í á Stöð 2 um langt ára-
bil. Jóladagatöl hafa lengi verið á
dagskrá norrænna sjónvarps-
stöðva og sætt gríðarlegum vin-
sældum hjá ungum sem öldnum.
Þessi siður var tekinn í tíð Sigurðar
G. Guðjónssonar og mæltist strax
vel fyrir en ríkissjónvarpið hafði á
árum áður framleitt jóladagatöl.
Stórframleiðsla
Framleiðslufyrirtækið Ba-
secamp framleiddi tuttugu og fjóra
átta mínútna þætti, ekkert var til
sparað til að gera þættina sem
besta og skemmtilegasta. Leik-
stjóri var Inga Lisa Middleton en
handritsgerðin var í höndum Mar-
grétar Örnólfsdóttur.
Einn fremsti brúðustjómandi í
heimi Bemd Ogrodnik stjómaði
brúðum og hannaði þær, en Hlín
Gunnarsdóttir sá um leikmynd,
búninga og útlit brúðanna. Mar-
grét samdi alla tónlist.
Hópur leikara kom að því verki
að taia fyrir brúðumar: Hjálmar
Hjálmarsson, Álfrún og Margrét
ömólfsdætur, Ólafia Hrönn og
Sigrún Edda, sem báðar em með
reyndustu búktölumm landsins;
þá verður Pétur Jóhann í smáu
Jilutverld.
Galdrabókin hefur verið í
vinnslu í tæpt ár. Hún verður á
dagskrá strax á eftir íslandi í dag og
verður endursýnd í morgunsjón-
varpsdagskrá daginn eftir.
Þráður og snurður
Alexander er strákur sem er í
pössun hjá frænku sinni þegar
hann finnur Galdrabók sem
stranglega er bannað að fikta í. AI-
exander stenst hinsvegar ekki mát-
ið og hann opnar bókina og les
upp úr henni galdraþuJu. Eftir það
þeytist hann inn í veröld galdra og
töfra ásamt kettinum Pan og ugl-
unni Ólavíu. Til þess að komast
heim til sín fyrir jól þurfa AJexand-
er og vinir hans meðal annars að
læra á galdrabókina, gh'ma við tví-
höfða slöngur, rappkanínur, frelsa
góðu nomina sem situr í stofu-
fangelsi í tumi og er gætt af
eldspúandi dreka, aflétta álögum
og gæta þess að Galdrabókin kom-
ist ekki í hendur vondu nomarinn-
ar. Á leiðinni læra þau að ef þau
standa saman og sýna hvert öðm
umburðarlyndi og virðingu em
þeim allir vegir færir.
Samhliða þáttunum gefur Sena
út geisladisk með öllum lögunum
úr þátmnum og einnig er gefið út
jóladagatal sem líka er borðspil. Á
hverjum reit má sjá vísbendingu
um hvað mun gerast í þættinum
það kvöldið.
ANNARS er verðlaunafárið allt
orðið að einhverskonar látlausri
sjálfstyrkingarherferð fyrir þjóðina
á öllum stigum.
& i i i ™ í Llkt og I afmæl-
■■■■BCJIBMÍ um barna verða
allir að fá verð-
laun samkvæmt hinum norræna
jöfnuði. Og
vandlætarar
falla fram
grátandief
I þeim er gef-
! inn gripur úr
plasti með
lakkhúð.
Verst hvað
fáum er
__________________ mögulegt að
sjá hvað
þetta er dýr-
lega skop-
legt.
Harry Bicket hljómsveitar-
stjóri lætur gamminn
geysa I kvöld í barokkinu.
í kvöld verða árlegir aðventu-
tónleikar Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í Háskólabíói og verður
barokkið allsráðandi. Hallveig
Rúnarsdóttir sópransöngkona, Ari
Þór Vilhjálmsson, fiðluleikari og
Matthfas Nardeau óbóleikari
ásamt Sinfóníuhljómsveitinni
reiða fram glæsilega dagskrá und-
ir stjóm Harry Bickets.
Arfleifð barokktímabilsins f
tónlistarsögunni er mikil að vöxt-
um og glæsileg, hvort sem litið er
til kirkjulegrar eða veraldlegrar
tónlistar, kammerverka eða verka
fyrir hljómsveit. Á seinni ámm
hefur áhugi og þekldng tónlistar-
manna og tónlistaráhugafólks á
þessari gullnámu aukist til mikilla
muna. Nú er svo komið að fjöl-
margir hljóðfæraleikarar og
söngvarar sérhæfa sig í flutningi
barokktónlistar, leika á uppmna-
leg hljóðfæri (sem svo em kölluð
þó oft sé reyndar um að ræða eft-
irlíkingar gamalla hljóðfæra) og
leggja sig eftir því að túlka tónlist-
ina í anda þess sem vitað er um
flutningsmáta tímabilsins.
Þessi nýja og lífvænlega tónlist-
armenning hefur að einhverju
leyti gert það að verkum að
barokktónlist hefur hörfað í hin-
um hefðbundna tónlistarheimi.
Það er þó engin ástæða til að loka
dymm í húsi tónlistarinnar og því
hefur Sinfóníuhljómsveit íslands
ákveðið að tileinka árlega að-
ventutónleika sína hinni hreinu,
tæm og upphöfriu fegurð
barokksins. Harry Bicket er einn
þeirra hljómsveitarstjóra sem hef-
ur sérhæft sig í flutningi
barokktónlistar og hann heldur
um tónsprotann í ár: á verkefna-
skrá kvöldsins verða verk eftir J.S.
Bach, Rameau og Hándel. Það
hefst kl. 19.30.
Er ekki ráð að hafa
verðlaun frekar
svona praktlsk?
MAGNÚS ÞÓR (er hann skírður
beint I höfuöið á Megasi?) botnar
Kistupistil sinn sem er raunar
skemmtileg smlð með þessum
orðum:„Við ætluðum svo sem
ekki að segja neitt sérstakt. Þetta
átti bara að vera fyndið. Við erum
bullkynslóðin."
LAS ANNARS mér til hryllings um
helgina aö einhver ósvífinn
kaupahéðinn hefur stoliö Neon-
nafni Bjartsmanna og ætlar nú að
gefa út pornógraflu undir þessu
nafni á breska markaðnum. Ekkert
er mönnum heilagt. Vita þeir ekki
af ritröðinni góðu?
Bob Log hinn þriðji T ijH
Hin stórkostlega einmenningssveit Bob Log III spil- yíý 's|H
ar á Grand Rokki í Reykjavík á laugardag á vegum
menningarmiðstöðvarinnar 12 tóna. Bob á að baki V' ÍÉH
þijár plötur, School Bus (1998) og Trike (1999) undir ' -4H
merkjum Epitaph útgáfunnar og síðast Log Bomb frá r*
2002 sem Fat Possum gaf út. Það er þó einlcum með “ ímmSm k W
tónleikaframkomu sinni sem Bob Log HI hefur skapað “
sér nafn í tónlistarheiminum. Á meðan fætur Bob djöflast við trommu-
leik einbeita hendumar sér að 12 dollara gíturum og viskýflöskum. í
gegnum sfmtól sem hann hefur komið haganlega fyrir inn í hjálmi á
höfði sínu ýlfrar Bob sfðan og kyrjar kynörvandi mansöngva sína. Tón-
list Bob er lýst sem einhverskonar deltablússkomu og viskýlögðu
psychobilly. Áður en Bob stígur á svið ruglar pönksveitin landskunna,
Rass í áhorfendum. Forsala er hafin f 12 tónum.
Umsjón: Páll Saldvin Baldvinsson pbb@dv.is
Flugur