Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.01.1976, Side 8

Símablaðið - 01.01.1976, Side 8
Eins og áður hefur komið fram hefur Al- þjóðasamband póst- og símamanna, PTTI boðið F.Í.S. aðild að sambandinu, en end- anleg ákvörðun um aðild hefur ekki enn verið tekin. Stöðugt og vinsamlegt sam- band er milli F.Í.S. og PTTI og fær félagið reglulega fréttir af starfsemi sambandsins og hinna einstöku félaga þess. 22. 'heimsþing PTTI var haldið í Oslo á síðasta sumri og var félaginu boðið að senda þangað áheyrnarfulltrúa. Formaður F.I.S. sótti þingið fyrir hönd félagsins. FRAMLAG TIL MENNINGAR- OG KYNNINGARSJÓÐS F.Í.S. Eftir viðræður framkvæmdastjórnar við ráðuneytisstjóra Samgönguráðuneytisins og Póst- og símamálastjóra var orðið við þeim tilmælum stjórnarinnar, að framlag stofn- unarinnar til Menningar- og kynningar- sjóðs fyrir árið 1976 yrði hækkað úr kr. 500 í kr. 705 fyrir hvern fastan starfsmann. Upphæð þessi er miðuð við laun fyrir eina yfirvinnustund símvirkja/símritara. Jafnframt var fallist á, að framlagið verði framvegis jafngildi launa fyrir eina yfir- vinnustund þessara starfshópa eins og þau eru á hverjum tíma. ÝMIS MÁL Á síðastliðnu vori setti félagið fram kröf- ur í 6 liðum um bættan aðbúnað í vinnu- flokkum línumanna úti á landi. Helstu kröfur voru um aðstöðu til kæl- ingar á matvælum, bættan aðbúnað í í- búðarskúrum, viðunandi snyrti- og hrein- lætisaðstöðu og bætta aðstöðu fyrir starfs- menn til að njóta frítíma síns. Kröfur þessar voru ræddar í Starfs- mannaráði og fengu jákvæðar undirtektir. Enn er unnið að framgangi þessara krafna, og er þess að vænta að einhver ár- angur komi í ljós fyrir sumarið. Ágreiningur reis um launaflokkun tveggja línumanna, sem falin hafði verið flokksstjórn. Voru þeim greidd laun sam- kvæmt 16. lfl. en ekki 17. lfl. eins og samn- ingar félagsins um símaflokksstjóra segja til um. Var það gert á þeirri forsendu, að 6 starfsmennirnir væru ekki símsmiðir. Á- greiningur þessi var ræddur við stofnun- ina, en lausn fékkst ekki fyrr en félagið hafði rætt við Fjármálaráðuneytið, sem féllst á skoðun félagsins að greiða skildi þessum starfsmönnum laun samkvæmt 17. lfL Nú nýlega barst félaginu erindi frá starfsmönnum sem starfa við símalínu- kerfið á Keflavíkurflugvelli, þar sem kraf- ist er úrbóta hvað varðar öryggi við þau störf og bætts aðbúnaðar á staðnum. Full- trúar úr framkvæmdastjórn félagsins fóru á staðimn til að kynna sér allar aðstæður. í framhaldi af því var ráðuneytisstjóra Samgönguráðuneytisins og Póst- og síma- málastjóra ritað bréf, þar sem gerðar voru ákveðnar kröfur um úrbætur. Er nú unnið að framgangi þeirra. Mikill áhugi hefur verið í mörg ár hjá fjölmörgum starfsmönnum fyrir réttinda- kaupum í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkis- ins vegna námstíma hjá stofnuninni, en sjóðsstjórnin hefur ekki samþykkt það. Framkvæmdastjórn ræddi mál þetta við fjármálaráðherra og í framhaldi af því hefur nú verið samþykkt af lífeyrisstjórn- inni að leyfa slík réttindakaup. All mikil vinna hefur verið vegna upp- gjörs á aukavinnu í veikindum, en eins og kunnugt er náðist samkomulag milli BSRB og Fjármálaráðuneytisins um það mál og greiðslur fjögur ár aftur í tímann. Enn er þó ágreiningur um túlkun ein- stakra atriða er varða þetta samkomulag. Fyrir atbeina fulltrúa félagsins í Starfs- mannaráði er nú unnið að skipun allmargra svokallaðra lausráðinna starfsmanna. Nokkuð hefur borið á tregðu og seina- gangi við að auglýsa stöður sem losnað hafa. Hafa fulltrúar félagsins í Starfs- mannaráði þráfaldlega vakið athygli á þessu og farið fram á að úr verði bætt. Þá hefur framkvæmdastjórn rætt þetta við Samgönguráðuneytið og Félagsráð sent frá sér ályktun þar um. SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.