Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1976, Blaðsíða 29

Símablaðið - 01.01.1976, Blaðsíða 29
Frá Stykkish.ó[m.i Jafnrétti Þetta orð hefir mikið verið í tísku nú undanfarin ár og um leið fengið á sig sér- kennilegan blæ. Eins og við vitum þá er erfitt að koma á fullu jafnrétti, bæði er nú það að rnenn eru misjafnlega af guði gerðir og svo einnig að störf og annað er mis- jafnlega verðlagt í þjóðfélagi voru. Þá ber og á það að líta að menn verðleggja sig misjafnlega líka og sumir eru ákveðndr að kalla sig listamenn án þess að umheimur- inn sjái þá list sem sveiflast í kringum þá. En aðallega liggur þetta í andlegri list sem mönnum gengur misjafnlega að melta. Og um leið og listamannasvipurinn er kominn á andlitin þá verður hann svo dýr að þjóðfélagið á erfitt með að borga hann því verði sem krafist er. Mér verður nú hugsað til kvikmyndagerðarmannanna sem ætla að setja milljónir upp fyrir myndir sem þeir framleiða án þess að hafa vissu fyrir að nokkur vilji á þær horfa og því síður að hinn almenni borgari skilji boðskapinn sem þessar fígúrur eiga að flytja. Ég hefi t.d. horft á nokkur sýnishorn undanfarin ár og sannast að segja kýs maður heldur lækkun á sjónvarpsgjaldi til að firra sig þessum ósköpum. Ja, hvað er list. Það heyrir maður best þegar úthlutun svo- felldra listamannalauna er á ferðinni. Það er nú aumi söngurinn. Ég er ekki metinn nógu mikils.... Þetta er viðkvæðið. Og hvað hafa svo þessir listamenn þegar allt kemur til alls og öll STEF-gjöld eru komin inn í dæmið. En hvað um það — og hvað sem kemur í viðbót, ekki verður ánægjan meiri. Menn gleðjast ekki í dag eins og við glöddumst þegar var að okkur réttur brjóstsykurmoli í uppvextinum. Eitt af því sem ég hefi ekki skilið síðan ég hóf störf hjá Pósti og síma og það eru launakjör hjá símstjórnum á 1. fl. B. stöðv- um eins og þær almennt voru kallaðar. Þar eru menn í mörgum misjöfnum launa- flokkum, ekki eftir því hvað þeir hafa að gera, heldur eftir því hvar þeir eru stað- settir og eftir því sem menn eru þar í hærra launaflokki, þurfa þeir minna að hafa fyrir störfum, því þar koma til full- trúar og nóg starfsþjónusta. En þeir sem eru í lægstu flokkunum þurfa að vinna myrkranna á milli og stoppar ekki til. Þetta er nú eitt af jafnréttinum í þessum bransa og mér er það alveg óskiljanlegt hversu lengi aðalmenn stofnunarinnar hafa horft á þetta án aðgerða og þó hefi ég oft vakið máls á þessu, ekki mín vegna, held- 5ÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.