Símablaðið - 01.01.1976, Side 17
Frá stjórn T.S.S
Sigmar Gylfi Óli Viðar Guðmund’ar
Guðbjörnsson Gíslason Thorstensen Ingvi
Jóhannsson
Starfið hófst með aðalfundi, sem hald-
inn var í nóvember s.l. Ný stjórn var kosin
og hefur hún skift þannig með sér verkum:
Óli Viðar Thorstensen, formaður,
Thor B. Eggertsson, gjaldkeri,
Bjarni Ó. Jónsson, ritari,
Guðmundur Ingvi Jóhannsson, meðstj.
7. jan. var haldið hraðskákmót. Það var
undirbúningur fyrir meistaramótið, sem
haldið var á tímabilinu 14. jan.—4 febr.
Þátttakendur voru 12. LTrslit urðu þessi:
Skákmeistari TSS 1976 varð Gylfi Gísla-
son, eins og svo oft áður. Hann hlaut 6V2
vinning af 7 mögulegum. Annar varð
Kristján Jónsson með 5 vinninga og 26
stig. í þriðja sæti var Arnór Þorláksson
einnig með 5 vinninga en 25 stig. Þess má
geta að þessir þrír menn vinna allir í Fjar-
skiptastöðinni í Gufunesi.
Tvímenningskeppni í Bridge var næst á
dagskrá. Spilað var tvö kvöld, 11. og 18.
jan. Þátttakendur voru 20.
Keppnina unnu:
Ingibjörg Jónsdóttir í Langlínuafgreiðslu
og Viggó Bragason á Ritsímanum. Hlutu
þau 245 stig. í öðru og þriðja sæti urðu
Agnar Stefánsson og Gunnar Helgason og
Kristján Jónsson og Þorbjörg Jónsdóttir
fengu þau 232 stig, hvort par.
Tvær 4. manna sveitir taka nú þátt í
Skákkeppni Stofnana, önnur í A-riðli og
hin í B-riðli.
Áætlað er að halda sveitakeppni í Bridge,
milli hinna ýmsu deilda Pósts og síma og
hraðskákkeppni.
^ TRÚNAÐARMANNARÁÐ
FRETTIR • 20/4 ’76 — Tvær deildir innan F.Í.S. hafa
kosið sér trúnaðarmannaráð, 5. og 6. deild.
Trúnaðarmannaráð 5. deildar hefur haldið
tvo fundi en trúnaðarmannaráð 6. deildar
hefur enn ekki komið saman til fundar.
BÍMABLAÐIÐ