Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2006, Page 11
DV Fréttir
Hlaðvarpinn var lengi miðstöð reykvískrar kvennamenning-
ar. Kvenfélagið sem átti Hlaðvarpann seldi húsið á fáheyrðu
fermetraverði til Péturs Þórs Sigurðssonar sem er að breyta
húsinu í hótel. Brynhildur Flóvenz segist hafa viljað fá meira
fyrir húsið. Fasteignasali segir að konurnar hafi verið illa
sviknar.
Hlaðvarpinn Fermetrinn
kostaði Pétur Þór rúmar 47
þúsund krónur. Samkvæmt
upplýsingum DVermeðal
fermetraverð á góðu versl-
unarhúsnæði ímiðbæ
Reykjavíkur um 300 þúsund.
Hótelsljórinn tilæi*
meðnn knnurnnr gráta
„Það er svo sem ekkert leyndarmál að við seldum húsið á 40
milljónir til Péturs. Það er svo allur gangur á því hvort við séum
sáttar eða ekki en auðvitað vill maður alltaf fá meira,“ segir
Brynhildur Flóvens forsvarskona Kvenfélagsins Vesturgata 3.
Kvenfélagið hefur nú formlega selt Pétri Þór Sigurðssyni húsið
Hlaðvarpann við Vesturgötu í Reykjavík. Þar var Kaffileikhúsið
lengi til húsa.
Pétur gerði á síðasta ári samning
við kvenfélagið um kaup á Hlað-
varpanum með þeim fyrirvara að
hann fengi leyfi borgaryfirvalda til
að breyta húsinu í hótel. Með
fengnu leyfi eru framkvæmdir þegar
hafnar. Pétur er eiginmaður Jónínu
Bjartmarz alþingismanns og á hann
fyrir Hótel Plaza við Ingólfstorg.
Brynhildur Flóvens Hefði viljað fá meira
fyrir Hlaðvarpann.
„Það er eins og hann
hafi verið að kaupa
þetta á Hólmavík, en
ekki á besta stað í
miðbæ Reykjavíkur."
Hann hyggst nú tengja Hlaðvarpann
við Hótel Plaza með tengibrú. í
Hlaðvarpanum verða 23 herbergi á
þremur hæðum.
Miðstöð kvennamenningar
Kvenfélagið Vesturgata 3 eignað-
ist tvö reisuleg hús við Vesturgötuna
um miðjan níunda áratuginn. í
fremra húsinu hefur lengi verið
rekin verslunin Fríða frænka en {aft-
ara húsinu, Hlaðvarpanum, var
rekin blómleg menningarstarfsemi
kvenna allt þar undir lok síðustu
aldar. Þá var fjárhagur kvenfélagsins
bágborinn og tók að halla undan
starfseminni.
Kvenfélag í fjárhagskröggum
„Við seldum fremra húsið þar
sem Fríða frænka er árið 2003 og
leituðum í kjölfarið eftir kaupend-
um að Hlaðvarpanum," segir Bryn-
hildur. Hún segir ástæðu sölunnar
vera að reksturinn hafi ekki staðið
undir sér. Hún segir að Hlaðvarpinn
hafi verið lengi á sölu og Pétur hafi
verið sá eini sem gerði tilboð í húsið.
Samkvæmt fateignamati er stærð
Hlaðvarpans um 850 fermetrar. Fer-
metrinn fór því á rúmar 47 þúsund
krónur sem er langt undir markaðs-
verði. Samkvæmt upplýsingum DV
er meðaf fermetraverð á góðu versl-
unarhúsnæði í miðbæ Reykjavíkur
um 300 þúsund.
Óeðlilega lágt fermetraverð
„Það er voðlega erfitt að verð-
leggja svona nema taka eignina út
en auðvitað er þetta mjög lágt fer-
metraverð," segir Haukur Garðars-
sonar, varaformaður Félags fast-
eignasala. Hann segir einnig sjafd-
gæft að kaupverð fasteignar sé svo
langt undir brunabótamati og fast-
eignamati eins og í þessu tilviki.
Kvenfélagið illa svikið
„Það er eins og hann hafi verið að
kaupa þetta á Hólmavík, en ekki á
besta stað í miðbæ Reykjavíkur,"
segir fasteignasali sem vill ekki láta
nafns síns getið. Honum finnst leið-
inlegt til þess að vita að kvenfélagið
sem byggir afkomu sína á frjálsum
ljárframlögum skuli fara svo iila út
úr þessum viðskiptum.
svavar@dv.is
Nýtt ár
tvöfalt tækifæri
Fyrsti vinningurinn í fyrsta potti ársins er tvöfaldur
og stefnir í 100 milljónir. Ofurpotturinn stefnir í 25
milljónir og bónusvinningurinn í 3,5 milljónir.
LfTlf
Alltaf á ittiðvikudöguin!
lotto.is