Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 10.JANÚAR2006 Fréttir DV Innbrot á Padd/s Ifyrrinótt barst Lögreglunni i Keflavik tilkynn- ing um innbrot á skemmtistaðinn Paddy’s í Keflavík. Þegar lög- regla kom á vettvang sá hún að rúða var brotin á staðnum og augljóst að nokkrar flöskur af áfengi voru horfnar af bamum. Skömmu síðar voru nokkrir karlmenn á fimm- tugsaldri handteknir í ná- grenninu og höfðu þeir þegar losað um nokkra tappa. Þeir vom færðir í fangageymslur og látnir sofa úr sér íf am að yfirheyrslu. Þeim var svo sleppt en verða að öllum lík- indum kærðir fyrir athæfið. Nikótín ódýr- ast í Skip- holti Algengur verðmunur á nikótínlyfjum er 25 til 30 prósent. Hæst fór munur- inn í 45 prósent, sam- kvæmt könnun Neyt- endasamtakanna. I flest- um tilvikum vom lyfin dýmst í verslunum I.yfja & heilsu. Lægsta verðið var oftast í Skipholtsapó- teki og Lyfjaveri þar á eft- ir. Neytendasamtökin könnuðu verð á nikótín- lyfjum í 11 lyfjaverslun- um. Könnunin náði yfir 32 tegundir af plástmm, tyggjói, töflum, nefúðum og stautum frá Nicotinell og Nicorette. Mannræningi ívarðhaldi Axel Karl Gíslason sem dæmdur var í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að ræna starfsmanni úr verslun Bón- uss þarf að sitja áfram í gæsluvarðhaldi allt til 3. febrúar eða þar til dómur fellur í Hæstarétti í máli hans. Axel var dæmdur í sextán mánaða fangelsi fyrir þátt sinn í mannráninu. Lögmaður Axels taldi hann vera of ungan til að sitja í varðhaldi en Hæstiréttur taldi sennilegt að hann myndi halda afbrotum áframyrði hann látinn , laus. ? einingarkosningu fjögurra sveitarfélaga sem fram fer21. janúar. Þaö er mikil samstaða milli sveitarstjórnarmanna í sveitarfélögunum um aö af þessari sameiningu veröi," segir Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík.„Af stærstu verkefnum ársins má nefna uppbyggingu í ieik- skótamáium. Svo erum viö á loka- metr- unum ísamvinnuverkefni um orkufrekan iðnað og sjáum möguleika á 250 þúsund tonna álveri meö nýtingu há- hita. Svo erum viö að byggja upp hafnarmannvirki auk þess sem hér er talsverð spenna á fasteignamarkaði. Það er eitthvað um nýbygg- ingu á íbúðarhúsnæði eftir áralanga stöðnun." Landsíminn Stóra málverkafölsunarmálið er enn í umræðunni eftir sýningu Ríkissjónvarpsins á heimildamynd eftir Sólveigu Anspach. Endalaus uppspretta verka eftir íslensku meistarana virðist vera í Danmörku og nýlega var slegin lítil mynd eftir sjálfan Ásgrím Jónsson á dönskum uppboðsvef - Lauritz.com. v Asgrímur f Ásgrímur Gott verð fékkst fyrir þetta verk á uppboði I Danmörku þó svo að ýmislegt eigi þar við svipað þeim rökum sem notuð voru tilað sýna fram á sekt sakborninganna I Störa málverkafölsunarmálinu. Tryggvi í Fold Telur að málverka- markaðurinn séað jafna sig. f .00 /1 Lítil Ásgrímsmynd var slegin á dönskum uppboðsvef á dögun- um á um hálfa milljón króna. Er líklega til marks um að mál- verkamarkaðurinn sé að jafna sig eftir ólgusjó sem Stóra mál- verkafölsunarmálið - sem enn er komið í umræðuna - hafði í för með sér. Þessi áður óþekkta mynd, sem talin er vera eftir Ásgrím Jónsson, var verðmetin á 12 þúsund danskar krónur á uppboðsvefnum lauritz,- com en var slegin nýlega á 44 þús- und danskar krónur sem leggur sig á tæplega 440 þúsund. Á þá upphæð leggst kostnaður sem nemur um tuttugu prósentum. Áhrif í rénun Samkvæmt heimildum'DV mun það hafa verið íslenskt gallerí sem keypti og er hið ágæta verð líldega til marks um að áhrif Stóra málverka- fölsunarmálsins á verð málverka sé í rénun. Sú er einnig skoðun Tryggva Páls í Fold sem gengst reglulega fyrir málverkauppboðum í Súlnasalnum. Enn er fölsunarmáiið komið í deigluna eftir heimildarmynd sem Rikissjónvarpið sýndi á sunnudags- kvöldið og er eftir Sólveigu Anspach. Sitt sýnist hverjum enda um að ræða lengsta og eitt dýrasta mál íslenskrar réttarfarssögu: Talið er að það hafi kostað um hundrað milljónir með öllu en beinn kostnaður utan launa er sagður sextíu milljónir. Rannsókn málsins tók sjö ár. Engin eigendasaga Burt séð ffá listrænu gildi ætti þessi litla Ásgrímsmynd (22,5 x 49,5 sm) að vera athyglisverð sé hún sett í samhengi við Málverkafölsunarmál- ið. Þannig er hún með tiltölulega óvanalegri merkingu, AJ 1902, og er olíuverk málað á pappaspjald. Engin eigendasaga fylgir og er myndin áður óþekkt. Allt eru þetta rök með öðrum sem notuð voru til að sýna ffam á sekt sakbominganna, Péturs Þórs Gunnarssonar og Jónasar Freydal, af ákæmvaldinu en Jón H.B. Snorrason flutti málið í héraði. Þar þótti sannað að af um hundrað mynd- um sem vom upphaf- lega í ákæmnni væm fjórar myndir falsað- ar. SÍM, félag ís- lenskra myndlistar- manna, mótmælti niðurstöðunni opin- berlega og kom það mönnum mjög á óvart þegar sakbom- ingar, sem mörgum þótti sleppa létt, áfrýjuðu málinu til Hæstaréttar þar sem því var vísað fr á og Jónas og Pétur sýknaðir. jakob@dv.is Lögmenn Péturs Þórs Þau Sigríður Rut og Ragnar Aðalsteins- son hrósuðu sigri. Meintur Ásgrímur Þessi mynd, sem eignuð hefur verið Asgrími Jónssyni, er úr Stóra málverkafölsunarmálinu Ólafur Ingi Jónsson Upphaf málsins má rekja til grundsemda forvarðarins sem i myndinni sagði málinu langt í frá tokið þrátt fyrir Hæstaréttardóm. Nýjar framkæmdir á Laxnesssafni og kostnaður stefnir í 126 milljónir Gljúfrasteini skellt í lás fram í mars „Það er verið að vinna að endur- bótum innandyra sem ekki náðist að klára fyrir opnun," segir Guðný Dóra Gestsdóttir, forstöðumaður Gljúffa- steins, heimilis Halldórs Laxness. Að Gljúfrasteini er starfrækt safn til heiðurs nóbelskáldinu. Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráð- herra, opnaði safnið í september 2004 eftir viðamiklar endurbætur á húsinu sem kostuðu um 55 milljónir króna. Ríkið keypti húsið og innbú þess á 66 milljónir árið 2002. Heild- arkostnaður við húsnæðið nemur því um 126 milljónum króna. Safn- inu var lokað í síðustu viku eftir rúmlega árs opnunartíma og verður það lokað til 1. mars. „Það er verið að laga skemmdir sem komu í ljós þegar verið var að ljúka fyrri endurbótum. Við ákváð- um að bíða með þær í stað þess að fresta opnuninni. Þetta er viðgerð á lögnum í anddyri hússins auk þess sem kom í ljós að nauðsynlegt var að taka í gegn vegg í stofunni. Síðan ætlum við að mála,“ segir Guðný og bætir við að janúar og febrúar séu rólegir mánuðir í ferðaþjónustu og þess vegna sé kjörið að nýta tímann til framkvæmda. Guðný hyggur ekki á ffekari lok- anir á Gljúfrasteini nema eitthvað sérstakt komi upp á. Hún segir að framkvæmdirnar komi til með að kosta 5 milljón- ir króna. ar@dv.is Gljúfrasteinn opnaður Davið Oddsson og Auður Laxness opna Glúfrastein f september 2004. Frétt DV 28. mai 2004 Framkvæmdir á Gljúfrasteini kosta rikið 55 milljónir. Guðný Dóra við Gljúfra- stein Guðnýsegiraö verið sé að vinna að endurbót- um sem ekki náðist að klára fyrir opnun safnsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.