Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Side 14
1
74 ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006
Fréttir 0V
Sandlcorn
Jakob Bjarnar Grétarsson
• Bó er þegar farinn
að vekja athygli fjöl-
miðlamanna á Þorra-
blótinu 4. febrúar og
risadansleiknum sem
hann gengst árlega
fyrir í Kaplakrika.
Virðist komin hefð á
þennan viðburð þar sem Brimkló og
Papar leika fyrir dansi. Og Bó hefur
sem fyrr auga fyrir því hvað er við
hæfl á hveijum stað. Þannig verða
Hemmi Gunn og Logi Ólafcson
veislustjórar en fram koma Brynhild-
ur Guðjónsdóttir, Helgi Bjömsson og
Leone Tinganelli - ítalski sjarmörinn
sem tæplega fulsar við hrútspungun-
um eftir áralanga dvöl á íslandi...
• Geim Tíví-þátturinn um tölvuleiki
sem verið hefur á Sirkus er að færa
sig yflr á Skjá einn
eins og fram kom í
DV gærdagsins. „Nú
getum við loksins
farið að gera al-
mennilegan þátt,"
sögðu umsjónar-
mennimir Ólafur Þór Jóelsson og
Sverrir Bergmann kokhraustir. Og
veitir kannski ekki af að taka sig á í
þeim efnum en í síðustu ijölmiðla-
könnun Gallup minntist ekki einn
einasti svarenda þess að hafa séð
þáttinn...
• Og um tilfærslur á fjölmilamark-
aði. Þannig var sagt að Tvíhöfðunum
hefði verið sagt upp á
NFS í blaði gærdags-
ins. Rétt er að þeir
Siguijón Kjartansson
ogJónGnarremað
hætta með Tvíhöfða-
fréttir sínar en það
mun vera á þeirra
forsendum. Fyrir lá að þeir myndu
hætta um áramót. Sigurjón fer nú
mikinn í auglýsingagerð og starfar
fyrir ýmsar auglýsingastofur líkt og
félagi hans Þorsteinn Guðmunds-
son...
• Miklar væringar em innan her-
búða Vinstri-grænna
í Hafnarflrði varð-
andi næstu bæjar-
stjórnarkosningar
en heyrst hefur að
þeir hafi boðið Áma
Guðmundssyni
æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Hafnarfjarðar og formanni starfs-
mannafélags Hafnarfjarðar fyrsta
sæti á lista fyrir næstu kosningar.
Árni hefur hingað til verið gegnheill
samfylkingarmaður en eftir afhroð í
prófkjöri flokksins fyrir síðustu bæj-
arstjórnarkosningar hefur Árni
dregið sig mikið út úr starfl flokks-
ins en hann væri svo sannarlega
ekki sá fyrsti til þess að skipta um
flokk eins og virðist vera í tísku
þessa dagana...
• Það gæti orðið fjör í Héraðsdómi á
miðvikudag en þangað mætir Geiri í
Goldfinger í fyrirtöku í Héraði ásamt
tveimur súludansmeyjum sínum. Er
það vegna ákæm um
að fram hafi farið
einkadans í lokuðu
rými í Kópavoginum.
Löggjafanum gengur
reyndar illa að ná
taki á Geira þó svo að
þeir hafl löngum viljað grípa hann
glóðvolgan. Þannig rann maðurinn,
sem hélt því fram að honum hefði
verið byrluð ólyfjan með þeim afleið-
ingum að hann eyddi og eyddi og
mundi ekki neitt, á rassinn með
kæm sína...
Orðstír íslenskr
Ummæli Quentins Tarantino 1 spjallþætti Conans O’Brien í síðustu viku
voru sem köld vatnsgusa í andlit margra. Þó eru orð kvikmyndaleikstjór-
ans fræga ekki ný af nálinni. Þrátt fyrir að skemmtanagleði íslendinga og
þá aðallega íslenskra kvenna haíl vakið athygli erlendis síðastliðin ár hef-
ur þetta tiltekna orðspor verið gegnumgangandi í áratugi.
—
Hooters vilja koma Brjástabúllu■
keðjan heimsfræga auglýsti í fyrra
keppni þar sem heppnir viðskipta-
vinir unnu ferðir til fslands.
ÖDTMRA
Tarantino Ummæli hans
hljómuðu hrikalega I eyrum
margra. Þau eru þó aðeins til-
brigði við margspilað stef.
Quentin Tarantino fór á kostum í spjallþætti Conans
O’Brien á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC í síðustu viku.
Þar lýsti hann upplifun sinni af íslenska kvenfólkinu, of-
drykkju og skemmtanagleði þess. í hans augum er ísland
spennandi partíland með drukknum súpermódelum.
En skoðun Tarantinos er langt
frá því að vera ný af nálinni. í rúm-
an áratug hefur sögusögnin um
fyllirísbúlluna Reykjavík, eða
„Bangkok norðursins", farið eins
og eldur í sinu í vestrænum fjöl-
miðlum. Þar er jafnan efst á baugi
fegurð innlendra kvenna og
skemmtanagleði þeirra.
Dirty Weekend
Frægasta dæ'mið um þessa um-
fjöllun er án efa auglýsingaherferð
Icelandair frá 2001. Auglýsingar
með slagorðinu „Fancy a dirty
weekend in Iceland?" var límd upp
um allt lestakerfl Lundúna og vakti
mikla athygli.
Á svipuðum tíma birti
Icelandair auglýsingar með slag-
orðunum „One night stand in
Reykjavik",
„Free dip every trip" og „Pester a
beauty queen" í fjölmiðlum víða
um heim. Þá mátti á heimasíðu
flugfélagsins flnna tvo stutta
tölvuleiki sem hétu „Halldor gets
lucky in the Blue Lagoon" og
„Hildur gets lucky in the Blue
Lagoon". Þar léku spilarar hlutverk
Halldórs og Hildar, sem stálu ým-
ist brjóstahöldurum eða sundskýl-
um af fólki í Bláa lóninu.
Halda sínu striki
Icelandair var kært til kæru-
nefndar jafnréttismála árið 2003
en var vísað frá þar sem auglýsing-
arnar voru birtar erlendis. En kær-
an hafði þau áhrif að íslendingar
urðu meðvitaðri gagnvart orð-
sporinu og ræddu málið fram og til
baka.
Umræðan virðist þó hafa
haft lítið að segja. Skemmt-
anahaldið í miðbænum hélt
sínu striki og enn berast reglulega
greinar erlendra blaðamanna af
fylliríi íslenskra stúlkna.
Svanhildur í Oprah
Erlendir blaðamenn eru þó
ekki einir um það að bera út
„hróðurinn". fslendingar eru á tíð-
um fullfærir um það sjálfir. ís-
lenska þjóðin fylgdist spennt með
þegar Svanhildur Hólm mætti í
settið til frægustu sjónvarpskonu
heims, Opruh Winfrey, síðastliðið
vor:
Oprah: Allt í lagi. Er það satt að
það að stunda kynlíf með ein-
hverjum þegar þú ert bara búinn
að hitta hann einu sinni sé „norm-
ið"? Myndirðu segja að það sé
„normið" á íslandi?
Svanhildur: Það kemur fyrir. Já.
O: Allt í lagi.
S: Ég hugsa að kynlíf sé ekkert
mikið mál á íslandi. Af því að, þú
veist, það gera það allir þannig að
það er ekki eitthvað sem þú þarft
að tala um og skammast þín fýrir.
O: Af því að allir stunda það.
Það stunda það allir hérna líka.
S: Hvers vegna ætli það sé
svona mikið mál þá?
Sopranos-þættirnir Frægt
er þegar mafíósanum Tony
og vinum hans voru færðar
„flugfreyjur frá lcelandair" til
að svala kynhvötinni.
íJSt-
Fjallkonan drekkur bjór Frétta-
blaðið sagði frá auglýsingu breska
bjórsins Tennent's fyrir tveimur árum.
Þar var íslenska konan í öndvegi en
J henni fannst fátt betra en að sötra á
bjórnum í stingandi gaddi. Leikkonan
Birna Hafstein lék Islensku konuna.
SSK~
O: Af hverju er það ekki neitt
stórmál á fslandi?
S: Ég býst við að við séum dálít-
ið frjálslynd. Af því að það er ekki
stór þröskuldur á nýjum sam-
böndum. Þú þarft heldur ekki að
fara á eitt, tvö, þrjú stefnumót
áður en þú býður honum inn. Það
eru engar svoleiðis reglur.
O: Þið haflð engar svoleiðis
reglur?
S: Nei.
Lifa eftir ímyndinni
Þrátt fyrir að viðtölin hjá Conan
O’Brien og Opruh og auglýsingar
Icelandair hafi vakið athygli ís-
lendinga vegna mikillar útbreiðslu
boðskaparins eru greinarnar og
ummæíin fleiri en marga grunar.
Með árunum hefur þessi lýsing
annarra á íslenskum konum í raun
síast inn í vitund þeirra sjálfra.
Leiða má líkur að því að það færist
í aukana að þær lifi eftir ímynd- 1
inni. Fái sér eitt glas í viðbót og. j
taki einn snúning enn til að valda
ekki vonbrigðum. Vafasamur
hróður íslenskra kvenna hefur
borist til baka og mótað þær upp á
nýtt. halldor@dv.is
Hoeymbi
til Futeyi
"HÍí™
Lýfíslei
Lausgynt og ölvuð íslensk
súpenmodel heuia Tarantin
Fegurðardrottningar lcelandair
bauð ferðalöngum að„pestera
beauty queen" eða bögga drottn-
ingarnar, i auglýsingu.
Damon fór að djamma „Þeir fara út
á miðnætti, drekka alla nóttina, dansa
eins og óðir og svo... þetta er frábært!"
sagði Damon Albarn um Islendinga,
löngu áður en hann varð náttúrusinni.
Maxim /bandariska karla-
blaðinu Maxim kom fram
ekki alls fyrir löngu að Island
væri besti staður iheimi til að
komast yfir kvenfólk.
I