Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Side 27
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 27
Þjóðabandalagið stofnað
DV Fréttir
Lesendur
Þann 10. janúar árið 1920 var
Þjóðabandalagið - forveri Samein-
uðu þjóðanna - stofnað. 42 þjóðir
sameinuðust um sáttmála þess efnis
að vinna að friði í heiminum. Þetta
gerðist stuttu eftir lok fyrri heims-
styrjaldarinnar sem varð til þess að
heimsmyndin breyttist til muna og
fólk gerði sér grein fyrir að stríð gætu
náð yfir allan heim.
í nóvember 1918 sömdu Mönd-
ulveldin svokölluðu um vopnahlé til
að enda heimsstyrjöldina. Stuttu
síðar var fundað á Versölum og
reynt að semja um uppgjöf Þýska-
lands og Austurríkis-Ungverjalands.
Bæði Bretar og Frakkar kröfðust
mikilla stríðsskaðabóta af höndum
þeirra og náðu sínu fram. Það átti
eftir að leiða til þess að lokum að
Þjóðverjar réðust inn í Pólland 1939
og hrundu þar með af stað
heimstyrjöld sem stóð í nærri sex ár.
Fundarmenn náðu að komast að
niðurstöðu um stofnun Þjóða-
bandalagsins sem átti að vera til að
binda enda á stríð manna í milli.
Woodrow Wilson Bandaríkjaforseti
var meðal fundarmanna og lagði sig
allan fram um að fá þingið til að vera
Frá fyrsta fundi Þjóðabandalagsins Var
haldinn fyrir 86 drum síðan.
í dag
eru 66 ár síöart togarinn
Hafsteinn bjargaði 62
manna áhöfn þýslca
flutningaskipsins Bahia
Blanca sem sökk undan
Látrabjargi.
meðal stofnaðilia að bandalaginu.
Frumvarp hans var fellt og því fór
svo að Þjóðabandalagið var stofnað
án þátttöku Bandaríkjanna þennan
dag árið 1920 í Genf í Sviss.
Ferill bandalagsins varð þó ekki
farsæll og var það formlega leyst
upp árið 1946 við stofnun Samein-
uðu þjóðanna, en þá hafði það verið
óvirkt og valdalaust í fjölda ára.
Úr bloggheimum
Sindri um Svía
„Ég meina, Svíar virðast
bara vera þannig
gerðir að ekkert sé
neittmál. Hætta að
fara istrið? Ekkert mál.
Að rikið sjái vel um fólk
sitt efnahagslega séð?
Ekkért mál. Að gera tónlist
sem hljómar eins og þeir fokkin meini það?
Ekkert mál."
Sindri Eldon - sindrieldon.blogspot.com
Um lægðir og
hæðir
„Islenskt veður er
eins og íslenska
þjóðarsálin. Si-
breytilegt, aldrei
fyrirsjáanlegt og
ótrúiegaýkt.Sem
betur fer fengum við
félagarnir í garðyrkju-
genginu frii dag. Enda spáð stormi i kvöld.
Þegar lægðir og hæðir mætast verður
partý. Ég ætla að halda mig heima."
Símon Örn Birgisson - lOlhafnarfjord-
ur.biogspot.com
Svo bregðast kross-
tré...
„Haldiði ekki að minn
hafikeypt sérkorti
Nautilus í dag! Er ég
þar með kominn í hóp
með plebbum þessa lands
sem ákveða að hefja nýtt og
heilsusamlegra lífeftir jólin.
Næsta skrefverður svo sennilega að breyta
þessari síðu í átaksblogg."
Atli Týr Ægisson - atli.askja.org
Fullu ofurfyrirsæturnar
„Þeir sem koma til Islands til að upplifa fal-
lega páttúru gera akkúratþað: upplifa stór-
brotnanáttúru sem er einstök iheiminum.
Það ersagan sem þeirsegja öllum vinum
sínum og öllum Islendingunum sem sitja
við hliðina á þeim I vélinni á
leiðinni héðan. Og þeir
sem koma til Islands til
að upplifa fallegar og
fullar ofurfyrirsætur
gera akkúrat það: sjá
þær dansa uppá
borðum, fara í sleik og
slamma fimmtán skot-
um afókeypis glundri.
Þessar með feitu ökklana í flís-
peysunum eru ignoraðar, rétt einsog álverið
á leiðinni frá Keflavík verður ósýnilegt í dá-
samlegu tungl-legu hrauninu."
Haraldur Agnar Civelek - icomefrom-
reykjavik.com/halli
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Eg lifi ekki á þessu
Þórður Vormsson hringdi:
Ég ætla ekki að þræta fyrir að
laun leikskólakennara séu lág. Sjálf-
ur er ég ellilífeyrisþegi. Um áramót-
in fékk ég útborgaðan ellilífeyri upp
á 83 þúsund krónur. Þar af þarf ég að
borga 45 þúsund til greiðsluþjónust-
unnar. Þá hef ég 38 þúsund til að lifa
á það sem eftir er mánaðarins. Fyrir
þessa peninga kaupi ég mér mat, föt
og annað til daglegrar neyslu. Ég hef
Lesendur
alltaf verið heilsuhraustur og þarf
þess vegna ekki að eyða peningum í
lyf. Mér þætti gaman að vita hvort
ráðamenn þjóðarinnar geti lifað á
þessum peningum.
Alþingi Þórður
vill vitahvort
ráðamenn þjóð-
arinnargeti lifað
á 38 þúsund krón
um á mánuði.
Hættum að eyða og njótum jólanna
Margrét skrifar:
Hvernig væri að íslendingar tækju sig
til og hættu þessu neysluæði fyrir jólin og
um hátíðarnar sjálfar? Maður hefur
margoft ætlað sér þetta sjálfur en það
verður aldrei neitt úr því-jólaæðið verð-
ur skynseminni yfirsterkara. Mér dettur
þetta svona í hug núna þegar útsölurnar
eru komnar á fullt. Það er sárgrætilegt að
þurfa að horfa upp á sömu hluti og mað-
ur keypti rándýra fyrir nokkrum dögum á
sannkölluðu sprengjuverði vera selda fyr-
ir slikk á útsölu.
Þar sem það virðist engin leið fýrir eina
sál að standa gegn freistingum jólanna
legg ég til við reynum að standa saman
næstu jól. Hættum að eyða eins og vit-
leysingar. Reynum að koma okkur frekar
upp einhverjum vitrænni hefðum sem
gera okkur ekki bara sársvekkt um leið og
jólaljósin slokkna. Ég er viss um það eru
fleiri sama sinnis og ég. Væri ekki sniðugt
að njóta jólanna næst?
Jón Einarsson
tekur Karl
biskup á beinið.
Æ - •ifc.
F ramsóknarm; löurinn! segir
Kaþólskt viðhorf
Þessa dagana fer misskilningur
um íslenska þjóð- og trúmálaum-
ræðu líkt og eldur í sinu. Eftir að
biskupinn, herra Karl Sigurbjöms-
son, kveikti upp ófriðar- og sundur-
lyndisbálið með orðum sínum um
hjónaband samkynhneigðra hafa
margir stigið á stokk og talað um
hjónabandið sem heilaga stofnun
trúarlegs eðlis. Og þingmaður nokk-
ur sagði hjónabandið vera sakra-
menti kirkjunnar sem ekki mætti
hreyfa við.
En nú er staðreyndin sú að sam-
kvæmt stjómarskránni skal þjóð-
kirkjan vera evangelísk-lútersk. Hún
byggir á kenningum siðbótarmanna
á borð við Martein Luther, Palladius
Sjálandsbiskup og fleiri. Hvað sagði
Marteinn Luther um hjónabandið?
Hann sagði að enginn þyrfti að efast
um að það væri veraldlegs eðlis, rétt
eins og matur og för, hús og heimili
og að það heyrði undir veraldlegt yf-
irvald (sjá rit hans Von der Ehes-
achen ffá 1530). Gifúng í lúterskri
kirkju er því ekki stofnun á ein-
hveiju trúarlegs eðlis, það er ekki
sakramenti eins og hjá kaþólsku
kirkjunni. Gifúng í lúterskum sið er
einfaldlega blessun á veraldlegum
hlut, rétt eins og þegar ný stólalyfta
eða nýr fiysútogari em blessuð.
Er herra Karl Sigurbjömsson að
reyna að koma á kaþólskum sið aft-
ur rúmum 450 ámm efúr siðaskipt-
in? Að reyna að smygla kaþólskum
sakramentum bakdyramegin inn í
þjóðkirkjuna? Það mætú segja mér
að Jón Arason Hólabiskup myndi
hlæja núna, væri hann á lífi.
Maður
VO in
0\ O
Athafnamaður með trompet
„Það skipúr öllu máli að vinna
heilshugar að því sem maður tekur
sér fyrir hendur,“ segir Karl Wern-
ersson sem keypti nýlega stóran
hlut í íslandsbanka. Áhugi hans á
bankanum fór vaxandi eftir að hann
kynnúst Bjarna Ármannssyni í
tengslum við kaup Karls á öllum
hlutabréfum í apótekakeðjunni Lyfi
og heilsu.
„Það halda margir að maður hafi
fæðst með silfurskeið í munninum,
en því fer fjarri. Það var vel úl staðið
að uppeldi okkar systkinanna og
áhersla lögð á að maður skilaði sfnu
verki vel,“ segir Karl sem telur það
vera sitt helsta markmið. Árangur
Karls hefur ekki farið ffamhjá nein-
um sem fylgist með í íslensku við-
skiptalífi.
Framgangur Karls á sviði við-
skipta hefúr þó ekki alltaf verið
dans á rósum.
„Það var á þeim tt'ma sem við
áttum Örtölvutækni að við lentum í
miklum en lærdómsríkum hremm-
ingum. Það var þó fyrir öllu að við
náðum að koma fótunum undir fyr-
irtækið aftur og seldum það svo,"
segir Karl um tt'mabilið sem reynd-
ist honum mikil reynsla. „Það er
nefnilega mikilvægt að halda bar-
áttunni áfram og gefast aldrei upp.“
„Það er alltaf gaman að ná ár-
angri í því sem maður gerir, hvað
svo sem það er. Það er ekkert laun-
ungamál að ég er í þessum viðskipt-
um til þess,“ segir Karl sem þessa
dagana notar þann liúa ffítíma sem
hann hefur til að sinna tómstund-
um barnanna. „Dótúr mín er búin
að hella sér af alefli í hestamennsk-
una og smitað mig af henni í kjölfar-
„Það er alltaf gaman
að ná árangri í því
sem maður gerir."
ið. Svo rifjaði ég upp gamla takta
með því að kaupa mér trompet í vor
sem ég hef æft mig stt'ft á síðan þá,
efúr um þrjátíu ára hlé. Annars hef
ég einstaklega gaman af því að ferð-
ast með bakpoka og tjald um landið
þvert og endilangt," segir Karl sem
hefur ekki takmarkað ferðalög við
ísland. Hann á einnig lítið sumar-
hús í Toscana-héraði á ítalíu þar
sem hann segir veturna vera yndis-
lega þegar skammdegið herjar á
föðurlandið.
iTwernersson er sonurhjónanna Werners Rasmussonar og önnuKarlsdótt-
" er menntaður sem *i»sk.P^tafr*ði„gur Ui‘ «í; n s ur sem stgrnarf -