Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Qupperneq 40
r" f 0 t t í\j>J ÍO t Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^wfnleyndar er gætt. s? r1 (J Q
SKAFTAHLIÐ 24, WSREYKJA)
m [ STOFNAÐ1910 J
Mi550 5000
5 690710 111117
• Svo virðist sem
heitustu pipar-
sveinar landsins
hafi stigið á stokk
og strengt þess heit
að vera ekki á lausu
á nýju ári. Þannig
er það fullyrt í eyru
blaðamanna að
sjálfur Frosti Logason í Mínus
sé farinn að slá sér upp. Og er
þar um að ræða enga aðra en
leik- og söngkonuna Agústu
Evu eða Silvíu Nótt. Og þá er
Egill Einarsson eða
Gillzenegger kominn á fast með
stúlku úr fót-
boltanum. En
þetta er ekki
selt dýrar en
það er keypt
enda hver er
svo sem á
föstu og hver
á lausu...
Ég bý líka í
skítapleisi!
iALí.áeíu'iio mtmeiiá
Böddi í Roklandi fundinn
Segist ekki þekkja Hallgrím
„Hvernig hittir þú á mig? Svang-
an," segir Björgvin Valur Guð-
mundsson, grunnskólakennari á
Stöðvarfirði.
DV hefur borist ábending um að
Böddi, sá sem Hallgrímur Helgason
skrifar um í Roklandi, sé til og búi á
Stöðvarfirði þar sem hann heldur úti
bloggsíðu við misjafnlega mikinn
fögnuð bæjarbúa. (Sludrid.blog-
city.com). Og óneitanlega eru nokk-
ur líkindi. Böddi reyndar var búsett-
ur á Sauðárkróki, of greindur fyrir
plássið og of reiður fyrir Reykjavflc.
„Ég þekki engan Hallgrím Helga-
son, hef ekki lesið Rokland þannig
að ég kannast ekkert við þetta. En
mér er náttúrlega einstakur heiður
af því ef ég er fyrirmynd," segir
Björgvin. Hann segist hafa ofnæmi
fýrir jólabókaflóðinu og lesi bækur á
sínum eigin hraða og lætur engin
æði trufla sig.
Björgvin telur lfldegt að hann eigi
eftir að lesa Rokland sem er eina
bókin sem hann hefur áhuga á
þeirra sem komu út nú fyrir jólin.
„Ég las fyrstu bókina hans... um
söngkonuna sem fór til Bandaríkj-
anna. „Þetta er allt að koma." Sá svo
myndina 101 áður en ég las bókina
og þá lagði ég ekki í bókina. Arfaslök
mynd. Eins og flestar íslenskar
myndir eru því miður," segir Björg-
vin.
Hann telur ekki ástæðu til að fara
í grafgötur með skoðanir sínar. Segir
allt of marga um það og gerir því
ekki ráð fyrir því að ná einhverjum
vinsældatoppi en það sé allt í lagi
með það.
í Roklandi er Böddi einlægur að-
dáandi þýskrar menningar, vitnar í
Nietzsche og þýðir ljóð Goethes.
Björgvin er hins vegar einlægur að-
dáandi enskrar menningar og bók-
mennta - telur þær toppinn á tilveru
okkar. Hann er reyndar að lesa Njálu
núna en hann gafst upp á henni sem
unglingur. „Bókin hefur ekkert
skánað. Æi, jújú, þetta er örugglega
merkilegt bókmenntaverk. En það
verður seint talað um sterka per-
sónusköpun eða útsmogin plott."
Aðspurður segir Björgvin ekki
verða var við að bloggsíða hans valdi
miklum usla. „En þetta er eins og í
öllum litlum samfélögum, torvelt að
tala um nokkuð það sem getur osak-
að ýfingar. Og rótttækar skoðanir
eru ekkert ræddar," segir
Björgvin sem er samfylking-
armaður. Og er því illa í
sveit settur.
„Austurland er pólitísk
flatneskja. Ég get sagt þér
það að ef fuglaflensan
myndi stinga sér niður hér
á landi ætti hún ekki séns
hér fyrir Framsóknar-
vírusnum," segir Björgvin.
Hann kveður með þá
spumingu á vömm hvort
hann sé nú orðinn Gísli á
Uppsölum íslands og megi
búast við Ómari Ragnars-
syni eða Áma Johnsen til
að taka við sig viðtal.
Björgvin Valur
Segir Austurland
pólitíska flatneskju
og fugiafíensan ætti
ekkiséns vegna
Framsóknarvírussins.
Rokland Menn þykjast
nú búnir að fmna fyrir-
myndina að Bödda i
| Roklandi I Björgvin.