Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Síða 15
uv Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 15
Palestínumenn í
Gaza brenndu
danska og norska
fánann fyrír utan
skrífstofur Evrópu-
sambandsíns og
gáfu þær yfiríýsingar
aö Danir og Norð-
menn væru ekki
óhultir í Gaza. "
um Palestínumanna. Lybia er
búin að hóta viðskiptabanni við
Danmörk og fjöldi sendiherra
arabaríkja í Danmörku eru búnir
að vara dönsku ríkisstjórnina við
viðskiptaþvingunum ef hún biðst
ekki opinberlega afsökunar á
myndbirtingunum.
Rasmussen segist ekki
geta skipt sér af myndbirt-
ingunum
Anders Fogh Rasmussen for-
sætisráðherra Danmerkur segist
ekki geta skipt sér af þessum mál-
um því dönsk lög vernda mál-
frelsi og ríkisstjórn hans geti ekki
tekið ábyrgð á því sem frjáls fjöl-
miðlun í landinu birtir. Ritstjóri
Jyllandsposten neitar að biðjast
afsökunar á myndbirtingunum
og ber við málfrelsi í landinu en
segir jafnframt að ætlunin hafi
aldrei verið að móðga neinn né
lítilsvirða trúarbrögð múslima á
einn eða annan hátt. í yfirlýsingu
frá blaðinu harmar hann þessi
viðbrögð og þær afleiðingar sem
myndbirtingarnar hafa haft á
Danmörku.
stop $np
VÍíRW>Str
_ •JJÍ'W
Danski Rauði krossinn
kallar fólk í Gaza heim
Tveir starfsmenn danska
Rauða krossins voru kallaðir
heim frá Gaza og einn frá Yemen.
Norska utcmríkisráðuneytið segir
starfsmenn sína £ Gaza einnig
vera á leiðinni heim. Svíar hafa
varað þegna sína við að vera á
ferðinni á yfirráðasvæði Palest-
ínumanna. Óttast Svíar að þeim
gæti verið ruglað saman við Dani
og taka mjög alvarlega fordæm-
ingu múslima á Danmörku.
Palestínumenn í Gaza brenndu
danska og norska fánann fyrir
utan skrifstofúr Evrópusam-
bandsins og gáfu þær yfirlýsingar
að Danir og Norðmenn væru ekki
óhultir í Gaza.
Arla-mjólk
Arla-matvoii
stjornvöldiqæi. •••
við itiámvöldþeina i\li,i
urlatnln,þar$i'm vóuir Aii
'■innaua damkra framleiðt
kaui'A danski
JtMuiinerra biö\t vcet|ð.ir
S*vii7/7ícv/t/ l hma i Sýilcimii, c
Ahkkr/uui, hflt Maóamannn
fuiul i Amman n ninnuikiqin
trynJi nö milila nstunclió.
I í i, w\
stjórmuid vara alla
hf'íjiui úna sem búa
1 Mu1 Austurlöndum
Naut í stúku
Uppi varð fótur og fit þegar
nautaat fór úrskeðis í Mexíkó-
borg í Mexíkó á sunnudaginn.
Fjöldi fólks hafði safnast saman
til að fýlgjast með atinu þegar
eitt nautið varð óvenju æst og
náði að komast upp í stúku til
áhorfenda. Þeir vissu ekki hvað-
an á sig stóð veðrið og náðu
sumir ekki að forða sér. Að
minnsta kosti tíu manns slösuð-
ust alvarlega.
5 milljónir Spánverjar leita aö ástinni á netinu
Eyða 1200 milljónum í ást á netinu
Spánverjar eru meðal þeirra
þjóða sem nota veraldarvefinn sífellt
meira í Ieit að ástinni. Þeir sem nota
stefnumótavefsíðumar segja að þeir
hafi ekki tíma til að fara út á lífið í leit
sinni að lffsförunaut. Það kostar
peninga í föt, drykki, leigubíla og
tekur of mikinn tíma. Talið er að
tæplega fimm milljónir Spánverja
séu skráðir á stefnumótasíðumar til
að ná sér í maka. Margir notfæra sér
vefsíður þar sem borga þarf fyrir
upplýsingamar því þeir segja að þær
síður séu áreiðanlegri og komi í veg
fýrir að hitta á einstaklinga sem vilja
bara kynlíf en ekki varanleg kynni.
Spánverjar eyða 1.200 milljónum ís-
lenskra króna á ári í stefnumóta-
síður.
Einn af þeim sem hittu
draumadísina sína á netinu er Juan
Carlos Vargas sem starfar sem arki-
tekt á stofu og vinnur auk þess sjálf-
stætt og hefúr ekki tíma til að fara út
á lífið að leita að ástinni. Hann
kynntist kæmstunni sinni, Beatriz,
fýrir einu og hálfu ári og töluðu þau
saman í gegnum vefmyndavél. Þau
em alsæl og hamingjusöm og segja
bæði að það að kynnast á netinu feli
í sér nánari kynni því fólk tali meira
saman um það sem skipti máli og
hávær tónlist á bömm eða diskótek-
um trufli ekki.
íslendingar notfæra sér líka
stefnumótasíður til að leita að ást-
inni. Ein af þeim síðum er
einkamal.is og er hún mikið heim-
sótt en það er ókeypis að skrá sig á
síðuna.
Ein af mörgum
Juan Carlos og Beatriz eru
hamingjusam tparsem
kynntistá veraldarvefnum.
Skemma lestir í
Hollandi
Yfirmenn hollensku jám-
brautanna hafa boðið vand-
ræðaunglingum að hjálpa sér
við hönnun neöanjarðarlestar-
vagna með því að gera það sem
þeir gera best - eyðileggja. Ung-
lingunum hefur verið gefið leyfi
til að rífa upp sæti, og skera og
losa festingar eins og þeir geta.
Markmið yfirmannanna er að
gera búnað lestanna þolnari fýr-
ir skemmdarvörgum. „Við vilj-
um gera lestimar sem allra best
úr garði því ástandið er óvíða
jafnslæmt og hér,“ segir Mark
van der Horst, borgarstjóri
Amsterdam.
L