Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 3 7. JANÚAR 2006
Menning DV
*
sem hann fékk i desember.
Steinunn Sigurðardóttir Fékkþriggja ára :
starfslaun ígær - fær hún ábót hjá Óla?
ÞÆR fréttir berast nú úr ráðuneyti
mennta og lista að ráðherrann hafi
áhuga á að steypa í eina ... blddu jú:
stofnun Menningarsjóði, sem er
reikningur hjá ríkissjóði, Kynningar-
sjóði bókmennta, sem er skrifstofa
með einn starfsmann og fáeinar
miljónir til að skammta á garðinn,
og Þýðingarsjóði.
NÚ mætti halda að sjálfstæðis-
menn í menntamálaráðuneytinu
væru tregir til að auka á skrifstofu-
hald og launakostnað fyrir peninga
skattgreiðenda, en með nýrri stofn-
un má endurskoða yfirstjórn og
koma einhverjum góðum flokks-
manni I betra djobb með minnst
tvo starfsmenn
þar sem enginn
er fyrir.
Flugur
þA spyrja menn hvað verður um þá
sem fyrir sátu á fleti: þær sómakon-
ur Bessl Jóhannsdóttur og Jónínu
Mikaelsdóttur? Hvöt hlýtur að
veina hátt ef þeim verður velt úr
traustum sessi.Hver skyldi enda I
þeim þæga sessi að undangenginni
auglýsingu?
ÞAÐ verður partí hjá forsetanum í
vikunni og Bókmenntaverðlaunin
íslensku afhent. Þessi penni veðjar
á Steinunni Sigurðardóttur I skáld-
skapardeildinni og Þóru Kristjáns-
dóttur I fræðideildinni.Verst hvað
salurinn á Bessastöðum er rassgats-
legur. (þetta eina sinn sem ritari
þessara orða hætti sér í gestahóp-
inn var minnistæðast hvernig skrif-
stofustjórinn á forsetaskrifstofunni
ruddi gestum frá þeim enda salar-
ins þar sem gestgjafinn skyldi
standa og minnti mest á duglegan
dyravörð með erfiða biðröð.
EN það var réttmætt: því skyldu
einhverjir gestir sjást í mynd þegar
mikilmenni tala (nærri beinni út-
sendingu?
stuttmyndahAtIðin í
Clermont-Ferrand
stendur nú sem
hæst og fátt er
þar af myndum
frá Islandi -
raunar ekk-
ert.Eina
myndin sem
á einhverja
taug hingað
er Fangelsis-
próject Helenu
Jónsdóttur sem
er samfram-
leiðsla Eist-
lands,
Þýskalands
og (slands.
Ný tækni í dreifingu myndefnis er aö festast í sessi hér á landi: dreifing á kvik
myndum um ADSL
Myndveita Símans hefur frá því
í byrjun desember boðið upp á
Strákana okkur eftir Robert Dou-
glas í banka sínum yfir kvikmynd-
ir. Hefur myndin verið sú vin-
sælasta í myndavali og haft betur
en margar stórar erlendar myndir.
Myndveitan býður nú yfir 300 titla
og hefur orðið hröð uppbygging á
safninu sem velja má úr. Milli 20
og 25 þúsund heimili eru í við-
skiptum við veituna, en myndin er
flutt um ADSL-tengi, rétt eins
internetþjónusta.
Tveir hálfir salir
Ekkert samfélag er eins vætt
með internetnotkun, bæði með
ISDN og ADSL. Síminn hefur
byggt myndveituþjónustuna upp
og býður bæði efni gjaldfrjálst og
gegn gjaldi. íslensku myndirnar
fóru ekki í dreifingu á leigur eða til
sölu eins og tíðkast hefur og hafa
margir verið forvitnir um söluár-
angur um myndveituna. Ekki eru
gefnar uppi sölutölur en í þessum
viðskiptum þykir gott ef titill nær
10% dreifingu. Ef Strákarnir okkar
eru komnir yflr það hefur myndin
farið út í 1500 til 2000 seldum ein-
ingum. Minna má á að stóri salur-
inn í Háskólabíó tekur tæplega
þúsund manns í sæti.
Þrjú verð
Efnið er selt í þremur verð-
flokkum 250 kr., 450 kr. og 800 kr.
Gera menn sér vonir um að þarna
sé í uppsiglingu gluggi eins og það
er kallað í myndréttarhugtökum
sem geti á éftir kvikmyndahúsum
náð inn umtalsverðum tekjum
fyrir kvikmyndaframleiðendur. Að
sögn Friðriks Friðrikssonar sem
hefur um nokkurra ára skeið unn-
ið að þessu og hliðstæðum verk-
efnum hjá Símanum, fyrir og eftir
eigendaskipti, er þess að vænta að
þar verði banki veitunnar efldur
og þar verði ekki bara í boði
myndir af bandarískum uppruna,
gamlar og nýjar, heldur líka
margs konar efni- annað. Er þá
einkum litið til Evrópu.
Nýlega tilkynnti Orkuveita
Reykjavíkur verkefni sama eðlis og
Síminn hefur þróað og má vænta
þess á markað á árinu.
Caché heidur áfram
Kvikmyndin Caché eftir Michael Heneke sló í gegn svo um munaði á Franskri
kvikmyndahátíð sem lauk í gær. Áætlað var að sýna myndina aðeins þrisvar
sinnum, en vegna mikilla vinsælda var bætt við auka- /^£T\
sýningu 29. janúar. Þaðfór eins með hana og hinar ' .
sýningarnar, uppselt var og færri komust að en
vildu. j heildina hafa á annað þúsund manns séð V 'k'i
myndina, en fjöldinn takmarkaðist einfaldlega af jniiSfp'
stærð salanna sem myndin var sýnd í á þessum fjór- , ;•
um sýningum. Þýðir þetta að Caché er aðsóknar-
hæsta mynd Franskrar hátíðar.
Vegna þessara miklu vinsælda og vegna
fjölda áskorana hefur verið ákveðið að
sýna myndina áfram. Senda átti filmuein-
takið úr landi strax eftir hátíðina en náðst
hefur að semja um að halda því lengur
hérlendis. Á föstudag fer hún í almennar Michae| Haneke leikstjóri Hér er
sýningar í Háskólabíói og verður sýnd höfdinginn med Evrópuverðlaunirt
þar í að minnsta kosti tíu daga til.
Helena Jónsdóttir Sýnir
verk í Clermont Ferrand.
Verkfall sýnt í Firðinum
í kvöld verður fyrri sýning af
tveimur á rússnesku kvikmyndinni
Statska eða Verkfalli frá árinu 1925
eftir Sergei Eisenstein. Þetta var
fyrsta kvikmynd Eisensteins og er
talin bera höfundarmerki hans í
hvívetna. Hún er fyrst þriggja
mynda Eisensteins um baráttu
tötralýðsins í borgum Rússlands
þar sem æsingur byltingarbaráttu
svífur yfir vötnum. Hinar eru Beiti-
skipið Potemkin (1925) og Október
(1927).
í Verkfalli segir frá verkamönn-
um sem í byrjun síðustu aldar fara
í verkfall eftir að samstarfsmaður
þeirra fremur sjálfsmorð en hann
hafði verið ranglega ásakaður um
þjófnað. Dagarnir líða en ekkert
þokast í samkomulagsátt. Lögregl-
an reynir að neyða verkamennina
til uppgjafar, ræðst inn á heimili
þeirra og stráfellir menn, konur og
börn. Myndin er þögul en milli-
. textar eru á íslensku.
Á undan kvikmyndinni verður
sýnd stutt heimildamynd um kvik-
myndagerðarmanninn Sergei
Eisenstein. Myndin er 'á íslensku
og þulur er Sergei Halipov.
Þess má geta að félagsskapur-
inn MÍR, Menningartengsl íslands
og Rússlands, kom árið 2004 kvik-
myndasafni sínu, hátt í 2000 titl-
um, fyrir hjá Kvikmyndasafni ís-
lands og eru báðar þessar myndir
úr því safni. ívar H. Jónsson, for-
maður félagsins, þýddi millitexta
myndarinnar Verkfalls.
Kvikmyndasýningar Kvik-
myndasafns fslands eru í Bæjar-
bíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði alla
þriðjudaga kl. 20 og laugardaga kl.
16.
Blönduð mynd Úrkvikmynd-
inni Verkfalli þar sem Eisen-
stein gerði slnar fyrstu tilraunir
með myndmálið.
DV-tvynd Oetty Imoges