Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2006, Qupperneq 40
JT* Y ^ 11 CÍ jJ í 0 í* Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað i DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^mfnleyndar er gætt. *-* <-* q fj Q fj
SKAFTAHÚÐ24,105BEYKJPiVÍK [STOFNAÐ 1910] SfMl5505000 5 690710 1111171
• Sjónvarps-
drottningin
Vala Matt
þótti sér-
kennilega í
sveit sett
innan um
hnakkana á
Sirkus-sjón-
varpsstöð-
inni. Þáttur
hennar Vegg-
fóður hefur verið færður á Stöð
2 og kann Vala sér vart læti fyr-
ir kæti. Hefur hún undanfarin
ár verið í hæsta lagi með einn
tökumann þegar hún fer og
skoðar híbýli manna, jafnvel
að hún hafi sjálf verið með
kvikmyndatökuvélina sér í
hönd. Nú er heilt tökulið sem
fylgir henni hvert fótmál og
Vala sinnir sínu sem sú stjarna
sem hún er...
Seltjarnarnesherra!
3 'Ao&í
Ólafur Egilsson sendiherra ætlar
að kasta sér út í pólitík og býður sig
fram í próikjöri sjálfstæðismanna á
Seltjarnarnesi.
„Starfstíma mínum í utanrfkis-
þjónustunni lýkur í sumar og ég tel
að fólk geti almennt vel starfað leng-
ur en aldurstakmörk ríkisstarfs-
manna segja til um," segir Ólafur
sem verður einmitt sjötugur í sumar
þótt hann líti ekki út fyrir það. Lfkari
rúmlega fimmtugum manni á velli.
„Ekki veit ég það en ég held mik-
ið upp á bfómynd sem ég sá um pí-
anósnillinginn Arthur Rubinstein
sem þá var níræður. í myndinni
sagðist hann leika Chopin betur
núna en hann gerði í fyrra," segir
sendiherrann sem síðast gegndi
sendiherraembætti f Kína. Flutti
heim í árslok 2002.
„Það skiptir lidu hvar maður er.
Fólkinu svipar saman í Súdan og
Grímsnesinu og ég gleymi því aldrei
þegar ég gegndi fyrst störfum í París
hversu mér fannst ég kannast við
marga sem ég sá þar. Sérstaklega
fannst mér verkalýðsforingjarnir þar
líkir þeim sem þá létu mest að sér
kveða hér heima nema hvað fylking-
amar að baki þeim voru miklu
lengri. Manneskja er alltaf mann-
eskja," segir Ólafur Egilsson sem
hefur átt fasta búsetu á Nesinu í ára-
tug þrátt fyrir eril erlendis.
„Við hjónin hófum búskap hér á
Nesinu og eignuðumst hér okkar
fyrsta barn. Þá gekk strætó aðeins að
Mýrarhúsaskóla og engin voru
bamaheimilin. En ég á mér draum
um að hafa hér áhrif um það sem
eftir á að gera," segir Ólafur Egilsson
sem er alls ekki að taka sín fyrstu
spor í pólitíkinni um sjötugt:
„Ég var áhugasamur um stjóm-
mál fyrr á ámm og var til að mynda
ritari í Heimdalli, í stjóm Sambands
ungra sjálfstæðismanna og formað-
ur Stúdentaráðs. Ég átti möguleika í
pólitíkinni en fannst þá eins og of
mikill tími brynni upp í alls kyns
þrasi. En nú hef ég tíma og vil," seg-
ir Ólafur Egilsson sendiherra sem
vili þriðja sætið í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna á Nesinu.
Öryggi alla leið
Við opnuðum á nýjum stað í
stærra húsnæði að Skútuvogi 8,
mánudaginn 30. janúar.
S
8
3
Fa