Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2006, Qupperneq 18
T8 MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2006
Sport DV
Jóhann áfram
í Svíþjóð
Knattspyrnumaðurinn
Jóhann B. Guðmundsson
hefur náð munnlegu sam-
komulagi um að leika með
sænska úrvalsdeildarliðinu
GAIS næsta árið. Jóhann
hefur undanfarið leikið
með örgryte en þar sem
bæði lið eru í Gautaborg
þarf hann ekki að flytja.
„Þetta er mjög þægilegt,"
sagði Jóhann í gær en GAIS
vann sér sæti í úrvalsdeild-
inni í haust. „Stefnan er
fyrst og fremst að halda sér
uppi og hefur liðið verið að
styrkja sig undanfarið."
Kani til
Keflavíkur
Á fimmtudaginn næst-
komandi kemur Banda-
ríkjamaðurinn Geoff
Miles til landsins
og mun vera til
reynslu hjá knatt-
spymuliði Kefla-
víkur. MOes lék
síðastliðið sumar
með Haukum í 1. deildinni.
Þá er það einnig að frétta af
liði Keflavíkur að Stefán
örn Arnarsson æfir með
liðinu þessa stundina en
hann er samningsbundinn
Víkingum og var á láni hjá
félaginu síðastliðið sumar.
Enn er óljóst hvernig hans
málum verður háttað.
Esbjert) vilja
Aron Einar
Aron Einar Gunnarsson,
16 ára knattspyrnukappi frá
Akureyri, er með tUboð frá
danska úrvalsdeUd-
arliðinu Esbjerg
eftir að hafa verið
til re\aislu hjá fé-
laginu. Aron Einar ll)^». CV/yJl
er leikmaður Þórs ; j Æ/
og spUaði fimm leiki
með liðinu í 1. deUdinni
síðastliðið sumar. Hann á
einnig sjö leiki með U-17
ára landsliði íslands að
baki. Hann er einnig á leið
til Hollands þar sem hann
mun æfa með PSV Eind-
hoven og mun því senni-
lega bíða með að svara til-
boði Esbjerg þar til hann
hefur reynt sig þar.
16.00 Ensku úrvalsdeUd-
armörkin á RÚV.
19.50 WestHam-
Birmingham í beinni á
Enska boltanum.
2^71 20.30 ftölsku mörkin á
21.00 Ensku 1. deUdar-
" mörkin á Sýn.
21.30 Spænsku mörkin á
Keflavík og KA prúð-
ust Eggert Magnússon er
hér með Drago-styttuna
sem veitt er prúðustu lið-
um efstu deiidarog I.
deildar. lár fengu Keflavik
og KA þá viðurkenningu.
Ársþing KSÍ fór fram á laugardaginn þar sem helst bar fjölgun liða í fyrstu deild
karla frá og með þarnæsta keppnistímabili. Aðeins eitt lið fellur úr 1. deildinni
næsta sumar en þrjú lið úr 2. deildinni verða flutt upp um deild að sama skapi.
Aðrar tillögur voru einnig samþykktar sem meðal annars fela í sér að félögin þurfa
að byggja stærri varamannaskýli.
Aukinn Makostnnður
vegna fjölgunan í 1. deild
Tillaga Leiknis í Reykjavík um fjölgun liða í fyrstu deild karla
var samþykkt á ársþingi KSÍ sem fór fram á Hótel Loftleiðum á
laugardag. Þetta var stærsta breytingatillagan sem samþykkt
var en einnig var samþykkt að fjölga varamönnum og einnig sú
tillaga Skagamanna um stjörnur á búningum liða.
„Þetta mun auðvitað hafa þó
nokkrar skipulagsbreytingar í för
með sér," sagði Birkir Sveinsson
mótastjóri KSÍ við DV Sport eftir árs-
þingið um helgina. „Við eigum eftir
að fara almennilega yfir hversu
miklar breytingarnar verða en ég
gæti trúað því að það fyrsta sem
menn munu verða varir við er að
þeim leikjum þar sem lið þurfa að
ferðast langar leiðir munu oftar
verða háðir í miðri viku."
Birkir segir að horft hafi verið til
þess í gegnum tíðina að láta slíka
leiki fara fram á laugardegi svo liðin
geti keyrt á milli landshluta í stað
þess að liðið ferðist með flugvél með
tilheyrandi kostnaði.
Taka kostunum og göllunum
„Við verðum að taka þessu með
öllum þeim kostum og göllum sem
eru við þetta fyrirkomulag," sagði
Páll B. Guðmundsson, formaður
knattspyrnudeildar Hauka. „Ef við
ætlum að ná betri árangri í knatt-
spyrnunni þarf að grípa til aðgerða
eins og þessa. Við þurfum að fá fleiri
leiki og fleiri verkefni, knattspyrnan
er bara þannig íþrótt."
Enn liggur ekki ljóst fyrir hvernig
breytingar verða gerðar á móta-
skipulagi 1. deildarinnar en Birkir
segir þó víst að fyrst og fremst verði
lögð áhersla á að leika þéttar. Þó
þyrfti sennilega að lengja tímabilið
eitthvað í báða enda og eru skiptar
skoðanir um hvernig sé best að
standa að slíkri lengingu. Mönnum
hafi verið tíðrætt um innanhúsvell-
ina, gervigrasvelli og þar fram eftir
götunum en sýnist hverjum sitt um
hvað sé besta leiðin til að lengja
tímabilið.
Þessi umræða hefur verið áber-
andi þegar talið berst að fjölgun liða
í efstu deild en í fyrra var skipuð sér-
stök vallarnefnd til að skoða hvað
þyrfti að breytast til að það væri
hægt. Það er niðurstaða nefndar-
innar að breytínga sé þörf sem sé
kostnaðarfrek fyrir félögin. Ann-
aðhvort þyrftu félögin að leggja
fyrsta floícks gervigras eða grasvöll
með innbyggðu hita- og vökvunar-
kerfi ásamt yfirbreiðslu til að geta
hafið tímabilið fyrr á vorin.
Engin tillaga var hins vegar á
þinginu um fjölgun liða í efstu deild
og frestast því þessi umræða enn
frekar um eitt ár til viðbótar.
Varamönnum fjölgað
FH-ingar lögðu fram tillögu um
að fjölga varamönnum úr fimm í sjö
og var hún samþykkt. Birkir segir að
því liggi ljóst fyrir að félögin þurfi að
byggja stærri varamannaskýli. Hann
býst þó ekki við að það teljist mikil
hindrun. „Þetta samþykktu félögin
sem áttu fulltrúa á þinginu og því
hljóta þau að vera samþykk því."
„Við verðum að taka
þessu með öllum þeim
kostum og göllum
sem eru við þetta fyr-
irkomulag
Stjörnur á búninga
Þá var einnig samþykkt tillaga ÍA
um að félög geti skartað stjörnum á
búningum liða sinna eftir því hversu
oft liðið hefur orðið íslandsmeistari.
Ein stjama fyrir hverja fimm titla.
Það þýðir að íslandsmeistarar FH fá
enga stjörnu en KR-ingar fá flestar
eða fjórar talsins. Aðeins einn titil
vantar upp á að liðið fái fimmtu
stjörnuna. Valur, Fram og ÍA fá þrjár
stjörnur en Valsmönnum vantar
einn titil upp á þá fjórðu. Þá fá Vík-
ingar eina stjörnu á sinn búning en
þá er það upptalið. Þess skal þó
getið að Keflvíldngar eru aðeins ein-
um titli frá sinni fyrstu stjörnu.
eirikurst@dv.is
Dregið í A- og B-deildir Evrópukeppni karla og kvenna í körfubolta um helgina
Eigum raunhæfa möguleika á að komast áfram
Um helgina var dregið í riðla í A-
og B-deild Evrópukeppni karla og
kvenna í körfubolta. ísland var í
fjórða styrkleikaflokki af fimm í bæði
karla- og kvennaflokki og dróst
landslið karla gegn Austurríki (1.
styrkleikaflokkur), Georgía (2.),
Finnlandi (3.) og Lúxemborg (5.).
Konurnar taka nú þátt í keppninni í
fyrsta sinn og drógust gegn írlandi
(1.), Noregi (2.) og Hollandi (3.).
England var eitt í fimmta styrkleika-
flokki og dróst í hinn riðilinn.
Keppt verður í þremur riðlum í
flokki karla og komast sigurvegarar
hvers riðils áfram á næsta stig
keppninnar auk liðsins sem náði
bestum árangri af þeim liðum sem
lentu í öðru sæti. Þá taka við undan-
úrslitaleikir þar sem leikið verður
heima og að heiman og komast sig-
urvegarar þeirra leikja upp í A-deild.
í síðustu keppni voru Islendingar
í riðli með Dönum og Rúmenum og
áttu ágæta möguleika á að komast
áfram en töpuðu fyrir Dönum í
hörkuleikjum. Danir gengu á lagið
og keppa nú í A-deild.
• „Þetta er mjög spennandi. Þetta
ér mitííð af góðum liðum sem við
lentum á móti og allt saman
hörkulið. Finnar eru til að mynda
með tvo heimsklassaleikmenn og
því er útlit fyrir hörkuleiki," sagði
Sigurður en leikir íslands fara fram
næsta haust og haustið 2007. „En
samt tel ég að við eigum raunhæfa
möguleika á að komast áfram. Við
höfum trú á okkur og því sem við
erum að gera. Við erum orðin sterk
körfuboltaþjóð og er allt hægt ef við
vinnum vel."
Landsliðið hefur undirbúning
sinn strax að lokinni
keppni í Iceland Ex-
press-deildinni og
keppir á Norður-
landamótinu í Finn-
landi í byrjun ágúst.
eirikurst@dv.is
Gegn Dönum Hlynur
Bæringsson gegn Dön-
um síðastliðið haust og
Friðrik Stefánsson fylgist
með. DV-mynd Vilhelm