Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2006, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2006, Blaðsíða 35
400 kr. MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR kl: 12 UM HELGINA í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI STMST* KVIKMYNDAHÚS UNDSINS • HAGATOCGI - S. 530 1919 • www.Kasltolablo.is VINS/ELASTA MVND FRANSKRAR HATlDAR SVND AFRAM VERNA FJdLDA ASKORANA TILNEFNINGAR m OSKARSVERÐLAUNA 2006 ^ULiETTE BiNOCHE HROKi & HUYPtÐÓMAR DERAILED BAMBI2 MUNICH CRONICLES OF NARNIA HARRY POTTER & ELDBIKARINN NORTH COUNTRY BAMBI2 BAMBI 2 VIP DERAILED DERAILEDVIP MUNICH PRIDE & PREJUDICE OLIVER TWIST RUMOR HAS IT CRONICLES OF NARNIA KING KONG HARRY POTTER & ELDBIKARINN KL 5:15-8-10:40 B.1.12 KL 4-6 KL 4-6 KL 8-10:20 B.1.16 KL 8-10:20 KL 9:15 B-1.16 KL 8 KL 4-6:30 B.1.12 KL 10:40 KL 5 KL8 BJ.12 KL 5 B.1.10 CACHÉ KL 8-10:30 B.l. 16 PRIDE & PREJUD. KL 5:30-8-10:30 HARRY POTTER OG ELDB. KL5:15 8.1.10 CRASH KL 8-10:20 B.1.16 KL 6-8 KL 6-8.15-10:10 b.i.16 KL. 8:15-10 b.i. 16 KL 5:45 b.i.12 HADEGISBIO OSKARS- VERÐLAUNA 2006 DERAILED FRUMSYND I KVÖLD iiim:im\c\h rn 2ÓSKARS VKRD- LAUNA sooo .. t NORTH COIJN DERAILED KL. 8-10:10 B» 16 FUN WITH DICK&JANE KL8 JARHEAD KLI0 AKUREYRI Soldiö væld En með snyptimennskuna í lyrirrúmi Það var með litlar væntingar og mikla þynnku að ég skrölti í kvik- myndahús til að reyna að forða því að verða rekinn fyrir skrifleti og dómskort og kannski til þess að von- ast til að sjá eitthvað gott svona til tilbreytingar. Ég satt að segja vissi ég nákvæm- lega ekki neitt um þessa ræmu, bara það að lafði Dench er í aðalhlutverki og herra Hoskins líka, traustir leikar- ar sem maður getur vænst að leiki í almennilegum myndum annað slagið. Myndin fjallar um frú Henderson sem hefur misst eiginmann sinn og veit ekki hvað hún á að gera við sig í ekkjulífinu eftir að hafa búið á Ind- landi í mörg ár. Ekkert af því sem henni er ráðlagt virkar til þess að stytta henni stundir og í ökuferð í gegnum Soho sér hún yfirgefið leik- hús sem hún ákveður að kaupa. Þar sem hún veit ekkert um leikhús- rekstur ræður hún til sín Vivian Van Damm, vanan leikhússtjóra. Fyrstu sýningar Vindmylluleikhússins eru gríðarlega vinsælar enda hieyptu þær nýju blóði í frekar staðnað leik- húslífið en það fer svo að allir fara að herma eftir og leikhúsið fer að tapa peningum. Þá dettur frúin niður á þá hugmynd að hafa naktar stúlkur í sýningunni, öllum til mikillar undr- unar. Það var þó meira en að segja það því að það voru strangar reglur um þannig lagað á Englandi á þess- um tíma, sem var rétt fyrir stríð, ef ég gleymdi að benda á það í byrjun. Hefst þá frægðarsaga Vindmyllu- leikhússins fyrir alvöru. Það verður bara að segja að þessi mynd er hreint út sagt stórkostleg. Frábærlega vel skriíúð, leikstýrt og sérstaklega vel leikin af Dench og Hopkins. Leikgleðin skín af þeim gjörsamlega og maður situr bara með aulabros á andlitinu í hvert skipti sem Dench opnar munninn. Eins og efniviðurinn gefur til kynna er nokkuð um nekt í myndinni en það er aldrei gróft eða farið yfir strik- ið nokkurn tímann. Stephen Frears meðhöndlar efni- viðinn af stakri ró og snilld og dettur myndin aldrei niður í vellulegt Omar for í bio Mrs. Henderson Presents „Þetta er frábær mynd sem allir ættu að sjá." Mrs. Henderson Presents Leikstjóri: Stephen Frears. Aðalhlutverk: Judi 4 Dench, Bob Hoskins, Will Young, Kelly ReiUy. ypp ★ ★★★☆ \ hádrama eins og svona myndir eiga auðvelt með að gera og endar myndin á alveg fullkominn hátt. Þetta er frábær mynd sem allir ættu að sjá en ég er nokkuð viss um að bolurinn haldi sig fjarri. Aðdá- endur tónlistarmannsins Wills Young fá samt tækifæri til þess að sjá sprellann á honum ef það hjálpar eitthvað að koma þeim á góða mynd. Ómar öm Hauksson Leikkonan íðilfagra Halle Berry sendi frá sér fréttatilkynningu i vik- unni þess efnis að hún ætti í ástar- sambandi við fyrirsætu hjá Versace. Karlfyrirsætan heitir Gabriel Aubry og þau opinberuðu samband sitt i veislu sem Versace hélt á þriðjudag. Leikkonan sem er tvískilin hafði ver- ið að hitta Gabriel síðan í desember en þau kynntust við gerð auglýs- ingaherferðar fyrir fyrirtækið. Halle og Gabriel eru að sögn vina óaðskilj- anleg og mjög hamingjusöm saman. Söngkonan magnaða Joss Stone segist jafnvei vilja hætta að syngja til að verða Ijósmóðir. Stone er að- eins 18 ára og hefur heldur betur slegið i gegn í tónlistarbransanum undanfarin tvö ár. Söngkonan sagði í viðtali á dögunum: „Ég vil verða Ijósmoðir. Það hlýtur að "V vera frábær vinna. Ég bara .«* vil ekki vera söngkona allt j mitt líf. Ég vil læra. Ég hélt ég myndi aldrei segja þetta." Hún hefur ” einnig viðurkennt að ÉÉ hún hafi hafnað \ \ f ' / JUk tækifærumtil þess að leika í ’ >» 3j myndum, vegna þess að hún segir að ' hún myndi bara eyði- i leggja þær myndir sem að hún léki í. Hún segist ekkert vera á leið- ’ ,1 inni að skipta út söngn- _•# r" um fyrir leik. Kissfm leitar um þessar mundir að næstu útvarpsstjörnu íslands. Sigurvegari keppninnar mun fá eins árs samning og útvarpsþátt á besta tíma. Leitin að útvarpsstjörnu íslands „Þetta gengur út á það að verða næsta útvarpsstjarna fslands," segir Þórður Helgi Þórðarson, þekktur undir nafninu Doddi litli eða Partý- hetjan. „Þetta er keppni um hver er næsta útvarpsstjarnan og sá sem vinnur fær árssamning og þátt á besta tíma dags.“ Það er því að nægu að keppá og ekki amalegt að eiga möguleika á að verða stjarna, svona einn, tveir og bingó. „Það er 20 ára aldurstakmark og er öllum velkomið að skrá sig.“ Allar upplýs- ingar um keppnina er hægt að frnna inn á kissfm.is. Doddi segir að bráð- lega muni áheyrnarpróf fara fram þar sem fólk fær tækifæri til að spreyta sig. „Það eru góðar líkur á því að komast í útvarpið ef þú skrá- ir þig. Við gerum ráð fyrir svona 50 manns í fyrstu grisjun og verða bút- ar með þeim spilaðir í útvarpinu." Sérstök nefnd mun svo velja 20 ein- staklinga og munu þeir fá frekara tækifæri til áð sanna sig sem næsta útvarpsstjarna íslands. „Eftir að nefndin hefur valið 20 mun svo þjóðin velja 10 af þeim. Svo munu þrír standa eftir og þjóðin velur næstu útvarpsstjömuna." Þáttur heitir Næsta útvarps- stjarna íslands mun halda utan um efnið. Doddi segist vera ánægður með þátttökuna en segist þó skora á snill- ingana að taka þátt. „Maður er álltaf að heyra í einhverjum snillingum sem halda að þeir geti gert þetta betur en allir sem erú fyrir í útvarpi, ég vil fá þá til að taka þátt. Ég skora á þessa snill- inga að mæta.“ asgeir@dv.is 8 Þórður Helgi Gunnarsson Útvarpsmaður á Kissfm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.