Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2006, Blaðsíða 32
I
•<
32 MÁNUDACUR 13. FEBRÚAR 2006
Menning DV
Þórarinn á Iðu
Fimmtugasta og fjórða skáldaspírukvöld-
ið verður haldið í Iðu annað kvöld kl.
Okkar ástsæla skáld Þórarinn Eldjárn
mun þá lesa upp úr verkum sínum, m.a.
upp úr nýjustu ijóðabók sinni og vonandi
fleiri textum sem hann á i handraðanum.
Opið verður fyrir frjálsum umræðum með
skáldinu, þar sem andinn fer á flug í nota-
legri stemningu kertaljósa og guta stólsins
fræga.
Gestir mega taka með sér hressingu að ofan.
Frítt er á Skáldaspfrukvöld og eru sem flestir
hvattir tii að mæta og hlýða á upplestur
skálda.
Eldjárninn Þórarinn Les
úr Ijóðasafninu. DV-myndGVA
*'
rv
Irvings minnst
í kvöld verður þess minnst að
öld er liðin frá dauða Henry Ir-
ving sem fyrstur enskra leikara
naut þess heiðurs að vera aðlaður
í Bretíandi. Hann var áhrifamikill
leikari, leikstjóri og leikhússtjóri á
Viktorfutímanum og setti mark
sitt á enskt leikhúslíf langt fram
eftir öldinni: Merkir breskir leik-
arar á borð við Oliver og Burton
stóðu í skugga hans.
Það eru þeir félagar Steven
Berkoff og Simon Callow sem
stýra uppákomunni í kvöld en
báðir hafa haldið á loft hinni
fornu hefð „actors-managers" á
ferli sínum. Bæði leikið og rekið
leikflokka.
Hátíðin verður í leikhúsinu
sem hýsti frægustu sviðsetningu
Irvings, The Bells, Lyceum-leik-
hússin í Covent Garden sem nú
hýsir The Lion King. Þar verður
The Bells flutt af skara þekktra
leikara til stuðnings við
TheatreCares, líknarsjóð leikara
fyrir HlV-smitaða og eyðnisjúka.
Hundrað ára dánartíðar Henriks Ibsen verður minnst víða um álfur á þessu ári.
Hér á landi verður stórviðburður því tengdur þegar Þjóðleikhúsið frumsýnir
nýja þýðingu af Gautnum í nýjum leiksal undir stjórn Baltasars Kormáks.
Útrásapmaðurlnn Pétur Gmitur
Júlía leikur á sviði
Leikhúsrekstur á Broadway
gengur vel. Á sama tíma og að-
sókn að kvikmyndum minnkar er
aðsókn að leiksýningum í New
York sú besta síðan 1985. Tólf
milljónir sóttu leiksýningar í New
York á síðasta ári og hafa tekjur
aldrei verið hærri: 825 milljónir
dala.
Og enn kætast menn. Þar eins
og í London tíðkast mjög að draga
kvikmyndaleikara á svið: Jonathn
Pryce verður þar í Dirty Rotten
Scoundrels sem byggt er á bíó-
mynd og Jospeh Fiennes kemur
og leikur í Faith Healer eftir írska
meistarann Brian Friel í apríl.
Mest tíðindi þykja þó að Julia
Roberts sem litía reynslu hefur af
leik á sviði ætíar að koma og leika
í verki sem heitir Three Days of
Rain. Verður ffumsýning í mars.
Þar mun dívan leika konu á
tveimur tímum í ævi hennar.
Verður Roberts með í sýningunni
í tólf vikur og er uppselt á allar
sýningar. Seld-
ust miðarir 7
milljónir
dala á
Þetta verður ár Hinriks. í fyrra
var það ár Hans Kristjáns. Hinrik er
Ibsen og Norðmenn eru nú að
massa sig upp í mikil hátíðahöld til
að minna menn á glæsilegan feril
þessa merka skálds Ijóða og leiks.
Ekki að undra: verk Ibsen eru leikin
á 130 stöðum í heiminum í viku
hverri. Hafa Norðmenn sett í gang
vefsíðu til að fylgjast með ffam-
gangi verka hans um veröldina af
þessu tilefni.
Ibsen dó 78 ára gamall í maí
1906 og það dugar mönnum til að
herða róðurinn fyrir skáldinu og
verkum hans sem mörg hafa enn
afar sterk áhrif á áhorfendur og eiga
erindi. Vilja menn meina.
Kassinn
Hér á landi verður þessa minnst
með nýrri sviðsetningu á Pétri Gaut
eftir Henrik Ibsen sem verður
frumsýndur í Kassanum 23. febr-
úar. Leikstjóri er Baltasar Kormákur
en með titilhlutverkið fer Björn
Hlynur Haraldsson. Pétur Gautur
er vígslusýning Kassans, sem er
nýtt svið í Þjóðleikhúsinu og nýtur
sérstaks stuðnings Landsbankans.
Með hlutverk Péturs Gauts fer
Bjöm Hlynur Haraldsson sem
þreytir nú fmmraun sína í Þjóðleik-
húsinu. í öðrum hlutverkum em
Brynhildur Guðjónsdóttir, Edda
Amljótsdóttir, Guðrún S. Gísladótt-
ir, Ingvar E. Sigurðsson, Ólafía
Hrönn Jónsdóttir, Ólafur Egill Egils-
son og Ólafur Darri Ólafsson.
Karl Ágúst Úlfsson hefur gert
nýja þýðingu á verkinu, um lýsingu
sér PáÚ Ragnarsson og Helga I. Stef-
ánsdóttir gerir búninga. Grétar
Reynisson gerir leikmynd sýningar-
innar á Pétri Gaut.
Öllu beitt og tjaldað
Pétur Gautur er Ijóðleikur og afl-
aði skáldinu heimsfrægðar. Verkið
kom fyrst út á bók árið 1867 en tæp-
um áratug síðar var það frumflutt
og hefur reglulega verið sett upp í
ffægum uppsetningum í helstu
leikhúsum heims síðan þá.
Hin margbrotna titilpersóna
verksins og knýjandi spumingar
um það sem skiptir máli í lífinu og
kjarna hins siðlega manns em hluti
af aðdráttarafli leikritsins.
í sýningu Þjóðleikhússins nú
verður sjónum beint að Pétri Gaut í
nútímanum. Ekki að furða: Gautur
er útrásarmaður og kemur víða við
á flandri sínu um veröldina, hann
er uppá kvenhöndina og er tilbúinn
að ljúga og svíkja til að ná sínu
fram.
Verða mótmæli við Sfinxina?
Á þessu ári Ibsens er skáldsins
minnst með leiksýningum, hátíða-
höldum og hvers kyns uppákomum
víða um heim. Menntamálaráðu-
neyti Noregs skipuleggur margvís-
lega viðburði á árinu en undir lok
ársins verður sérstök hátíðarsýning
á Pétri Gaut við Sfinxina í Giza í Eg-
yptalandi en eitt atriði verksins ger-
ist þar.
Nú í febrúar er einmitt hundrað
og þrjátíu ára sýningarafmæli leik-
ritsins, en Pétur Gautur var frum-
fluttur í Kristjaníuleikhúsinu þann
24. febrúar 1876.
J Baltasar og Bjórn Hlynur Frumsýning verður
I ÞJJm frumraun■ Baltasar hefur ekki unnið
I áðurJ°Pnu rými sem Kassanum.Björn Hlynur tekst
I á við sittstærsta hlutverk tilþessa og fetar ífótspor
I þeirra Lárusar Pálssonar, Gunnars Eyjólfssonar, Arn-[
\ars°R Yn9var,og JakobsÞórs. Dv-myndÞjóðleikhúsið I
Þjóðleikhúsið heiðrar skáldið
með Pétri Gaut, stendur fyrir dag-
skrá um verkið og Ibsen í samstarfi
við norska sendiráðið í mars og
námskeiði fyrir almenning í tengsl-
um við sýninguna á Pétri Gaut.
Eurovision er smitandi
■ ■
Herma eftir Eurovision í Ameríku
Júlía er köld Skellirsérá
svið sem hún hefurekki
gert áður, nýbúin að fæða
tvibura. DV-mynd Reuter
Nú er í ráði vestanhafs að læra
af þeim mikla áhuga sem
Eurovision vekur einatt í Evrópu
og hyggst NBC stofna til sam-
keppni sem byggir á þessu merka
menningarfyrirbæri okkar Evr-
ópubúa. Tilgangur NBC er að
koma upp samkeppnisþætti sem
getur tekist á við hinar gríðarlegu
vinsældir American Idol - sem er
reyndar þáttur byggður á
breskum þætti sem kallast Pop
Idol. American Idol er á Fox sem
er beinn keppinautur við NBC á
mörgum sviðum í sjónvarpi vest-
anhafs.
Hugmyndin er einföld. Hægt
er að efna til undanúrslita í öll-
um ríkjum Bandaríkjanna og
stefna öllu saman til eins loka-
kvölds I beinni útsendingu með
atkvæðagreiðslu og finna þannig
lag ársins og flytjanda - og ríki.
Sjá þeir NBC-menn að hér er for-
múla sem getur ekki klikkað því
hér verður stefnt saman í keppni
ríkjum og forn rígur þeirra í mill-
um færður á nýtt svið, en það
hefur lengi verið kapp með ríkj-
unum á íþróttasviðinu sem
kunnugt er.
Ekki hafa þeir NBC-menn
látið uppi mikið um áætlanir sín-
ar en hugsa Fox þegjandi þörf-
ina. í síðustu viku hafði Amer-
ican Idol vinninginn yfir sjálf
Grammy-verðlaunin: 28 milljón-
ir horfðu á Idolið en rétt 15 millj-
ónir sáu Grammy-útsendinguna
sem státaði þekktum nöfnum á
borð við U2, Madonnu og Cold-
play.
Evrovision er smitandi: menn
eru þess minnugir að bæði ABBA
og Celine Dion hófu þar feril sinn
og fimmtíu ára saga þykir þeim í
Ameríku tilkomumikil. Ekkert
fyrirbæri í sjónvarpi þar vestra
býr yfir slíkri sögu. Það voru 39
þjóðir sem tóku þátt í
Eurovision í fyrra og þyk-
ir Bandaríkjamönnum
fyrirbærið
einstakt
hvað varð-
ar fjölbreyti-
leika. Þá þykir
þeim kosning-
arfyrirkomu-
lagið merki-
legt og til
eftir-
breytni.
Selma Björnsdóttir
Á æfingu í Kænugarði.
DV-myndAFP
.
<L