Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2006, Blaðsíða 19
DV Sport
Þó svo að enn séu fjórir mánuðir í HM í Þýskalandi er um
fátt annað rætt í Englandi hver muni taka við Sven-Göran
Eriksson. Forráðamenn enska knattspyrnusambandsins virð-
ast þó sjálfir ekki vera sammála um hvert þeir eigi að leita.
Enskir ósammála
um næsta landsliðspjaffara
Mikið er ritað og rætt um hver verði næsti landsliðsþjálfari
Englendinga eftir að hinn sænski Sven-Göran Eriksson hættir
með liðið að lokinni heimsmeistarakeppninni í sumar. Þeir
sem sjá um að leita að næsta landsliðsþjálfara virðast ekki vera
sammála um eitt aðalatriði - hvort hann eigi fyrst og fremst að
vera enskur eða ekki. . •'■'f5
Þeir sem þykja helst Myndi mæta á fund
koma til greina eru þeir
Martin O’Neill frá Norður- .X
írlandi og Brasilíumaðurinn
Luiz Felipe Scolari. Svo eru þeir sem
finnst að þeir eigi endilega að ráða
einhvem enskan og kemur þá helst
Sam Allardyce, stjóri Bolton til
greina. O’Neill þjálfaði síðast Celtic í
Skotlandi en er nú án félags en Scol-
ari er landsliðsþjálfari Portúgala.
Brian Barwick er formaður enska
knattspyrnusambandsins og
herma fregnir að hann sé
helst spenntur fyrir
O’Neill. Hann er þó að
eins hluti af þriggja
manna nefnd sem
að sér um ráðn-
ingu þjálfarans og
em hinir tveir á
því að Eng-
lendingur eigi
að taka við
Eriksson.
Nefndin á
að skila áliti
sínu þann 27.
febrúar næst-
komandi og mun
sambandið í kjöl-
farið ræða við þá
einstaklinga sem
nefndin mælir
með. Samkvæmt
þessum fregnum
verður líklegast að
enskir knattspyrnu-
stjórar verði efstir á
blaði og þá helst Sam
Allardyce eða jafnvel
Stuart Pearce, knatt-
spyrnustjóri Manchest
er City.
hefur
Pearce
áður
gefið
kynna
Enskirog góðir SamAII-
ardyce og Stuart Pearce
koma til greina sem næstu
landsliðsþjdlfarar Englands
að hann telji sig ekki hæfan til starfs-
ins en hann sagði engu að síður í
viðtali við The People í gær að hann
myndi sannarlega vilja mæta í við-
tal. Ekki em tólf mánuðir liðnir
síðan hann tók við stjórastarfinu hjá
City. „Það væri algjör firra að ég
myndi útiloka sjálfan mig frá
þessu starfi," sagði Pearce. „Ég
yrði að hafa samþykki stjómar-
formanns félagsins en ef mér
væri boðið myndi ég vissulega
fara á fundinn. Annað væri
vanvirðing.”
Það er alls ekki óþekkt
að reynslulitlir menn séu
ráðnir landsliðsþjálfarar
og má benda Marco
van Basten hjá
Hollandi, lúrgen Klins-
X., mann hjá Þýskalandi
og okkar eigin Eyjólf
;V Sverrisson í því sam-
bandi. Rétt eins og í
þeirra tilfelli býr Pearce
yfir mikilli reynslu með
sínu landsliði.
O'Neill til
Newcastle?
En í gær bámst einnig
þær fféttir að Freddie
Shepherd, framkvæmdar-
stjóri Newcastle, mun í
vikunni ræða við Martin
O’Neill um að taka við lið-
inu. Sé Brian Barwick al-
vara um að fá hann í starf
landsliðsþjálfara þarf hann
því að hafa hraðar hendur.
Guus Hiddink, þjálfari
PSV og landsliðs Astrala,
var sterklega orðaður við
starfið en sagði í gær að
hann byggist ekki við
því að fá símtal frá
enska knattspyrnu-
sambandinu.
íslendingar víða í eldlínunni í evrópska handboltanum um helgina
Loqi á fulla ferð á nýjan leik
'hita Licu aðstoðarmaður
Anreðs Gíslasonar hjá Magdeburg
stýrði liði sínu til sigurs í fýrsta sinn
síðan Aifreð var sagt upp störfum.
Magdeburg vann Göppingen, 32-28,
og spilaði Sigfús Sigurðsson í vörn
Magdeburgar en hann skoraði ekki í
leiknum. Arnór Atlason kom ekki við
sögu. Hjá Göppingen var Jaliesky
Garcia meðal markahæstu manna
með fimm mörk.
Logi Geirsson spilaði loksins með
Lemgo eftir langvarandi meiðsli en
hann skoraði tvívegis er liðið vann
Pfullingen, 34-32. Ásgeir örn Hall-
grímsson skoraði eitt mark fýrir
Lemgo. Logi skoraði síðasta mark
leiksins og tryggði þar með Lemgo
sigurinn.
Þórir Ólafsson skoraði íjögur
mörk fýrir Lúbbecke sem beið lægri
hlut fyrir Flensburg, 35-31, en liðið er
í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.
Toppliðið, Kiel, fór heldur ilia út úr
viðureign sinni gegn Snorra Steini
Guðjónssyni og félaga í Minden en
eftir að liðið komst yfir, 11—4, tapaði
það leiknum, 32-30. Snorri Steinn
skoraði tvívegis í leiknum.
Ciudad Real er enn í þriðja sæti
spænsku deildarinnar, tjórum stig-
um á eftir toppliði Barcelona, eftir
leiki helgarinnar. Liðið vann Bida-
soa um helgina, 30-25 og lék Ólafur
Stefánsson með liðinu án þess að
skora.
í Danmörku tapaði íslendinga-
liðið Skjern fyrir GOG Svendborg,
34- 24, á útivelli en Vignir Svavars-
son skoraði fjögur mörk fyrir Skjem
og Jón Þorbjörn Jóhannsson eitt.
Vilhjálmur Halldórsson komst ekki á
blað. Daníel Ragnarsson skoraði
átta mörk fýrir Team Helsinge sem
vann Mors, 34-25, og Fannar Þor-
björnsson skoraði þrívegis fýrir
Fredericia sem tapaði fyrir FCK,
36-26. Sturla Ásgeirsson skoraði eitt
mark fyrir Árhus sem tapaði fyrir
Kolding, 30-25 og þá skoraði
Hannes Jón Jónsson tvö mörk fyrir
Ajax sem tapaði fýrir TMS Ringsted,
35- 20.
Sigurður Ari Stefánsson skoraði
sex mörk fyrir Elvemm sem vann
Stord í norsku úrvalsdeildinni.
Ný þjónusta
við flokkun og
endurvinnslu!
Nú geta íbúar á höfuðborgarsvæðinu fengið sérmerkta
endurvinnslutunnu hjá Gámaþjónustunni hf. sem m.a.
tekur við öllum pappír heimilisins, dagblöðum, tímaritum,
umslögum, skrifstofupappír og pappa, fernum, plast-
umbúðum og málmum.
Einfalt í framkvæmd:
Allur pappír og bylgjupappi má fara beint í tunnuna en
fernur, málmar og plastfari í aðskilda poka í sömu tunnu.
Mánaðargjald fyrir hverja tunnu er 990 kr. og tæmt verður
á fjögurra vikna fresti.
gAmawönustan hf.
BÆTT UMHVERFI - BETRIFRAMTÍÐ
Sími: 535 2500 • gamar@gamar.is • www.gamar.is
Endurvinnslutunnuna er hægt að panta
í síma 535 2510, á netfanginu gamar@gamar.is
og einnig á heimasíðu Gámaþjónustunnar hf.
www.gamar.is
Komið verður með tunnur heim til viðtakenda.