Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2006, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2006, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2006 Sviðsljós 3>V Fjölmennustu ríki heims og frægafólkið þar 1. Kína I Kina búa I kringum 1.314 millj- ónirmanna. Frægasti Kin- verji i heimi er Maó. 2. Indland A Indlandi búa I kringum 1.096 millj- ónirmanna. Frægasti Indverji I heimi er Ghandi. 3. Bandaríkin Bandarikin eiga ekki roö við ind- landi og Klna I fólks- fjölda.Slefabráö- lega i„bara“ 300milljónir Ibúa. Þaöan eru þó mun fleiri frægir og nægiraðnefna t - Elvis Presley. 4. Indónesia Indónesla er rlki myndaö af 17.508 eyjum. 246 milljónir manna búa d 6.000 þeirra.Viö þekkjum ekki marga Indónesa en þeireiga nokkr- ar stjörnur í bad- minton, t.d. Tjun Tjun. >1 5. Brasilía iBraslliubúa 188 milljónir manna. Fótboitakappinn Pelé er frægasti Brasiliumaðurí heimi. 6. Pakistan I Pakistan búa 166 milljónir manna. Forsætisráðherr- ann Musharaffer frægasti Pakistan- inn eins og er. 7. Bangtadesh ÍBangladesh búa 148mittjónir.Sá frægasti er Taslima Nasrin.sem hefur reyndarveriðl útlegöí 10 árþvi bækur hennar þykja eyöiieggja þann „trúariega samhljóm' sem rikir. 8.Rússland Rússar eru um þessar mundir 143 millj- ónir. Frægasti Rússi i heimi er Stalin. 9. Nígería I Nigerlu búa 132 millj- ónir manna. Frægasti fulltrúi þeirra er söngkonan Sade. f 55^ lO.Japan Japan er tlunda fjölmennasta ríki I heimi.Þar búa 128 milljónir. j Frægasti Japani i heimi erYokoOno. s*> Þessu til hliðsjónar mágetaþessaöís- land er 177. fjölmennasta ríki heims meö rúmlega 300.000 ibúa. Viö erum mitt á milli Baham- as-eyja og Belize. Björk er frægust. Hljómsveitin Goldie Lookin Chain er þekkt fyrir allt annaö en rólegheit og reglu. Blaðamaður DV fékk að slást í för með þeim piltum á fimmtudaginn þar sem þeir skemmtu sér í miðbæ Reykjavíkurborgar. Byrjað var á Apó- tekinp, því næst farið á Sirkus en gleðin endaði á hótelherbergi eins þeirra. Mættir á Apóteldö Elnhver haföi orö á þvf aö þetta minnti helst á leikskóla. Voru prúöir viö boröhaldlö Gátu samt ekki hugsaö sér aö panta folaldakjöt. Menn famlr aö finna < sér Vildu drffa sig á einhvern bar. Stoppað tll aö plssa GLC-menn Ákveðlð var aö fara á skemmtl- voru ófeimnir viö að pissa á staðinn Sirkus GLC-mönnum Laugaveginum. fannst aðeins ofkalt Stemmingin var mjög góö Rætt var um ritskoöun og lunda. Alvöru partf Bjórarnir runnu niöur hver affætur öörum. í lok kvöldsins Two Hats úr GLC Var alveg búinn á því og vildi færa partíiö upp d hótel. Herramannadrykkur Vodka í pepsí var vinsælt á hótelinu. Sumir meðlimir hljómsveitarinnar stóðu varla í lappirnar þegar blaðamaður skildi við þá. Með í för voru vinningshafar sem fengu ferðina til íslands með GLC að gjöf. „Þetta er eins og að vera á leik- skóla," sagði einhver þegar blaða- mann bar að garði á Apótekið klukkan átta á fimmtudaginn. Næstum því 15 Bretar sátu á víð og dreif, gjömmuðu hvem annan í kaf og drukku bjór. Þeir voru hressir, lífsglaðir og greinilega sársvangir. Þetta var hljómsveitin Goldie Lookin Chain frá Wales í Bret- landi. Er hægt að fá lundabrauð? Þegar hljómsveitin settist loks niður til að borða, róaðist allt niður. Mikil einbeiting fór í að lesa matseðil- inn, á milli þess sem bæklingur um lundaskoðun gekk á milli manna við góðar undirtektir. Tveir hlutir komu hljómsveitinni úr jafnvægi. Sá fyrri var folaldakjötið á matseðlinum og sú staðreynd að lundaskoðanir heijast ekki fýrr en 15. maí. „Get ég nokkuð fengið lundabrauð?" sagði rótari hljómsveitarinnar og allir hlógu eins og villisvín. Þegar fólk var svo búið að panta sér, byrjuðu lætin aftur. Tvær stelpur vom með hljómsveitinni, feitiagnar stelpur sem virtust vera klipptar úr þáttaröðinni Iittle Britain. „Þessar herfur unnu einhveija keppni og fengu þess vegna að koma með okkur, við hefðum getað verið heppnari með vinningshafa," segir rapparinn Two Hats við blaðamann um stelpumar. Two Hats hefur þegar komið tvisvar til íslands og í bæði skiptin skemmt sér konunglega. Hann hefur þó áhyggjur af áfengisverðinu, en segir fólki að örvænta ekki: „Ég á h'tra af vodka og rommi upp á hótelherbergi, þetta reddast," segir hann höfðinglega. Ákveðið hafði verið að fara á skemmti- staðinn Sirkus á Klapparstíg. i Ritskoðun og rapp Margir hafa deilt um hvort í hljóm- sveitinni séu einhvexjir alvöm rappar- ar. Tónlist þeirra er mjög grínskotin og segja margir að Goldie Lookin Chain séu bara nokkrir Bretar að gera giín að rappi. Þetta er ekki rétt Þeir em alvöm rapparar sem leggja mikinn memað í textaskrif sín, ef marka má orð þeirra. Hins vegar hafa þeir ekkert gaman að bandarísku rappi og segja það hall- ærislegt. „50 cent, það er bara skítur fyrir mér," segir Eggsy, þegar hann fær sér sæti á efri hæðinni á Sirkus. „Við megum ekld segja neitt dóna- legt, þess vegna þurfum við alltaf að tala undir rós," segir Misty, skeggjaður gæi sem minnir helst á togarasjó- mann. Blaðamaður segir þeim frá textum hljómsveitarínnar XXX Rottweiler, einni vinsælustu hljóm- sveit landsins á árunum 2001 til 2002. „Vá, þetta er brjálað, þið emð greini- lega ekkert að grínast með málfrelsið héma," segir einhver en núna hefur verið ákveðið að færa gleðskapinn upp á hótelherbergi Two Hats, þar sem hann lumar á tveimur lítrum af áfengi. Fokking pottþétt „Þetta er fokldng pottþétt land (Safe as Fuck)," segja þeir allir til skiptis. Safe as Fuck er ekki aðeins nafnið á nýrri breiðskífu þeirra heldur er það einnig mesta hrós sem með- limir GLC geta látið út úr sér. Partíið á hótelherberginu er frekar villt. Sumir standa varla í lappimar á meðan aðrir gera tilraunir til þess að vekja annan meðlim hljómsveitarinnar, sem dó áfengisdauða fyrr um kvöldið. Þeir þurfa að vakna klukkan átta morgun- in eftir, en þeim er alveg sama. „You are the fuckin govemor," segja þeir þegar blaðamaður kveður. Blaða- manni líður eins og hann hafi verið sleginn riddaratign. Djammið með Goldie Lookin Chain var ffábært. dori@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.