Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2006, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2006, Blaðsíða 25
PV Lífið sjálft MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2006 25 Stöðugur vöxtur framundan Lifstala er reiknuð út frá fæðingardegi. Hún tekur til eiginleika sem eiga öðru fremurað móta lífviðkom- andi. Hermann Gunnarsson er fæddur 09.12.1946 Lífstalan Hermanns er 4 Eiginleikar sem tengjast þessari tölu eru: Grundvöiiur, regla, þjónusta og hægur og stöðugur vöxtur. Árstala Hermanns árið 2006 er 1 Árstala er reiknuð út frá fæðingar- degi og því ári sem við erum stödd á. Hún á að gefa vísbendingar um þau tækifæri og hindranir sem árið færir okkur. Ríkjandi þættir íþessari tölu eru: Nýtt upphafí lífi Hermanns og það á efiaust við fjölmiðlastarfið. Hans tími er kominn, aftur! Eilífðarstúdent Tómas Ingi Olrich er 63 ára í dag „Maðurinn kann að meta listir og nýtur þess að laera sem eilífðarstúdent. Hann birtist fólki sem kaldur og lokaður karakter en sú hlið er einungis hluti af persónuleika hans því hann er einstaklega hlýr og gefandi gagnvart þeim sem hann unnir og virðir. Hvert einasta vanda- mál sem hann tekst á við felur í sér dýrmætt tækifæri til að breyta tapi í ávinning. Hann ætti að hafa það hugfast." Stjörnuspá Svali, Gassi og Kristín Ruth hafa umsjón með morgunþættinum Zúúber á Fm 957 alla virka morgna milli 7-10 ásamt Siggu Lund sem gekk nýverið til liðs við þau. Lífsstíll forvitnaðist um góðverk og það vandræðalegasta sem þau hafa lent í. Svörin komu á óvart. ipjRt Vatnsberinn ao.jan.-is.febr.) Hlýjar tilfinningar þínar til ást- vina verða endurgoldnar ef þú hlustar á hjarta þitt í stað huga (á sér í lagi við vikuna framundan). Ekki láta kæruleysi eiga við þig ef þú stendur frammi fyrir ókláruðu verki. Vinnusemi, skipulag og elja eiga vel við um þessar mundir hjá fólki eins og þér. Góðverk, vandræði & gotterí „Ég gerði góðverk fyrir þremur árum, var að þvælast yfir Fagradal fyrir austan um miðjan vetur og það gerði mikið vonskuveður og fullt af bílum tók upp á því að fest- ast og vera svona með almenn leið- indi. Og ég sem sagt stóð í því að hjálpa fólki út úr sköflunum og hafði gaman af því. Mér fannst ég vera voða góður þá,‘‘ segir Sigvaldi Kaldalóns, eða Svali eins og hann er kallaður, einstaklega ljúfur og Gassi tekur við, nánast án umhugs- unar: „Ég geri góðverk á hverjum degi. Síðasta góðverkið var að vera betri við þá sem eru í kringum mig.“ Kristín Ruth hlustar af kost- gæfni á vinnufélagana og tekur til máls: „Ég held ekki mikið í minn- inguna um góðverk því ég tel að þau góðverk sem þú gerir komi bara ffá hjartanu og séu bara best geymd þar. Góðverkin eru það daglega sem við gerum. Að vera góð við fjölskyldu og vini, koma vel fram við náungann því maður veit aldrei hvenær maður þarf sjálfur á hjálp hans að halda. Ég gef alltaf reglulega blóð því ég er í svo sjald- gæfum blóðflokki og það er skortur á því blóði," segir hún töfrandi og meðvituð um áherslur lífsins. Eitthvað vandræðalegt sem þið hafíð lent í? „Vá, það er svo margt," svarar Kristín hlæjandi og strákarnir kinka báðir kolli til samþykkis en hún bætir við: „Ég er alltaf að gera mig að fffli og ekkert eitt sem stendur upp úr því þetta er alltaf eitthvað sem maður vill gleyma eða maður hlær endalaust að." Sigvaldi virðist ekki vera í vand- ræðum með að rifja upp vand- ræði: „Án efa þegar ég gekk nánast alla leið út í Laugardalslaugina með skýluna í hendinni," segir hann kíminn á svipinn og Kristín og Gassi skella upp úr og hann heldur frásögninni áfram: „Fattaði svo allt í einu að það hefði senni- lega verið betra að vera búinn að klæða sig í hana áður en maður skellti sér til sunds. En ég sem sagt snéri við og fór ekki ofan í laugina. Ég sé ennþá fyrir mér andlitin á liðinu sem ég mætti. Alveg hrika- Krlstín: „Ermeðslúð- urfréttirnar og einn stjórn- andi þáttar- ins.“ Svali: „Ég held utan um þáttinn og passa upp á að alltrenni eins og það á að renna. Þau (Gassi, Stina og Sigga Lund) hafa oftast kallað mig pabbann.“ Gassi: „Ég sé um dagskrárgerð, slmahrekki, Ijósmyndir, blaðaauglýs- ingarog að reka Svala áfram.“ lega vandræðalegt. Ég get nefni- lega stundum verið dálítið utan við mig." elly@dv.is Að stýra hugsunum og velja rétt Katrín Sigurðardóttir HgíIsq Að lifa í nú- inu og njóta þess að vera hér og nú í augnabiik- inuerein mikilvæg- asta ákvörð- unin sem við tökum ílífinu. Með þvíað vera hér ognú tökum við ábyrgð á lifi okkar, hvernig okkur líður og hvað það er sem við löð- um að okkur. Núið er það eina raun- verulega sem við getum lifað í, fortíðin er liðin og því hluti afsögunni og fram- tíðin er innan seilingar þó svo við ætlum að varða leiðina okkar með þviað setja okkur markmið. Hugurinn Það er eðli hugans að vera úti um allt. Við ráðum ekki við hugann en við ráð- um því sem við hugsum um. Þvier mikil- vægtiyrir okkur að velja það sem við hugsum um, að velja jákvæðar hugsanir og það sem er okkur til framdráttar. Allt það sem við hugsum um erþað sem vex og dafnar, með þvi að veita einhverju aukna athygli gefum við því innblástur og aukinn vöxt. Hugurinn geturþví bæði verið vinur okkar og óvinur, allt eftirþví sem við veljum sjálf. Við skulum því vanda okkur við að velja það sem við hugsum um. Þetta er ein afástæð- unum fyrir því að það er mikilvægt að vera til staðar hér og nú, við getum ekki valið hugsanirefvið erum Ijarlæg og ekki til staðar í núinu. Veldu Skreffyrirskreflærum við að stýra hugs- unum okkar og athöfnum þar til líf okk- ar er eins og við viljum hafa það. Við lærum að taka fulla ábyrgð á örlögum okkar, hvernig okkur líður, hvar við erum stödd í lífinu og hvað það er sem við löðum að okkur. Við veljum það sjálf hvernig okkur líður, það er enginn ann- ar sem gerir okkur glöð eða döpur. Ef Ekkert að óttast í núinu er enginn ótti og engar áhyggjur. Óttinn býr í framtíð- inni en áhyggjurnar I fortiðinni. það er leiðinlegt heima hjá okkur er það einfaldlega afþví að við erum leiðinleg, það er engin önnur ástæða fyrir því. Við „Núið erþað eina raunverulega sem við getum lifað í, for- tíðin er liðin og því hluti afsögunni." veljum það hvernig okkur líður óháð öðru eða öðrum i kringum okkur. Þegar við lifum í núinu getum við vaiið um viðbragð og hættum að bregðast við. Við hættum að fá áráttur og vera háð. Við förum að skapa okkar eigin ör- lög samkvæmt óskum okkar og þrám. Katrin er menntuð sem sjúkraliði og vann á fæðingar- og endurhæfingar- deildum í 18 ár. Hún útskrifaðist sem jógakennari frá Yoga Studio Ás- mundar Gunnlaugssonar. Fiskamirq?. febr.-20. mars) Leyfðu hlutunum að þróast á réttum hraða því fagnaðarlætin byrja fyrr en þig grunar þegar viðskipti eru annars vegar. Reyndu að komast í snertingu við þinn innsta kjarna og vel- gengni blasir samstundis við þér. Hrúturinn (21. mars-19.apríl) Fólkfætt undir stjörnu hrúts- ins ætti ekki að láta ímyndun- arafl sitt hlaupa með sig í gönur. NaUtið (20. april-20. mai) 6 Þú býrð yfir framúrstefnu- legri hugsun þessa dagana sem þú ættir að nýta þér mun betur í starfi. Ivíbmm (2l.mal-21.júnD Réttlætiskennd þín fær þig til að vinna verk sem tengist fjölskyldunni 4 hratt og örugglega. Þú veist hver þú ert í raun og veru og ættir að sameina fólkið þitt. faðbb'm (22.júní-22.júlí)_____ Ef þú getur með engu móti deilt tilfinningum þínum með öðrum ættir þú að leita til vinar sem þú getur treyst sem fyrst. Dagarnir framundan verða annasamir mjög og góðir í alla staði. l)Ón\b(23.júli-22.ágúst) Þú ert eflaust auðsærð/ur það sem eftir lifir af febrúarmánuði en ættir að huga að innri styrk þínum og ^ heilsu. Meyjan (23. ágúst-22. septj Máttur ástarinnar er mikill og er fólk fætt undir stjörnu meyju minnt á það hér. Ef þú lætur verk þín stjórnast af ást eyðir þú ekki orku þinni að nauð- synjalausu. Orka þín mun margfaldast ef þú ferð að ráðum þessum. Sú um- framorka sem þú skapar mun opna huga þinn og hjarta fyrir þeirri auðlegð sem bíður þ(n. Vogín (23. sept.-23.okt.) Stjörnuspá vogar í dag er skýr: Vertu þolinmóð/ur gagnvart fé- lögum þínum og fjölskyldu í dag og á næstunni. SporðdrekinnwoH.-íi./w.) Nú ættir þú að huga að þér eingöngu og hlusta á þarfir þínar. Ef þú getur með engu móti deilt tilfinning- um þínum með öðrum ættir þú að leita til vinar sem þú getur treyst sem fyrst. Dagarnirframundan verða annasamir mjög og góðir í alla staði hjá stjörnu sporðdrekans. Bogmaðurinní22.frá,-2j.itej Haltu þig frá þrætum yfir smámunum þessa dagana. Þú býrð yfir hernaðaranda sem þú stjórnar af kost- gæfni og gefur lausan tauminn þegar þú þarft á því að halda. Heppni ein- kennir bogmann vikuna framundan. Steingeitingzfe.-J9.jan.) Ef þú finnur fyrir ójafnvægi er það tímabundið og stendur einungis yfir í stuttan tíma. Mikil læti kunna að vera í kringum þig um þessar mundir. Þú ert fær um að draga þig í hlé þegar mikið stendur til og ættir þú að huga að einhverju verki sem þú kýst að Ijúka fyrir vikulok. •* SPÁMAÐUR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.