Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Blaðsíða 40
Við tökum við 1
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
'j^iafnleyndar er gætt. jQjQ Q Sj QQ Q
SKAFTAHLlÐ24,105REYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SIMI550S000 5 690710 111117
Palli Papi Um-
boðsmaður
Bubba segist ekki
geta staðfest eitt
né neitt I þessu
sambandi.
A ðalflutningar
w1 ' ' v
OPIÐ VIRKA DAGA TIL KL. 17.00 FÖSt. til 1(1.16.00
Skútuvogi 8 • S. 581 3030 • Fax: 471 2564 • adaleg@simnet.is
Fer hann til
Sjóvá Records?
Söluhæsti tónlistarmaður Islands
frá upphafi, Bubbi Morthens, hyggst
segja skilið við útgáfufyrirtækið
Senu þar sem hann hefur verið
árum saman á mála. Fyrst hjá Stein-
ari, sem rann inn í Skífuna sem
breyttist svo í Senu. Að sögn útgáfu-
stjórans Eiðs Amarsonar er þetta
ekki frágengið en flest bendi til þess.
Eiður segir að miðað við stöðuna
kæmi sér ekki á óvart ef til uppgjörs
og samstarfsslita komi. „Við höfum
verið að snurfusa eitt og annað í
samningum og klára áður en við
sendum frá okkur tilkynningu.“
Samkvæmt heimildum DV var
Bubbi ekki sáttur við aðkomu Senu
að því þegar hann hélt upp á 25 ára
starfsafmæli sitt - að þar hafi hon-
um fundist vanta upp á stuðning
síns útgáfufélags hvað auglýsingar
og annað varðar. Þó getur kóngur-
inn vart kvartað undan viðtökum við
þessi tímamót en hann hélt vel
heppnaða tónleika í tengslum við
starfsafmælið. Þá vilja heimildar-
menn DV meina að Bubbi standi nú
á tímamótum, sé að hreinsa til og þá
á öllum póstum. Viðskilnaður hans
við útgáfima sé partur af því.
Páll Eyjólfsson, eða Palli Papi
eins og hann er jafnan kallaður, er
umboðsmaður Bubba. Hann segist
ekkert hafa heyrt af málinu né held-
ur því, sem heimildarmenn DV full-
yrða, að Bubbi sé nú tekinn til við að
vinna að nýrri plötu. Og hafi í tengsl-
um við þá plötu stofnað lítið útgáfu-
fyrirtæki í Danmörku í samstarfi við
Sverri Berg. Sverrir átti áður Senu
ásamt Róberti Melax.
Ekki tókst í gær að ná tali af Sverri
né fékkst nokkuð af þessu staðfest
hjá umboðsmanninum snjalla. Palli
Papi er einnig starfandi í hinni vin-
sælu hljómsveit Pöpunum en þeir
hafa haft þann hátt á, í tengslum við
þrjár síðustu plötur sínar, að gefa út
sjálfir og selja svo allt upplagið til
Hagkaupa.
Þó að Sena beri höfuð og herðar
yfir önnur útgáfufyrirtæki á íslandi,
með um sextíu prósenta markaðs-
hlutdeild, er ljóst að nokkurt áfcdl er
fýrir Senu að missa Bubba Morthens
þótt oft
kunni að
hafa reynt á í
því sam-
starfi. Á það
er skotið að
hann hafi
selt um 300
þúsund ein-
tök platna í
gegnum tíð-
ina. Og
munar um E'ðfur Amarsson Út-
mi„„i spá- •J'SZHS'
rnann en genginn en verið sé að
slíkan. snurfusa eitt og annað
í samningum.
Bubbi Morthens Er á leið
frá Senu en hann er sá tón-
listarmaður sem selt hefur
flestar plötur á Islandi.
Oryggi alla leið
VIÐ ERUM FLUTT í STÆRRA
0G RETRA HÚSNÆÐI MEÐ
FRÁBÆRRI AÐK0MU
Iflutningar
'mSmt
HlEIm. Sf
■ imsmr-