Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Sáttarferli MÍ í uppnámi Fjórtán kennarar Menntaskólans á ísafirði krefja menntamálaráðu- neytið um að vanda vinnu- brögð sín varðandi sáttar- ferlið í skólanum sem gert var fyrir tilstilli ráðuneytis- ins og stjórnenda skólans um miðjan janúar. Hefur kvisast út um skólann að ekki séu allir starfsmenn skólans tilbúnir til að gang- ast við sáttarferlinu. Segja þessir fjórtán kennarar sem sendu ráðuneytinu bréf að það vanti upp á að öll skil- yrði séu uppfyllt til þess að sáttarferlið geti náð fram að ganga. Frá þessu er greint á bb.is. Sættir bitna á nemendum Nemendur í Mennta- skólanum á ísafirði eru sendir heim þá daga sem skólaþróunarverkefni fer fram í skólanum. Er þetta verkefni þáttur í því sáttar- ferli sem er á milli stjórn- enda og starfsmanna skól- ans. Foreldrar nemenda hafa kvartað undan því að sumir nemendur líði fyrir að missa af tímum vegna þessa og virðast ekki fá tím- ana bætta upp með auka- tímum. Greint er frá þessu á bb.is. Maður missti meðvit- und laust fyrir hádegi í fyrradag við Reykjanes- virkjun en þar var hann að vinna inni í plaströri við að líma það saman. Vinnufé- lagar mannsins náðu að draga hann út úr rörinu og komst hann til meðvitund- ar skömmu síðar. Maður- inn var fluttur með sjúkra- bifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem læknir skoðaði hann. Honum mun ekki hafa orðið meint af. Vf.is greindi frá. Umhverfisráö Reykjavíkur hefur Qallað um og gefið umsögn um staðarval fyrir lóðir og byggingar fyrir þrjá trúarhópa sem vilja aðstöðu í höfuðborginni. Rússneska rétt- trúnaðarkirkjan, ásatrúarmenn og íslenskir múslimar eru enn í biðstöðu með sín mál. Patriarki heiörar rfcUttúna' DV Fréttir afhúsamál- um trúfélaga hafa verið sagðarfDV. > J Æ 1 Landakot úr lofti ~ I æÍ I fíauðu hringirnir sýna 1 ;J þrjá möguleika á stað- / setningu rússnesku rétt- ■ jH gj trúnaðarkirkjunnar i 1? ^ wr~T * _ \jaðri Landakotstúns. L Umhverfisráð Reykjavrkur hefur fjallað um staðarval fyrir þrjá trúar- hópa sem vilja lóðir fyrir aðstöðu sína og kirkju. Mesta athygli vekur lóð fyr- ir rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna við hlið Landakotskirkju. Þrír staðir í jaðri Landakotstúns þóttu ákjósanlegir fyrir rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna. Tveir staðir sinn á hvorum enda bílastæða sem nú eru við norðan- ^vert túnið og svo sunnanvert við i Hávallagötu. Er [ það mat um- i hverfisráðs að k staðsetning við Hávalla- götu myndi ! henta best og I þá I Alexsij II og Ólafur Ragnar I Patrlarki rússnesku rétttrúnaðarkirkj- I unnar hefurþegar fært forseta fslands I orðu fyrir að vinna að því að rússneski j | söfnuðurinn fá eigin kirkju á Islandi. sérstaklega með tilliti til þess að með því móti myndi rússneska rétttrúnað- arkirkjan skyggja minnst á sjálfa Landakotskirkju. í umsögn umhverfisráðs er tekið fram að endanlegt ákvörðunarvald sé í höndum kaþólsku kirkjunnar og eigi hún fyrir bragðið síðasta orðið. Kirkja við eldhúsgluggann Ekki er að efa að íbúar við Hávallagötu hefðu ýmislegt við það að athuga að reist yrði | kirkja á því svæði sem ' hingað til hefur verið ^opið og grasi gróið rétt við eldhús- kgluggann hjá l þeim sem [ þar búa. I Grenndar- Ikynning á r eftir að fleiða í ljós I hvemig fykt- f ir þess máls I verða þó Er það mat umhverfis- ráðs að staðsetning við Hávallagötu myndi henta best og þá sérstaklega með tilliti til þess að með því móti myndi rúss- neska rétttrúnaðar- kirkjan skyggja minnst á sjálfa Landa- kotskirkju. ýmsir í kaþólska söfnuðinum hafi þegar boðið rússnesku rétttrúnaðar- kirkjuna velkomna á svæðið. Skyggir á skóg Annar kostur er að setja rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna niður í öskju- hh'ð, í svokallaðri Leynimýri, þar sem einnig er ráðgert að skipuleggja Benedikt XVI Skipulagsmál á Landaskots- túni gætu komið til kasta páfans I Róm. duftkirkjugarð. Þykir umhverfisráði það lakari kostur því byggingar þar myndu skyggja á skógarsvæði sem þar er fyrir ofan og einnig ber til þess að h'ta að Ásatrúarfélagið hefúr sýnt lóð þama áhuga og fengið vilyrði fyrir að hálfu. Múslimar í Elliðaárdal Umhverfisráð fjaliaði einnig um fyrirhugaða byggingu mosku músl- ima við Stekkjarbakka í Breiðholti, á útivistarsvæði gegnt gömlu rafstöð- inni í Elliðaárdal. Þykir umhverfisráði það góður kostur og gerir ekki at- hugasemdir við. Viðsnúningur í verslun Það er aftur hlaupin harka í verkalýðsbaráttuna og því fagnar Svarthöfði sem aldrei sleppir átök- um komist hann í þau. Verkalýðsfor- ingjarnir í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur hafa legið undir feldi svo mánuðum skiptir til að finna ný- tískulegra nafn á félag sitt en þetta gamla og lummuiega sem síðustu ár hefur verið skammstafað VR. Niður- staðan kom svo á óvart því verka- lýðsforingjarnir dúkkuðu upp með sama nafnið en nú þýddi það Virð- ing og réttlæti í stað Verslunar- mannafélags Reykjavíkur. Þetta er mjög snjallt. Eða það finnst Svart- höfða. VR í merkingunni virðing og rétdæti sýnir grunntón í viðhorfi til lífsins sem rekja má háifa leiða aftur til frönsku byltingarinnar. Þar lögðu menn mikið upp úr^rfytlæti og jafn- rétti og virðingin Váf aldréi langt undan. Verkalýðsforingjarnir í VR hafa þarna dottið niður á grundvall- arstef í evrópskri hugsun. Mættu önnur félög og fyrirtæki, sem enn styðjast við óskiljanlegar og fornar skammstafanir, taka sér VR til fyrirmyndar. Til dæmis tryggingafélagið VÍS sem þýðir Vátryggingafélag Islands og fáir skilja í dag. VÍS gæti þýtt Verðmæti í skemmdum og lýsti það betur starfseminni en eldri merking. FÍS heldur aðalfund sinn þessa dagana en sú skammstöfun stendur fyrir Félag íslenskra stórkaup- manna. Nú vilja kaupmenn í dag ekki vera stórir og feitir þannig að ráð væri að breyta FÍS í Farandsalar í strætum. Svo ekki sé minnst á BSRB sem fólk í dag veit vart hvort er Bandalag starfsmanna ríkis og bæja eða leigu- bflastöð. BSRB gæti þýtt Blankar atelpur eeyna betur. Og KR, Knattspyrnufélag Reykja- vflcur: Konungsveldi reynslunnar. O.s.frv... Svarthöföi Hvernig hefur þú það? ,Ég erhinum megin á hnettinum og hefþað ágætt/'segir Vilhjálmur Egilsson ráðu- neytisstjóri.„Ég er i Ástraliu á ráöstefnu um stjórn fiskveiða. “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.