Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Blaðsíða 14
74 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 Fréttir OV Óskar Hrafn Þorvaldsson • Stjórn hins umdeilda Spari- sjóðs Hafnar- fjarðar umturn- aðist enn í vik- unni og situr að- eins einn eftir sem áður var: Þórður Magnús- son. Fyrir á fleti nú eru:Magnús Armann, eigandi Riko, Magnús Ægir Magnússon sparisjóðsstjóri, lögmaðurinn Jón Auðunn Jónsson og svo Matthías Páll Imsland. Er nú að koma mynd á hverjir standa að baki yfirtöku sem fjall- að hefur verið um í fréttum undanfarið ár... • Fjarðarpóstur- inn hefur fylgst grannt með gangi mála og upplýsir í blaði sem kemur út í dag að stofn- fjáreigendur séu nú 31 að tölu og tveir hafi ekki selt úr hópi þeirra sem fyrir voru áður en yfirtaka á sjóðnum fór fram og Matthíasi Á. Matliiesen var velt úr stóli: Helgi Vilhjálmsson í Góu og Matthías. Allir hinir hafa nú fært inn á reikning sinn 50 milljónir fyrir að hafa verið til lengri eða skemmri tíma titlaðir stofnfjáreig- endur og komu sumir jafnvel inn í hópinn sem fulltrúar bæjarstjórn- ar. Aðrir þáðu setu sína í hópnum í arf eða fyrir tröllfasta hollustu við íhaldsöfl í Hafnarfirði... • Helgi Vil- hjálmsson lætur ekki trufla sig mikið átökin sem staðið hafa um bankann. Sagði í viðtali við DV fyrir nokkru að hann hefði ávallt litið svo á að hann hafi, með því að þekkjast boð um að vera í hópi stofnfjáreigenda, verið að lýsa yfir ákveðnum stuðn- ingi við bankann. Helgi er nú staddur úti í Taílandi í fríi sem er breyting frá því sem var en árum saman sótti hann ávallt sama stað á Flórída þegar hann fór í frí... • Guðni Gísla- son, ritstjóri Fjarðarpóstsins, ritar sérdeilis undarlegan leið- ara í ívitnað tölu- blað. Þar er fjallað um frægan Kompásþátt um meinta barnaníðinga. Guðni skilur ekki neitt í neinu og vitnar í sögu- sagnir í bæjarfélaginu þess efnis að maður sem Guðni áður taldi grandvaran væri nefndur meðal þeirra sem „leiddur var í gildru blaðamanna". Eftir að hafa haft bæjarslúður til marks um það seg- ir hann svo: „Hins vegar mega menn aldrei falla í þá gryfju að reyna að fremja manndómsmorð opinberlega með myndbirtingum, slúðri eða öðru því þá eru menn fallnir í sama brunn og meintur glæpamaður." Verður ekki betur séð en Guðni viti ekki hvort hann sé að koma eða fara... Byggingaverktakinn Guðmundur Þór Kristjánsson hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Guðmundi er gefið að sök að hafa ráðist á Jón Valgeir Pálsson á heimili þess síðarnefnda á Akranesi með stálkylfu og lamið hann ítrekað svo stórsá á Jóni Valgeiri. Ákæröur tyrir al lemja mann með stálkylfu tyrir Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur bygginga- verktakanum Guðmundi Þór Kristjánssyni fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Honum er gefið að sök að hafa lamið Jón Valgeir Pálsson með stálkylfu með þeim afleiðingum að hann meiddist illa á höfði, hendi og fæti. „Þetta var ekkert annað en hrein og klár morðtilraun. Hann var með sérhannað barefli til þess að drepa fólk með," sagði Jón Valgeir Páls- son í samtali við DV í gær um árás Guðmundar Þórs á hendur honum í október á síðasta ári. Notaði stálkylfu Jón Valgeir sagði aðspurður að Guðmundur Þór hefði dregið upp stálkylfu og lamið hann þrívegis í höfuðið. „Hann stóð fyrir utan dymar hjá mér og dró skyndilega upp stál- kylfu. Ég vissi ekki fyrr en ég fékk þungt högg í höfuðið og síðan tvö önnur. Ég ætlaði að reyna að koma honum út á gangstétt því börnin mín voru hjá mér í dyrunum en ég átti ekki möguleika gegn honum. Ég er enn með mar á heila eftir árásina," sagði Jón Valgeir. Alblóðugur Nágranni Jóns Valgeirs, Sigrún Theódórsdóttir, sagði í samtali við DV í gær að hún hefði ekki séð árás- inu en hún hefði séð mann hlaupa burt frá heimili Jóns Valgeirs dag- inn umrædda og síðan hefði Jón Valgeir komið út alblóðugur. ,Árásarmaðurinn var með mann með sér sem stóð fyrir utan ■* v , v og sá til þess að enginn kæmist inn eða út,“ sagði Sigrún og bætti við að annar nágranni þeirra hefði hjálpað Jóni Valgeiri á sjúkrahús. Samstarf sem endaði illa Jón Valgeir sagði að Guðmund- ur Þór hefði verið vinnufélagi hans um tíma en það samstarf hefði endað í leiðindum. „Hann skuldaði mér tvær millj- ónir í laun þegar ég hætti og ég hafði ítrekað beðið hann um að koma og gera upp þessi mál við mig. Ég geymdi motocross-hjól og galla sem við áttum saman og það var hjólið og gallinn sem hann vildi fá án þess að borga krónu fyrir þeg- ar hann kom til mín þennan sunnudag," sagði Jón Valgeir. Með tveggja vikna barn „Ég viidi ekki láta hjólið af hendi fýrr en ég fengi launin sem ég átti inni hjá honum og þá greip hann til þessara örþrifaráða," sagði Jón Val- geir sem prísar sig sælan fyrir að ekki hafi farið verr því hann var með tveggja vikna gamalt bam sitt heima við þegar árásarmaðurinn kom í heimsókn. Ekki náðist í Guðmund Þór í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. oskar@dv.is „Ég ætlaði að reyna að koma honum út á gangstéttþví börnin mín voru hjá mérídyr- unum en ég áttiekki möguleika gegn hon- #ftí 1 i**r Guðmundur Þór Kristjánsson Ákærður fyrir að lemja fyrrverandi I vinnufélaga sinn Itrekað f með stdlröri. Upplýsingar um laun verðbréfamiðlara íslands voru rangar Níu milljónir á mánuði fjarri raunveruleikanum Jónas Sigurgeirsson, forstöðumaður samskiptasviðs hjá KB banka, segir það fjarri lagi að Ingvar Vilhjálmsson, verðbréfa- miðlari hjá bankanum, hafi haft níu milljónir króna í laun á mán- uði árið 2004 eins og kom fram á forsíðu DV í gær. Hann hafi ekki leyfi til að gefa upp laun einstakra starfsmanna KB banka en þessi tala sé fjarri raunveruleikanum. Upplýsingar um laun Ingvars voru fengnar úr Frjálsri verslun. Tímaritið áætlar árlega tekjur þekktra einstaklinga með því að nota gögn úr álagningarskrám skattstjóra, sem eru látnar liggja frammi í ágúst ár hvert. Jónas segir að tekjur Ingvars hafi verið áætlaðar fyrir árið 2004 og sú áætlun hafi verið út úr kortinu. Vont sé fyrir starfsmann- inn og bankann þegar rangar upp- 'lýsingar af þessu tagi birtist í fjöl- miðlum. Ingvar Vilhjálmsson var valinn verðbréfamiðlari ársins 2005 af álitsgjöfum DV. Kom fram í um- sögnuro íþeirra - að Ingvar væri mjög nietnaðarfullur og bæri hag viðskiptaviná sinna sífpllt fyrir brjósti. Fékk Ingvar flest stig álits- gjafa én áéftif honum komu Frosti Reyr Rúnarsson, sem starfar hjá KB banka, og Steinþör Gunnars- son, verðbréfámiðlari hjá Lands- banka íslands. Frosti Reyr Rúnarsson og Ingvar Vilhjálmsson Tveir bestu verðbréfamiðl- arar íslands að mati dlits- gjafa DV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.