Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 Síðast en ekki síst DV Friðrik fánaberi á gráu svæði Á úrslitakvöldi Söngvakeppni Sjónvarpsins sem haldið var síðasta laugardagskvöld gerðist sá fáheyrði atburður að íslenski fáninn var af- hjúpaður með orðunum „Halló ís- land" áprentuðum. Þótti sumum sem virðing fyrir fánanum hefði náð lágmarki hjá Friðriki Ómari, söngv- aranum frækna sem söng lagið Það sem verður. Þrátt fyrir þetta glæfra- atriði náði Friðrik þriðja sæti í r-jp keppninni. LlILXfl „Það hefur ekki verið hingað til farið eftir reglum í Euro- vision, af hverju núna?" spyr Friðrik Ómar sjálfur og viðurkennir að hann hafi ekkert hugsað út í mögulegt brot gegn fánalögum. í þeim lögum (nr. 34 frá 17. júní 1944) segir ein- faldlega: „Enginn má óvirða þjóð- fánann, hvorki í orði né verki." Hörður Jóhannesson yfirlög- reglumaður í Reykjavík segir atriði Friðriks svo sannarlega vera á gráu svæði. „Svo er þetta allt matsmál enda veita lögin töluvert svigrúm til túlkunar," segir Hörður sem telur þó að atriðið sé fljótt á litið ekki stórt brot gegn lögunum. Hvað sem öðru líður telja sumir víst að Jón Sigurðsson sjálfur hefði snúið sér við í gröfinni ef hann hefði séð íslenska fánann í allri sinni dýrð, útataðan útlenska orð- inu Halló. Það orð náði Jón þó aldrei að heyra í lifanda lífi þar sem orðið komst í almenna notkun upp úr árinu 1883, fjórum árum eftir dauða Jóns. Hvað veist þú um Olíufélagið 1. Hvaða fyrirtæki keypti Olíufélagið um daginn? 2. Hvenær var Olíufélagið hf. stofnað? 3. Hvað heita bensínstöðvar félagsins? 4. Hvaða maður tók við stjórnarformennsku í félag- inu í vikunni? 5. Hver er nýr forstjóri Olíu- félagsins ehf.? Svör neðst á síðunni Hvað segir mamma? Jú,þeirná afskaplega vel saman," segir Margrét Pálsdóttir, móðir þeirra Páls Axels og Armanns Vilbergssona, sem urðu bikarmeistarar I körfuknattleik með Grindavlk um slðustu helgi.„Ég er alveg rosalega stolt afþeim, ég er alveg I skýjun- um. Þetta erauðvitað ótrúlega gaman aö ná svona góðum árangri. Samter aldrei ræddur körfubolti hér á heimilinu. Þeir bræðurnir eru ofsalega óllkir. Ármann var alltafmjög þægur þegar hann var yngri, en Páll Axel var svona eins og Emil I Kattholti. Það var ákveðið fyrir löngu að þegar Ármann yrði 17 ára myndi hann vera með Páli I liði og það gekk eftir. Ég veit samt ekki hvortÁrmann llti neitt sér- staklega upp til Páls, en samt byrjaði hann I körfubolta eftir að Páll byrjaði. Páll ákvað að fara að æfa vegna þess að það var hægt að fá töskur merktar Grindavlk- urliðinu efmaður byrjaði I körfubolta og fórsystir hans með honum á þá æfingu. Það var gæfuspor." Margrét Pálsdóttir er móðir Páls Axels og Armanns Vilbergssona. Páll Axel er fæddur 4. janúar 1978 og Armann 12. september 1985. Þeir bræður urðu bikarmeistarar með Grindavík í körfubolta um síðustu helgi. Páll Axel er fyrirliði liðsins. Þeir bræður eru þekktir fyrir þriggja stiga körfur og skoruðu báðir slíka körfu í þessum mikilvæga leik. GOTT hjá Björgólfí að bjóða lands- mönnum ókeypis aðgang að Lista- safni Islands næstu þrjú árin. 1. Bílanaust auk annarra fjárfesta. 2.14. júnl 1946.3. ESSO. 4. Bjarni Benediktsson alþingismaður 5. Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri Bílanausts. Meflal húlligana í London Egill frekor á British Mosoum Að sögn Egils voru menn kátir í flugvélinni og þar ýmsir gúbbar á borð við veitingamennina Kormák og Skjöld á ölstofunni. DV talaði einnig við Eiða Arnarson útgáfu- stjóra í gærmorgun sem sagði að hálf Sena hefði verið á leið á leikinn. Bankamenn og verðbréfasalar flugu út í gær í stórum stíl. En fyrir íslend- ingum fór forsætisráðherra þjóðar- innar, Halldór Ásgrímsson. Egill læt- ur sér fátt um finnast. Hann átti pantað borð á góðum veitingastað í Marylebone-hverfmu og lét sér ekki til hugar koma að fórna því fyrir ein- hvern fótboltaleik. „Þó yrði hringt í mig myndi ég ekki nenna að fara alla leið niður í Chelsea. Þó Björn Ingi gæfi mér miðann sinn og ég fengi að sitja við hliðina á Halldóri, hitta Abramovich og Eið Smára. Mér fmnst þetta svo leiðinlegt. Hallgrímur [Helgasonj skrifaði skemmtilega um þetta í Roklandi. Ertu Liverpool-maður eða Arsenal-maður? Með ólíkindum heimskulegt." Agli þykir það skjóta skökku við, og vera kannski tímanna tákn, að Landsbankinn eigi 17 sæti á leik- vangi Chelsea. Og veltir fyrir sér hvert stefni þegar menningin er annars vegar. Áður var mönnum boðið í lax og það var þó eitthvað þjóðlegt við það. En nú þyldr þetta það fínasta. ,iAð fljúga í stórum stíl með menn á fótboltaleiki. Eins og þetta sé okkar menning. Óneitan- lega er þetta plebbalegt. Væri ekki nær að eyða þess- um pening heima í góð málefni? Gera upp Þjóðleikhúsið?" spyr Egill sem er að ' fá sér súkkulaði veitingastað í London. Ástæða fararinnar er sú að j kona hans, Sigur- Daginn fyrir Stöð 2 Gamla myndin að þessu sinni er tekin daginn fyrir fyrstu útsendingu Stöðvar 2 á haustmánuðum 1986 og sýnir helstu forkólfa stöðvarinnar bera saman bækur sínar á Krókhálsi þar sem stöðin var lengstum til húsa. Val- gerður Mattlúasdóttir man vel eftir þessum degi og þeirri ótrúlegu bjart- sýni sem ríkti í hópnum sem kom stöðinni í loftið. „Það var mjög mildð stress í gangi en samt voru allir glaðir og hressir sem komu að undirbún- ingnum fyrir útsendinguna," segir Vala. Vala minnist þess einnig að þótt aðstandend- ur stöðvarinnar væru fullir af bjart- sýni vom margir aðrir sem ekki töldu að dæmið myndi ganga upp. „Fólk var almennt á þeirri skoðun að einkastöð eins og Stöð 2 er ætti ekki mikla framtíð fyrir sér. Okkur var ekki spáð löngum líf- tíma, í mesta lagi einu ári. En sjá, hér emm við enn við lýði 20 ámm seinna," segir Vala. Daginn fyrir útsendingu Helstu forkólfarStöðvar2 daginn áðuren fyrsta útsendingin fórí loftið Ioktóber 1986. Frá vinstri eru Jón Óttar Ragnarsson, ÓlafurJónsson, Hans Kristján Árna- son og Valgeröur Matthiasdóttir. Á innfelldu myndinni er Valgerður I dag. „Nei, ég myndi ekki láta mér það til hugar koma. Ég færi frekar á Brit- ish Museum," segir Egill Helgason sjónvarpsmaður í samtali við DV og talar frá London. Egill flaug til Lundúna í gær líkt og fjöldi annarra íslendinga. En ólíkt þeim flestum var hann ekki að fara á Chelsea-leikvanginn að sjá Chelsea spila við Barcelona. Sagði það af og frá þó svo að á heimasíðu sinni hefði hann nefrit það við Björn Inga Hrafnsson að- stoðarmann forsætisráðherra, sem lá veikur heima fjarri góðu gamni með miða á leikinn í vasanum, að Björn Ingi vissi símanúmerið hjá sér. Það var nefnt í hálfkæringi. Egill Helgason Undrastplebbaskap Islend- inga sem fljúga útistórum stll á fótboltaleik. veig Káradóttir veitingamaður, er að skoða matreiðsluskóla þar í borg. Og Egill fer með. Sem fylgdarsveinn. jakob@dv.is Fjor í London Bankamenrt skemmtu sér vel meðal Chelsea- manna í gær. Krossgátan Lárétt: 1 kæn, 4 ólykt, 7 brúkar, 8 hópur, 10 jörð, 12 svik, 13götu, 14 yfir- ráð, 15 heiður, 16 naut, 18 skipalægi,21 gagns- lausi,22 orðrómur,23 sál. Lóðrétt: 1 fikt, 2 ofn, 3 vandvirkni,4 óstöðuga, 5 væta,6 sár,9 hindra, 11 nærri, 16 fjör, 17 upp- haf, 19stök, 20 flýtir. Lausn á krossgátu •ise 03'u!9 61 '19J íl 'd?j g t '6æ|yu 11 'ejye 6 'pun 9 'ej/i g 'ej|eA||ej f 'lujæBjso^ e'uup? 'jy>| 1 :;jajgoi •jpue £7 'ped 77 '|jXu9 t7 'EÖa| 81 ‘JJBJ 91 'ejæ s 1 'p|OA f 1 '6jjs £ 1 j?j 71 'pue| 0 L 'suej 8 'jbjou 7'n|Aj f 'jpij t :W3Jsn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.